10. mars 2022 Aukavél bætt við vegna Samorkuþings Icelandair hefur bætt við flugi til og frá Akureyri vegna Samorkuþings. Fullbókað var orðið í hefðbundið áætlunarflug og því hefur verið brugðist við. Icelandair hefur bætt við vél sem fer frá Reykjavík kl. 8.30 mánudagsmorguninn 9. maí og frá Akureyri þriðjudaginn 10. maí kl. 17.30. Dagskrá hefst kl. 10 á mánudeginum og lýkur um kl. 16 á þriðjudeginum, svo þessar tímasetningar passa mjög vel fyrir Samorkuþingsgesti. Við hvetjum alla þá sem ætla sér að fljúga norður vegna þingsins að tryggja sér sæti sem fyrst. Hér má skrá sig á þingið: Nafn Fyrirtæki Netfang (required) Vinsamlegast hakið í allt sem við á: Ég mæti á Samorkuþing 2022 - 49.000 kr. Sýnendur hakið hér í stað efra box Ég mæti á netagerð fyrir nýliða og ungt fólk í geiranum á Bryggjunni - ókeypis Hátíðarkvöldverður - 17.900 kr. Hátíðarkvöldverður maka - 17.900 kr. Ég vil grænkeramáltíð Maki vill grænkeramáltíð Makaferð - 12.500 kr. Nafn maka (fyrir nafnspjald) Skrá mig Δ
7. febrúar 2022 Tilnefningar óskast til Nýsköpunarverðlauna Samorku 2022 Nýsköpun hefur ávallt verið stór hluti af orku- og veitugeiranum á Íslandi og hefur ný þekking og framsýni lagt grunninn að lífsgæðum í landinu og verðmætasköpun. Samorka óskar eftir tilnefningum til Nýsköpunarverðlauna Samorku, sem afhent verða á ársfundi samtakanna 15. mars. Þetta er í annað sinn sem verðlaunin verða afhent. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, vísinda- og nýsköpunarráðherra, afhendir verðlaunin. Samorka leitar að framúrskarandi nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum sem byggja á: Tæknilausnum fyrir orku- og veitugeirann eða þjónustu við orku- og veitufyrirtækiNýtingu orku, heits vatns, neysluvatns eða fráveitu og/eða annarra auðlindastrauma til nýsköpunar Dómnefnd fagfólks úr orku- og veitugeiranum mun velja úr þeim tilnefningum sem berast. Fyrirtækjum er velkomið að tilnefna sig sjálf. Óskað er eftir að greinargerð sé skilað að hámarki tvær A4 blaðsíður þar sem rökstutt er hvers vegna viðkomandi fyrirtæki er tilnefnt og hvernig það uppfyllir viðmiðin sem liggja til grundvallar. Orku- og veitufyrirtækin í landinu standa að Nýsköpunarverðlaununum og verða því ekki á meðal verðlaunahafa. Tilnefningar sendist á samorka@samorka.is fyrir 24. febrúar. Farið verður með tilnefningarnar sem trúnaðarmál. Laki Power hlaut Nýsköpunarverðlaun Samorku þegar þau voru afhent í fyrsta sinn árið 2021.
27. janúar 2022 Ný greining staðfestir spá um orkuskort Ný greining Landsnets um afl- og orkujöfnuð staðfestir þá niðurstöðu frá sambærilegri greiningu sem unnin var 2019 að orkuskortur verði viðvarandi vandamál á Íslandi næstu árin ef ekki verður brugðist skjótt við. Þetta byggir á þeirri spá um þróun eftirspurnar eftir raforku sem birt er í Raforkuspá Orkustofnunar og þeirri þróun í framleiðslu orku sem orðið hefur á síðustu árum og er fyrirsjáanleg yfir tímabil greiningarinnar sem nær til ársins 2026. Þetta er niðurstaðan þrátt fyrir að nýjasta Raforkuspá geri ráð fyrir lægra álagi en sú sem miðað var við í greiningunni árið 2019 vegna áhrifa heimsfaraldursins. Líkur á aflskorti eru undir viðmiðum Landsnets á þessu ári en fara hækkandi eftir það. Þetta þýðir að ekki verði hægt að sinna eftirspurn eftir raforku yfir háálagstíma og skerði þurfi notendur í vaxandi mæli. Til að bregðast við þessari stöðu þurfa því að koma til nýjar orkuframleiðslueiningar, orkusparnaður t.d. með minnkun tapa, bætt nýting á núverandi virkjunum með uppbyggingu flutningskerfis eða þá með því að markvisst að draga úr raforkunotkun í kerfinu. Hvort sem ákveðið verður að fara eina leið fram yfir aðra eða ákveðið að gera allt sem að ofan er talið er mikilvægt að brugðist sé skjótt við til að lágmarka fjárhagslegt tjón sem hlýst af orkuskerðingum og losun gróðurhúsalofttegunda vegna brennslu jarðefnaeldsneytis. Áætlanir hjá Landsneti um uppbyggingu flutningskerfisins hafa undanfarin ár tekið mið af þessari stöðu og miðast þær við að hægt verði að hámarka nýtingu virkjana á næstu árum, auðvelda tengingu nýrra orkuframleiðslueininga, auk þess að ná fram orkusparnaði með minnkandi töpum í flutningskerfinu. Að mati Landsnets er mikilvægt að uppbygging nýrrar kynslóðar byggðalínu gangi eftir áætlunum og óskilvirk ferli verði ekki til þess að tefja þjóðhagslega mikilvægar framkvæmdir. Skýrsluna má sjá hér.
