19. nóvember 2019 Upprunaábyrgðir: Lóð á loftslagsvogarskálar Aðsend grein í Morgunblaðið eftir Lovísu Árnadóttur, upplýsingafulltrúa Samorku: UPPRUNAÁBYRGÐIR: LÓÐ Á LOFTSLAGSVOGARSKÁLAR Á Íslandi er rafmagn framleitt með endurnýjanlegum hætti. Þetta er staðreynd, sem þó skolast stundum til þegar uppgjör vegna upprunaábyrgða raforku, stundum kölluð græn skírteini, er birt einu sinni á ári. Því er rétt að skerpa aðeins á hvað upprunaábyrgðir eru, hver tilgangur þeirra sé og af hverju Ísland tekur þátt í kerfinu um þær. Hvað eru upprunaábyrgðir og hvernig virka þær? Upprunaábyrgðir raforku eru liður í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Í Evrópu hefur verið gripið til ýmissa ráða til að minnka losun gróðurhúsalofttegunda og auka hlut endurnýjanlegrar orku. Til dæmis ívilnanir og skattlagning, langtíma tvíhliða samningar við raforkuframleiðendur og svo vottunarkerfi um uppruna raforku, eða upprunaábyrgðir. Með upprunaábyrgðum er græni þáttur framleiðslunnar gerður að sjálfstæðri söluvöru óháð því hvort kaupandinn fái þetta tiltekna græna rafmagn í innstungurnar sínar. Það er til þess að hægt sé umbuna þeim sem framleiða græna orku óháð því hvar þeir eru staðsettir því það skiptir ekki máli í samhengi loftslagmála; það er sama hvaðan gott kemur. Fjárhagsleg umbun = arðbærari hrein orka Með því að beina fjármagninu til þeirra sem framleiða orku með endurnýjanlegum hætti verður sú orka arðbærari og getur frekar keppt við orku sem framleidd er með jarðefnaeldsneyti, sem hingað til hefur verið ódýrari í framleiðslu. Raforkunotendur í Evrópu hafa kannski takmarkaðan aðgang að endurnýjanlegri orku í sínu heimalandi en geta þá stutt við framleiðslu á hreinni orku með því að borga aukalega í hverjum mánuði. Hér fara því saman hagsmunir græna raforkuframleiðandans og græna raforkukaupands. Sjái raforkunotandi ávinning í því að vísa í að hann noti rafmagn sem framleitt er á umhverfisvænan hátt getur hann vottað það með opinberum hætti með því að kaupa upprunaábyrgð. Rétt eins og með aðrar umhverfisvottanir þarf að greiða sérstaklega fyrir vottun á uppruna raforku. Engin kvöð er að kaupa slíka vottun; kerfið er valfrjálst fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Verðmæti orkunnar hámörkuð Hreinleiki orkunnar okkar eru verðmæti og auðlind út af fyrir sig. Kerfið um upprunaábyrgðir setur verðmiða á það. Ísland hefur augljósa hagsmuni af því að hámarka verðmæti hreinu orkunnar sem hér er framleidd og það markmið næst betur með því að selja þær upprunaábyrgðir, sem ekki seljast hér á landi, á alþjóðlegum markaði. Það skiptir máli fyrir heiminn allan að á Íslandi sé framleidd græn orka og því eðlilegt að við njótum ávinnings af því. Fjárhagslegur ávinningur Íslands er töluverður í þessu kerfi. Út frá markaðsvirði skírteinanna getur upphæðin sem íslenskir raforkuframleiðendur fá numið frá 0,5 – 5,5 milljörðum á ári. Árið 2018 voru hreinar tekjur af sölu íslenskra upprunaábyrgða í kringum 800 – 850 milljónir króna. Þar sem raforkuframleiðendur hér á landi eru að langstærstum hluta í eigu ríkisins hefur íslenskt samfélag beinan ávinning af sölu upprunaábyrgða og þessar umtalsverðu tekjur geta hjálpað til við að halda orkuverði hér lágu. Ávinningur fyrir íslensk fyrirtæki Upprunaábyrgðir fylgja með í raforkuverði til heimila á Íslandi og fyrirtækja á almennum markaði og ættu fleiri fyrirtæki að skoða hvers konar ávinning það gæti fært þeim á alþjóðlegum markaði. Vegna þátttöku okkar í kerfinu fá íslensk fyrirtæki aðgang að innlendum upprunavottunum, sem getur gefið samkeppnisforskot í heimi þar sem krafan um sjálfbæra virðiskeðju verður sífellt háværari. Fyrirtæki á Íslandi gætu