15. febrúar 2023 Sveitastelpan sem knýr framtíð loftslagsmála Podcast: Play in new window | Download (Duration: 37:17 — 46.0MB)Subscribe: Apple Podcasts | Spotify | Android | RSS | More Hér á landi er gróska fyrirtækja sem vinnur að orku- og veitutengdri nýsköpun og eitt þeirra er Alor, handhafi Nýsköpunarverðlauna Samorku árið 2022, sem vinnur að þróun nýrrar tegundar rafhlaðna. Eftirspurn eftir rafhlöðum mun margfaldast á næstu árum, en gallinn er sá að þær sem við þekkjum í dag eru ekkert sérstaklega umhverfisvænar. Alor ætlar sér að breyta því. Framkvæmdastýra Alor er Linda Fanney Valgeirsdóttir, menntaður lögfræðingur með nýsköpunarblóð í æðum sem nýlega lenti á lista StartUp Basecamp yfir konur sem knýja framtíð loftslagsmála í heiminum. Í þætti dagsins ætlum við að kynnast henni aðeins betur og heyra meira um umhverfisvænu og sjálfbæru rafhlöðurnar sem fyrirtækið vinnur að. Lovísa Árnadóttir, þáttastjórnandi og Linda Fanney Valgeirsdóttir, framkvæmdastýra Alor.