8. maí 2019 Þriðji orkupakkinn: Umsögn Samorku Samorka styður innleiðingu þriðja orkupakkans og hefur skilað inn umsögn um hann og tengda löggjöf. Helstu punktar í umsögninni: • Markmið Evrópusambandsins um aðskilnað milli samkeppinisþátta og sérleyfisþátta, aukið orkuöryggi, betri nýtingu framleiðsluþátta og flutnings- og dreifikerfa hafa náðst, sem og að aukin samkeppni skili neytendum lægra verði. • Hvatar, eins og heimild til útgáfu upprunaábyrgða fyrir græna raforkuframleiðslu, hafa skilað bættri samkeppnisstöðu gagnvart raforku sem framleidd er með jarðefnaeldsneyti og ekki síður ýtt undir möguleikann á tækniþróun í framleiðslu grænnar orku. • Þriðji orkupakkinn vinnur sérstaklega með þau markmið að tryggja nýjum raforkuframleiðendum jafna stöðu þegar kemur að tengingum við flutnings- og dreifikerfin. • Sameiginlegt regluverk Evrópusambandsins og EES-samningsins almennt hefur tryggt stöðu raforkuframleiðslu í alþjóðlegu samhengi í þeim skilningi að ekki sé um undirboð að ræða á markaðnum. • Þriðji orkupakkinn leiðir ekki til þess að Íslendingar eigi það á hættu að missa yfirráð sín yfir náttúruauðlindum til Evrópusambandsins eða að hingað verði sjálfkrafa lagður sæstrengur. • Samorka tekur ekki undir nauðsyn þess að hækka eftirlitsgjöld, auka heimilidir til veitingu áminninga eða álagningar stjórnvaldssekta vegna skerpingar á sjálfstæði Orkustofnunar til eftirlits. Umsögn Samorku í heild má lesa hér fyrir neðan: Umsögn Samorku um innleiðingu á 3ja orkupakka EB og tengda löggjöf 2 maí 2019Download Frekari upplýsingar um þriðja orkupakkann og samantekt af fræðsluefni um hann.