ekki nýtt sér hreinleika orkunnar til að vekja athygli á sinni vöru nema með þátttöku í kerfinu um upprunaábyrgðir, því vottunina þarf til. Ávinningur fyrir loftslagið Kerfið um upprunaábyrgðir hefur engin áhrif á loftslagsmarkmið Íslands eða annarra landa, enda einungis hugsað til þess að búa til auka fjármagn til þeirra sem framleiða endurnýjanlega orku. Þetta fjármagn getur skipt sköpum fyrir fjárfestingar í nýjum umhverfisvænum orkukostum og hjálpar því til við að koma fleiri slíkum á koppinn. Og það skilar árangri. Upprunaábyrgðir eiga þátt í því að hlutfall endurnýjanlegrar orku í Evrópu fer hækkandi. Það eru góðar fréttir fyrir okkur öll. Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 7. nóvember 2019
5. nóvember 2019 Græn skírteini tækifæri til að hámarka virði orkunnar Fræðslufundur Samorku um upprunaábyrgðir, eða græn skírteini, var haldinn á Icelandair Hótel Natura mánudaginn 4. nóvember. Upptökur af erindum má finna í þessari frétt. Upprunaábyrgðir raforku urðu til sem liður í því að vinna á móti loftslagsbreytingum með því að vera fjárhagslegur hvati til að byggja upp græna orkukosti í Evrópu. Þau ganga út á það að gera hreinleika orku að sérstökum verðmætum og sjái einstaklingar eða fyrirtæki ávinning í því að segjast nota hreina orku þurfi að borga markaðsvirði fyrir það. Upprunaábyrgðir eru innifaldar í raforkuverði til heimila og fyrirtækja á almennum markaði á Íslandi og getur það verið tækifæri til samkeppnisforskots á markaði, vegna þess að viðskiptavinir verða sífellt meðvitaðri um virðiskeðju framleiðslunnar. Á fundinum tóku til máls Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs, Eyrún Guðjónsdóttir, sérfræðingur hjá Dóttir Consulting, Lovísa Árnadóttir upplýsingafulltrúi Samorku og Alexandra Münzer framkvæmdastjóri Greenfact. Fundarstjóri var Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóri Greininga hjá Íslandsbanka. Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs, var meðal framsögumanna á fundinum. Mynd: Eyþór Árnason Halldór fór yfir loftslagsmál og loftslagsaðgerðir í stóru myndinni í upphafi fundar. Hann sagði meðal annars í erindi sínu að þörf væri á að verðleggja aðgang að andrúmsloftinu m.a. með viðskiptum með losunarheimildir, kolefnisbindingar og skattlagningu losunar. Þá væri mikilvægt að ná fram beinum aðgerðum til að auka hlutdeild endurnýjanlegrar orku og grænu skírteinin séu liður í því. ,,Öll vegferðin fram að 2050 skiptir máli. Að gera ekkert er dýrasti valkosturinn. Við þurfum alla verkfærakistuna til að endurskapa orkukerfi,“ sagði Halldór. Eyrún Guðjónsdóttir hjá Dóttir Consulting Mynd: Eyþór Árnason Eyrún talaði um þátttakendur og virkni kerfisins upprunaábyrgðir raforku þar sem kom fram að kaupendur grænna skírteina séu heimili og fyrirtæki í Evrópu, sem sækist eftir því að nota græna raforku. Eftirspurn eftir endurnýjanlegri orku hefði aukist mikið, og þar með viðskipti með græn skírteini. Sagði hún að sífellt fleiri lönd taki þátt í kerfinu um upprunaábyrgðir og hlutfall endurnýjanlegrar orkuvinnslu væri hærra í þeim löndum, sem sýnir að kerfið virkar. „Það er mikilvægt fyrir fyrirtæki að vera með grænu skírteinin til að geta sýnt fram á stuðning sinn við uppbyggingu endurnýjanlegrar orku og geta notað það í sitt græna bókhald,“ sagði Eyrún á fundinum. Þá sagði hún að fyrirtæki í fjölmörgum geirum kaupi græn skírteini, bæði beint frá raforkuframleiðendum og í gegnum miðlara. Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi á Samorku, fjallaði um upprunaábyrgðir í íslensku samhengi. Mynd: Eyþór Árnason Lovísa talaði meðal annars um fjárhagslegan ávinning Íslands sem væri töluverður í þessu kerfi og að líta eigi á það sem tækifæri til að hámarka verðmæti þeirra orku sem hér er framleidd. ,,Það skiptir máli fyrir heiminn allan að á Íslandi sé framleidd græn orka og því eðlilegt að við njótum ávinnings af því.