14. desember 2021 Hlutfall kvenna hækkar í orkugeiranum Hlutfall kvenkyns stjórnarformanna hefur farið úr 25% í 58% á aðeins fjórum árum í orkugeiranum á Íslandi. Þá hefur hlutfall kvenkyns framkvæmdastjóra hækkað um 10% á tveimur árum og er nú 46%. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Kvenna í orkumálum sem var gefin út í dag. Félagið Konur í orkumálum gefur út skýrslu um stöðu kvenna í orkugeiranum á Íslandi á tveggja ára fresti. Skýrslan, sem unnin er af EY, varpar ljósi á stöðu kvenna í orkugeiranum á Íslandi, sem löngum hefur verið karllægur. Það er þó að breytast. Ný skýrsla kom út í þriðja sinn í gær og var kynnt í Grósku við það tilefni. Í henni kemur meðal annars fram að á tveimur árum hefur kvenkyns framkvæmdastjórum í orkugeiranum fjölgað um 10% og að 58% stjórnarformanna orkufyrirtækja eru nú konur. Hlutfall kvenna í stöðum forstjóra, deildarstjóra og meðstjórnenda lækkar, en á sama tíma fjölgar konum í almennum stöðugildum í orkugeiranum á Íslandi og er nú 27%. Ákvörðunarvald liggur hjá konum í 36% tilfella í orkugeiranum hér á landi, samanborið við 30% í fyrstu skýrslunni sem kom út. Harpa Þórunn Pétursdóttir formaður KíO: „Það er mjög ánægjulegt að sjá svona miklar breytingar á skömmum tíma í orkugeiranum hvað varðar ákvörðunarvald kvenna. En það er enn verk fyrir höndum. Það er áhyggjuefni að sjá skref tekin afturábak á sumum sviðum og sem fyrr er það stórt verkefni að jafna hlut kvenna í almennum stöðugildum í íslenska orkugeiranum.“ Harpa Pétursdóttir, formaður Kvenna í orkumálum. Hún segir skýrslu KíO veita aðhald í þessum málaflokki. „Við vonum að niðurstöður skýrslunnar hafi jákvæð áhrif á þróunina frá ári til árs og að þær séu hvatning til fyrirtækja í geiranum til að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að leiðrétta kynjahlutfall á öllum sviðum. Aukin fjölbreytni leiðir til betri stjórnunar og ákvörðunartöku.“ Athygli vekur að konur eru aðeins 8% forstjóra í orkugeiranum á Íslandi, eða ein kona hjá þeim tólf fyrirtækjum sem liggja til grundvallar skýrslunni. Harpa segir að þetta hlutfall verði að bæta. „Á næstu árum er mikilla breytinga að vænta í forstjórastöðum í orkugeiranum og þá verður einfaldlega að laga hlutfall kvenna.“ Skýrsluna má sjá hér: https://issuu.com/konuriorkumalum/docs/kio_skyrsla_2021_final_b Skýrslan var styrkt af: Orkuveitu Reykjavíkur, Landsvirkjun, HS Orku, Norðurorku, RARIK og Samorku.
