Evrópuþingið mótar afstöðu til „European Grids Package“

Afstaða Evrópuþingsins til „European Grids Package“ liggur væntanlega fyrir núna á fimmtudaginn, 10. september þegar orkunefnd þingsins greiðir atkvæði um þessa stefnumótun og aðgerðir til að efla flutnings- og dreifikerfi raforku í álfunni. Atkvæðagreiðslan er liður í því að helstu stofnanir ESB – Evrópuþingið, framkvæmdastjórnin og ráðherraráðið (Council) nái samkomulagi. Tillögurnar og fyrirhuguð lagasetning hefur tengingu við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið (EEA-relevance) og skiptir því máli fyrir íslenska hagsmuni.

Framkvæmdastjórn ESB kynnti tillögurnar í desember í fyrra en þær fela m.a. í sér breytingar á tilskipunum sambandsins. Markmiðið er að allir hlutar Evrópu uppskeri ávinning af orkubyltingunni með ódýrari og hreinni orku, minna þurfi að treysta á innflutt jarðefnaeldsneyti, orkuöryggi aukist og sömuleiðis viðnám gegn verðsveiflum.

Politico segir frá því að Evrópuþingið vilji miðlægara og gagnsærra kerfi til að skipuleggja og hrinda í framkvæmd þessum stóra pakka en ráðherrar (Council) telja að aðildarríki ESB eigi að hafa stærra hlutverk, a.m.k. á sumum sviðum.  „European Grids Package“ felur m.a. í sér að hraða og einfalda leyfisveitingar til að byggja upp flutningskerfið. Leggja þarf í gríðarlegar fjárfestingar til að ná þeim markmiðum sem sett hafa verið. Írar fara með forsæti í ráðherraráðinu (Council) til áramóta og Politico segir að þeir þurfi að hafa sig alla við til að ná niðurstöðu sem framkvæmdastjórnin og Evrópuþingið geti einnig sætt sig við.

Samorka hefur fylgst grannt með þessu máli enda hafa breytingar á löggjöf og reglum ESB áhrif á starfsumhverfi íslenskra orku- og veitufyrirtækja þegar þær eru teknar upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið (EES) og innleiddar í íslenska löggjöf.

Myndirnar sem fylgir fréttinni eru frá Króatíu og einnig frá Kembs raforkuverinu í ánni Rín.