“ Út frá markaðsvirði skírteinanna getur upphæðin sem íslenskir raforkuframleiðendur fá numið frá 0,5 – 5,5 milljörðum á ári, en árið 2018 voru tekjurnar af sölunni í kringum 800 – 850 milljónir króna. Í erindi hennar kom fram að sala grænna skírteina á Íslandi hefði engin áhrif á skuldbindingar Íslands eða annarra landa í loftslagsmálum og á Íslandi sé áfram framleidd raforka með endurnýjanlegum hætti. Alexandra Münzer frá Greenfact, greiningafyrirtæki sem sérhæfir sig í markaði um upprunábyrgðir í Evrópu, fór yfir hvernig markaðurinn virkar og hvernig verð grænna skírteina hefur þróast í gegnum tíðina. Alexandra Münzer frá Greenfact greiningarfyrirtækinu fjallaði um markaðinn með upprunaábyrgðir Upptökur: Alþjóðlegar loftslagsaðgerðir og græn skírteini – Halldór Þorgeirsson from Samorka on Vimeo. Kerfið um græn skírteini: Virkni og þátttakendur – Eyrún Guðjónsdóttir from Samorka on Vimeo. The Wholesale Market for Guarantees of Origin – Alexandra Münzer from Samorka on Vimeo. Eggert Benedikt Guðmundsson og Kamma Thordarson frá Grænvangi. Fundurinn var vel sóttur. Birta Kristín Helgadóttir Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóri Greininga Íslandsbanka stýrði fundinum. Gestir fundarins, meðal annars Páll Erland framkvæmdastjórji Samorku. Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar Halldór Þorgeirsson og Eggert Benedikt Guðmundsson á spjalli í lok fundar. Upptaka af fundinum í heild sinni: Dafnandi græn orka – fræðslufundur um upprunaábyrgðir raforku from Samorka on Vimeo.
3. nóvember 2019 Upprunaábyrgðir raforku: Fræðslufundur Samorka býður til fræðslufundar um upprunaábyrgðir raforku, eða græn skírteini eins og þau eru oft kölluð. Tilgangur fundarins er að fjalla um tilurð og markmið kerfisins um upprunaábyrgðir, af hverju Ísland tekur þátt í því og hvaða ávinning þátttakan getur haft fyrir Ísland og raforkukaupendur hér á landi. Fundurinn hefst kl. 14 á Icelandair Hótel Natura og gert er ráð fyrir að hann standi í um 90 mínútur. Allir eru velkomnir á fundinn en skráningar er óskað. Þá verður fundinum einnig streymt á vef Samorku. Dagskrá: Alþjóðlegar loftslagsaðgerðir og græn skírteini – Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs Kerfið um græn skírteini: Virkni og þátttakendur – Eyrún Guðjónsdóttir, sérfræðingur hjá Dóttir Consulting Upprunaábyrgðir í íslensku samhengi – Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku Renewable Energy Certificates: The Wholesale Market for Guarantees of Origin – Alexandra Münzer, framkvæmdastjóri Greenfact Fundarstjóri: Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóri Greiningar Íslandsbanka
3. nóvember 2019 Tómas Már ráðinn forstjóri HS Orku Tómas Már tekur við forstjórastól HS Orku um áramót. Tómas Már Sigurðsson hefur verið ráðinn forstjóri HS Orku. Mun hann taka við starfinu frá og með næstu áramótum. . Tómas Már hefur starfað um árabil hjá Alcoa, þar sem hann gegndi stöðum forstjóra Alcoa á Íslandi, í Evrópu og Mið-Austurlöndum, og nú síðast frá 2014 stöðu aðstoðarforstjóra fyrir Alcoa Corporation. Áður starfaði Tómas sem framkvæmdastjóri tæknisviðs hjá Norðuráli. Tómas Már er menntaður umhverfisverkfræðingur frá Háskóla Íslands og með meistarapróf í skipulagsverkfræði frá Cornell-háskólanum í New York. Hann hefur setið í fjölda stjórna og var m.a. formaður Viðskiptaráðs frá 2009-2012, sat í stjórn Samtaka iðnaðarins frá 2005-2011 og hefur verið í stjórn evrópskra álframleiðenda frá 2012.