10. desember 2021 Óskað eftir tilnefningum til Menntaverðlauna 2022 Menntaverðlaun atvinnulífsins verða afhent í Hörpu miðvikudaginn 2. febrúar 2022. Óskað er eftir tilnefningum um fyrirtæki sem hafa staðið sig vel á sviði fræðslu- og menntamála fyrir 21. desember nk. Verðlaun eru sem fyrr veitt í tveimur flokkum, menntafyrirtæki og menntasproti ársins 2022, en fyrirtæki sem tilnefnd eru verða að uppfylla ákveðin viðmið. Helstu viðmið fyrir menntafyrirtæki ársins eru: • að skipulögð og markviss fræðsla sé innan fyrirtækisins• að sem flest starfsfólk taki virkan þátt• að haldið sé utan um mælikvarða í fræðslumálum• að hvatning sé til staðar til frekari þekkingaröflunar Helstu viðmið vegna menntasprota ársins eru: • að lögð sé stund á nýsköpun í menntun og fræðslu-innan fyrirtækis og/eða í samstarfi fyrirtækja• samstarf fyrirtækja og samfélags um eflingu fræðslu-innan sem utan fyrirtækja Fyrirtækjum er velkomið að tilnefna sig sjálf en skýr og skipulögð gögn hjálpa dómnefnd að meta verkefni. Vinsamlega skilið greinargerð, að hámarki þrjár A4 blaðsíður þar sem rökstutt er hvers vegna viðkomandi fyrirtæki er tilnefnt og hvernig það uppfyllir viðmiðin sem liggja til grundvallar. Tilnefningar og fylgiskjöl sendist rafrænt í tölvupósti á verdlaun@sa.is – eigi síðar en þriðjudaginn 21. desember nk. Ekki er tekið við tilnefningum eða gögnum eftir þann tíma. Verðlaunin verða veitt á Menntadegi atvinnulífsins 2. febrúar 2022 en þetta er í níunda sinn sem dagurinn er haldinn.
8. desember 2021 Orkuskipti á hafi möguleg fyrir árið 2050 Mögulegt er að orkuskipti innlenda skipaflotans verði um garð gengin fyrir árið 2050. Til þess að það geti gerst þarf að tryggja framleiðslu og innviði fyrir rafeldsneyti og öflug stefnumótun að vera til staðar frá stjórnvöldum, með stuðningi við fjárfestingar, skattalegum hvötum og skýrum kröfum um vaxandi hlutfall grænnar orku í stað jarðefnaeldsneytis. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri skýrslu sem norska ráðgjafafyrirtækið DNV gerði fyrir Samorku, Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og Faxaflóahafnir. Fram kemur í skýrslunni að þrátt fyrir að rafhlöður séu ávallt besti kosturinn í nýtingu á hreinni orku, þá muni þær fyrst og fremst nýtast þar sem vegalengdir eru stuttar. Þegar kemur að stærri skipum verði útgerðir þeirra að reiða sig á rafeldsneyti eins og til dæmis ammoníak, vetni eða metanól. Reiknað er með að tæknin til að nýta rafeldsneyti á skip verði aðgengileg, í mismiklum mæli, í kringum árið 2030. Ráðandi orkugjafar verði að öllum líkindum ammóníak og metanól. Til að framleiða það rafeldsneyti sem þarf til að klára orkuskipti í haftengdri starfsemi er áætlað að árlega þurfi um 3.500 GWh (3.5 TWh) af raforku miðað við eldsneytisspá Orkustofnunar fyrir árið 2050. Það er tæplega 20% þeirrar raforku sem framleidd er í dag. Gunnar Tryggvason sviðsstjóri viðskipta hjá Faxaflóahöfnum, Benedikt Sigurðsson upplýsingafulltrúi SFS, Páll Erland framkvæmdastjóri Samorku, Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og Lovísa Árnadóttir upplýsingafulltrúi Samorku og fundarstjóri. Páll Erland framkvæmdastjóri Samorku: „Niðurstöður skýrslunnar sýna er að orkuskipti á hafi eru möguleg og það er ánægjuleg framtíðarsýn að geta keyrt skipaflota framtíðarinnar á grænni orku sem unnin er úr vatnsafli, jarðvarma og vindi. Það er meira spurning um hvenær tæknin leyfir það og hversu hratt við náum árangri í þessu stóra verkefni. Auk þess sýna niðurstöðurnar að orkuskipti á hafi kalla á að næg græn orka sé til og traustir innviðir séu til staðar um allt land, eins og fyrir önnur orkuskipti.“ Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS: „Það er mjög jákvætt að vera komin með ítarlega greiningu á mögulegum orkuskiptum á hafi – hver staðan er, hvar tækifærin liggja og, ekki síst, hvaða hindranir mæta okkur. Það er ekki síður gagnlegt og mikilvægt að vinna þetta á breiðum grundvelli. Það er einmitt svona sem þarf að vinna þessi mál – á breiðum grundvelli, með samstarfi stjórnvalda og atvinnulífs.“ Gunnar Tryggvason, sviðsstjóri viðskipta hjá Faxaflóahöfnum: „Orkuskipti á hafi eru stórt viðfangsefni og skýrslan vísar okkur veginn inn í næstu skref. Niðurstöður hennar eru raunsæisákall um að grípa þurfi til aðgerða strax til að ná 10% markmiðinu um grænt eldsneyti í haftengdri starfsemi árið 2030.“ Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, ávarpaði fundinn og fagnaði góðu samstarfi stjórnvalda og atvinnulífs við gerð skýrslunnar. Í niðurstöðum hennar væru nokkrar sviðsmyndir sem hægt væri að rýna og vinna áfram með í því stóra og spennandi viðfangsefni sem orkuskipti eru. Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra á fundinum í morgun. Meðfylgjandi er skýrslan í heild sinni þar sem sjá má ítarlegar forsendur og niðurstöður. Einnig er íslensk þýðing á inngangi og stuttri samantekt. Decarbonization Icelandic Maritime Sector Þýðing DNV Upptaka af fundinum:
23. nóvember 2021 Desemberfundur sleginn af Í ljósi þeirrar viðkvæmu stöðu sem Covid-faraldurinn er í um þessar mundir hefur verið ákveðið að slá Desemberfund Samorku af að þessu sinni. Við vonumst til að geta hóað öllum saman með tíð og tíma.