25. október 2019 Nýsköpun í hitaveitu verðlaunuð Verðlaunahafar saman á sviðinu Alþjóðlegu hitaveituverðlaunin Global District Energy Climate Awards voru afhent í sjötta sinn á Hilton Reykjavík Nordica í gær, samhliða ráðstefnunni Sustainable District Energy Conference. Samtökin Euroheat and Power standa fyrir verðlaununum og í þetta sinn í samstarfi við voru vinningshafar valdir í samstarfi við Alþjóðaorkumálastofnunina (IEA) og markmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbærar borgir og samfélög. Fjölmargar tilnefningar bárust alls staðar að úr heiminum sem áttu allar það sameiginlegt að vera framlag til að bæta hitaveitu í nærsamfélagi sínu og skipta yfir í endurnýjanlega orku úr jarðefnaeldsneyti til að hita eða kæla húsnæði. Fimm hitaveituverkefni voru verðlaunuð og tóku fulltrúar fyrirtækjanna við verðlaununum við hátíðlega athöfn í gær. Nánari upplýsingar um verkefnin og verðlaunahafana má sjá á heimasíðu Euroheat and Power.
24. október 2019 Framtíð og möguleikar hitaveitu á SDEC 2019 í Reykjavík Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, ávarpaði ráðstefnugesti við opnun hennar í morgun. Alþjóðlega hitaveituráðstefnan SDEC 2019, Sustainable District Energy Conference, var sett á Hilton Reykjavik Nordica í morgun. Ráðstefnan fer fram í fyrsta skipti hér á landi en tilgangur hennar er að vera samstarfsvettvangur Evrópuþjóða í rannsóknum og þróun á endurnýjanlegum orkugjöfum. Samorka, samtök orku- og veitufyrirtækja á Íslandi heldur ráðstefnuna í samstarfi við íslenska orkuklasann. Samhliða ráðstefnunni verða verðlaunin Global District Energy Climate Awards veitt í sjötta skipti. Verðlaunin eru veitt þeim sem þykja skara framúr í vinnslu og nýtingu á endurnýjanlegri orku. Það eru samtökin Euroheat & Power og EGEC (European Geothermal Energy Concil) sem standa að verðlaununum en bæði samtökin hafa það að markmiði að auka samkeppnishæfni endurnýjanlegra orkugjafa. Orkan sem fer í húshitun er um 50% allrar orkunotkunar í löndum Evrópusambandins og ríður því á að skipta út jarðefnaeldsneyti í endurnýjanlega orkugjafa til að kynda og kæla húsnæði. Ráðstefnan er vettvangur fyrir umræðu um hvernig skal unnið að því, fjármögnun verkefna á sviði hitaveitu og tæknilegar útfærslur. Umfangsmikil dagskrá er í boði um stöðu og framtíðarmöguleika hitaveitu í heiminum, en dagskrána má finna á heimasíðu ráðstefnunnar. Páll Erland, framkvæmdastjóri Samorku á SDEC 2019 Ráðstefnugestir á opnunarmálstofu SDEC 2019
24. október 2019 Orkusalan framúrskarandi fyrirtæki Aðstandendur Orkusölunnar Hafliði Ingason sölustjóri, Magnús Kristjánsson framkvæmdastjóri og Heiða Halldórsdóttir markaðsstjóri taka við viðurkenningu Creditinfo fyrir framúrskarandi fyrirtæki Orkusalan er framúrskarandi fyrirtæki árið 2019. Framúrskarandi fyrirtæki byggja rekstur sinn á sterkum stoðum og efla hag fjárfesta og hluthafa. 2% íslenskra fyrirtækja ná markmiðum Creditinfo um framúrskarandi fyrirtæki árið 2019 og því um ánægjulega viðurkenningu að ræða. Árlega vinnur Creditinfo greiningu á rekstri íslenskra fyrirtækja og veitir Framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur. Listinn var nú unninn í tíunda sinn og kynntur í Hörpu þann 23. október.
10. október 2019 Umhverfisverðlaun atvinnulífsins til Brims og Krónunnar Umhverfisfyrirtæki ársins er Brim en framtak ársins á sviði umhverfismála á Krónan. Umhverfisverðlaun atvinnulífsins voru afhent við hátíðlega athöfn á Umhverfisdegi atvinnulífsins miðvikudaginn 9. október. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhenti verðlaunin. Aðstandendur fyrirtæksisins Brim taka við verðlaununum fyrir Umhverfisfyrirtæki ársins Gréta María Grétarsdóttir framkvæmdastjóri Krónunnar tekur við verðlaununum fyrir Umhverfisframtak ársins frá forseta Íslands og Rögnu Söru Jónsdóttur, formanni valnefndar
8. október 2019 Bein útsending frá Umhvefisdegi atvinnulífsins Umhverfisdagur atvinnulífsins er haldinn í fjórða sinn miðvikudaginn 9. október í Hörpu. Um árlegan viðburð er að ræða en að honum standa Samtök atvinnulífsins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu. Dagskrá samtakanna hefst kl. 8.30 og stendur til að verða 10 þegar gert verður kaffihlé. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhendir m.a. Umhverfisverðlaun atvinnulífsins 2019, fyrirtækjum sem hafa staðið sig vel í umhverfismálum. Veitt verða tvenn verðlaun. Annars vegar verður umhverfisfyrirtæki ársins og hins vegar framtak ársins verðlaunað. Dagskráin heldur áfram meðal annars með hvetjandi sögum af fyrirtækjum kl. 10.30 og stendur til kl. 12. Hér er hægt að fylgjast með beinni útsendingu frá fundinum (útsendingin virkjast kl. 7 að morgni miðvikudags) DAGSKRÁ FYRRI HLUTA Setning Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins Samstarfsvettvangur atvinnulífs og stjórnvalda um loftslagsmál og grænar lausnir Unnur Brá Konráðsdóttir, formaður samstarfsvettvangsins Umhverfismál og auðlindanýting á Norðurslóðum Heiðar Guðjónsson, formaður Efnahagsráðs Norðurskautsins Loftslagsbreytingar, lífríki hafsins og auðlindir Jens Garðar Helgason, formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Tækifæri og áskoranir vegna loftslagsbreytinga Brynjólfur Stefánsson, sjóðstjóri hjá Íslandssjóðum Umhverfisverðlaun atvinnulífsins 2019 Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhendir verðlaunin Valnefnd verðlaunanna skipuðu Ragna Sara Jónsdóttir, Bryndís Skúladóttir og Sigurður M. Harðarson Kaffihlé kl. 10-10.30 DAGSKRÁ SEINNI HLUTA Jákvæðar fyrirmyndir Októ Einarsson, stjórnarformaður Ölgerðarinnar Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar Þorsteinn Jóhannesson, framkvæmdastjóri Farfugla Úrgangsmál, samkeppni og hringrásarhagkerfið Bryndís Skúladóttir, verkfræðingur hjá VSÓ Orkuskipti í flutninga- og hópferðabílum Jón Björn Skúlason, framkvæmdastjóri Íslenskrar Nýorku Aðlögun að loftslagsbreytingum Gestur Pétursson, framkvæmdastjóri Veitna ohf. 12.00 Súpa, spjall og netagerð Fundarstjóri er Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku.
7. október 2019 Kristín Linda Árnadóttir nýr aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar Kristín Linda Árnadóttir Kristín Linda Árnadóttir hefur verið ráðin aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar. Kristín Linda hefur verið forstjóri Umhverfisstofnunar frá árinu 2008. Þar áður gegndi hún starfi sviðsstjóra lögfræði- og stjórnsýslusviðs stofnunarinnar og var staðgengill forstjóra. Hún starfaði sem lögfræðingur í umhverfisráðuneytinu á skrifstofu laga og upplýsingamála frá 1998 til 2007. Kristín Linda lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1998, meistaranámi í alþjóðlegum umhverfisfræðum (LUMES) frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð árið 2002 og LL.M. meistaragráðu í Evrópurétti við lagadeild Háskólans í Lundi árið 2003. Hún hefur lagt stund á stjórnunarnám við Saïd Business School í Oxford háskóla. Kristín var jafnframt um tíma stundakennari og prófdómari í námskeiðum í umhverfisrétti við háskólastofnanir á Íslandi. Kristín Linda hefur tekið þátt í ýmsu alþjóðasamstarfi á vettvangi umhverfismála. Meðal annars sem fulltrúi Íslands í evrópsku neti ábyrgðaraðila á innleiðingu vatnatilskipunar Evrópusambandsins, evrópsku neti forstjóra evrópskra umhverfisstofnana, fulltrúi Íslands í stýrihópi um norræna umhverfismerkið Svaninn og stýrir nú vinnuhópi í Norðurskautsráðinu sem vinnur að því að draga úr losun sóts og metans (EGBMC) á norðurslóðum.