25. október 2021 Ný hitaveita Hornafjarðar formlega tekin í notkun Mikilvægt framfaraskref fyrir byggðina í Hornafirði var stigið á dögunum þegar Hitaveita Hornafjarðar var formlega tekin í notkun. Lagningu nýrrar hitaveitu fyrir Höfn og hluta Nesja er nú að ljúka. Heitu vatni frá jarðhitasvæðinu í Hoffelli var hleypt á stærstan hluta Hafnar síðastliðinn vetur en nú hefur dreifikerfi verið lagt í þann hluta sem áður var með beina rafhitun. Nú eiga því allir íbúar Hafnar möguleika á því að tengjast hitaveitunni. Hluti hópsins við borholuhús RARIK í Hoffelli. Síðustu áratugi hefur verið rekin kyndistöð og dreifikerfi fyrir rafkynta hitaveitu á Höfn og voru ¾ húsa í bænum tengd veitunni sem notaði ótryggða raforku en olíu til vara til að hita upp vatn sem nýtt var í dreifikerfi veitunnar. Síðustu ár hefur verð á ótryggðri raforku hækkað verulega og framboð á henni verið mikilli óvissu háð. Því var forsenda fyrir óbreyttum rekstri fjarvarmaveitunnar ekki lengur fyrir hendi. Matthildur Ásmundsdóttir bæjarstjóri, Benedikt Árnason ráðuneytisstjóri og Tryggvi Þór Haraldsson forstjóri RARIK. Hitaveita Hornafjarðar er í eigu RARIK sem hefur sett mikla vinnu og fjármuni í leit að heitu vatni á undanförnum árum. Skipulögð leit að virkjanlegum jarðhita í Austur Skaftafellssýslu hefur staðið yfir frá því upp úr 1990 og hafa verið boraðar samtals 54 rannsóknaholur og fimm 1100 til 1750 metra djúpar vinnsluholur í landi Hoffells. Frá 1992 til 2002 kostuðu sveitarfélagið Hornafjörður og Orkustofnun jarðhitaleitina en RARIK kom að verkefninu 2002. Fram til 2006 voru boraðar 33 rannsóknaholur en eftir að RARIK keypti jarðhitaréttindin í Hoffelli 2012 hefur verið boruð 21 rannsóknahola til viðbótar og áðurgreindar fimm vinnsluholur. Nánari upplýsingar um nýju hitaveituna í Hornafirði má sjá á heimasíðu RARIK.
20. október 2021 Orkufyrirtækin gera samstarfssamning um varnir gegn netglæpum Aðildarfyrirtæki Samorku, samtök orku- og veitufyrirtækja, sem eiga aðild að netöryggisráði Samorku og norska fyrirtækið KraftCert hafa gert með sér samstarfssamning um varnir og viðbúnað fyrir netöryggi. Netöryggi er ein stærsta áskorun stjórnenda í dag og samstarfið styrkir orku- og veitufyrirtæki landsins enn frekar í baráttunni gegn stafrænum glæpum. Aðildarfyrirtæki Samorku flokkast undir mikilvæga innviði sem samfélagið allt reiðir sig á. Því er áríðandi að innan þeirra sé hugað vel að netöryggi svo hægt sé að verjast mögulegum tölvuárásum á orkukerfi landsins. Innan Samorku hefur verið starfrækt Netöryggisráð í nokkur ár sem samanstendur af sérfræðingum frá stærstu aðildarfyrirtækjum samtakanna. Með samstarfinu við KraftCert verður netöryggi styrkt enn frekar á vettvangi orkugeirans. Markmið samstarfsins er að auka áfallaþol byggt á áhættumati og áhættugreiningum sem varða net- og upplýsingaöryggi fyrirtækjanna. Samningurinn felur í sér varnir og viðbúnað gegn netglæpum og upplýsingaöryggi. Einnig felur hann í sér þjálfun, æfingar og rekstrarráðgjöf þegar kemur að netöryggi orku- og veitufyrirtækja á Íslandi. KraftCert var stofnað árið 2014 af stærstu orkufyrirtækjunum í Noregi og er sjálfstætt félag sem ekki er rekið í hagnaðarskyni. Félagið er leiðandi fyrirtæki í netöryggismálum, viðbrögðum og vörnum gegn netglæpum í heiminum. Þar að auki hefur KraftCert viðtæka sérþekkingu á netöryggi orku- og veitufyrirtækja og er því ávinningurinn á samstarfssamningum mikill fyrir íslensk orku- og veitufyrirtæki og geri þeim kleift að vera hluti af alþjóðlegu samstarfi þegar kemur að netöryggismálum.
18. október 2021 Tölum um orkuþörf Páll Erland skrifar: Samkvæmt orkustefnu sem unnin var í þverpólitísku samstarfi á Ísland að verða jarðefnaeldsneytislaust árið 2050. Það er metnaðarfullt markmið sem myndi halda okkur fremst í röð þjóða heims í loftslagsmálum. Umræðan um orkuskipti snýst því ekki eingöngu um að skipta bílaflota landsmanna út fyrir rafbíla, heldur um að við hættum alfarið að nota jarðefnaeldsneyti á öllum sviðum samfélagsins. Það væru góðar fréttir fyrir umhverfið og loftslagið að ná þessu markmiði. Jarðefnaeldsneytislaust Ísland sparar mikinn útblástur sem svo býr til betri lífsskilyrði fyrir fólk, dýr og náttúru. Að auki er það eftirsóknarvert því það sparar mikinn gjaldeyri sem myndi annars fara í að borga fyrir eldsneytið sem við flytjum inn. Þá eru ótalin tækifærin til að búa til nýjar tekjur fyrir þjóðarbúið með því að framleiða grænt rafeldsneyti til útflutnings. Óhjákvæmilegt er að ræða hver orkuþörfin er fyrir orkuskipti og jarðefnaeldsneytislaust Ísland og hvaðan græna orkan sem á að koma í stað jarðefnaeldsneytis eigi að koma. Markmiðin hafa verið sett og nú er tíminn fyrir málefnalega umræðu um hvernig þeim verður náð. Það er jákvætt að forsvarsfólk í orku- og veitumálum, sem þekkir vel til málaflokksins og stýrir fyrirtækjum sem leggja sig fram við að þjóna samfélaginu öllu, setji fram sjónarmið um samspil markmiða stjórnvalda og orkuþarfar. Á það jafnt við um tölulegar staðreyndir, reynslu af því laga- og reglugerðarumhverfi sem gildir um orkumál og hvernig unnt sé að ná markmiðunum innan þess tímaramma sem settur hefur verið. Um er að ræða mikilvægt innlegg í upplýsta samfélagsumræðu. Orku- og veitufyrirtæki landsins hafa það hlutverk, ásamt stjórnvöldum, að stuðla að orkuöryggi og þar með nægu framboði af rafmagni og heitu vatni fyrir samfélagið – ekki bara núna, heldur til allrar framtíðar. Þau viðfangsefni sem blasa við eru fjölmörg; dafnandi samfélag sem kallar á sífellt meiri orku fyrir heimili og fyrirtæki, vaxandi þörf fyrir útflutningstekjur og vel launuð störf, græna nýsköpun, orkuskipti í samgöngum til að uppfylla Parísarsamninginn fyrir 2030 og svo jarðefnaeldsneytislaust Ísland fyrir 2050. Verkefnið er að uppfylla þörf fyrir græna orku sem þetta kallar á með sem minnstum áhrifum á landið okkar. Lausnin felst í orkusparnaði, bættri orkunýtni, öflugri orku- og veituinnviðum og aukinni framleiðslu grænnar orku. Vinnum þetta saman. Höfundur er framkvæmdastjóri Samorku. Greinin birtist fyrst á visir.is þann 13. október 2021.