Öflug heitavatnshola í Áshildarmýri á Skeiðum

Eigendur Hitaveitu Kílhrauns í Áshildarmýri á Skeiðum eru í sjöunda himni eftir að mikið af heitu vatni fannst í landi þeirra. Ný vinnsluhola gefur um 50 lítra á sekúndu af 80°C heitu vatni samkvæmt fyrstu mælingum. Jarðfræðingar ÍSOR staðsettu holuna en hún var boruð með jarðbornum Trölla frá Ræktunarsambandi Flóa og Skeiða og er 792 metra djúp. Borstjóri var Johnny Símonarson. ÍSOR hefur komið að jarðhitaleit í landi Kílhrauns frá upphafi en hún hófst fyrir um áratug  

„Þetta var alveg draumur að fá svona heitt vatn upp og mikinn kraft. Þetta hefur þá þýðingu að það eru upp undir 300 lóðir hérna í kringum okkur sem byggja náttúrlega á svona afkomu, að fá heitt vatn upp og geta boðið upp á heitt vatn til búsetu,” sagði Hlynur Árnason, einn eigenda hitaveitunnar, í viðtali við RUV.

„Nú erum við komin með góða auðlind hérna fyrir svæðið. Við erum með, hugsa ég, vatn sem myndi duga fyrir heilt sveitarfélag eins og Skeiða- og Gnúpverjahrepp. Ég held að við höfum bara dottið hér í lukkupottinn á svæðinu,” sagði Kristín Rós Hlynsdóttir sem einnig er eigandi hitaveitunnar. Þau ljúka lofsorði á bormennina og jarðfræðinga ÍSOR.

Frekari mælingar og prófanir munu gefa nánari upplýsingar um afkastagetu holunnar, en niðurstöðurnar nú þegar lofa mjög góðu að því fram kemur í fréttatilkynningu frá ÍSOR. Þar er bent á að árangurinn í Áshildarmýri sé gott dæmi um mikilvægi markvissrar jarðhitaleitar. Þótt engin merki um jarðhita hafi verið sýnileg á yfirborði þegar leit hófst fyrir um áratug hefur kerfisbundin rannsóknarvinna, frá hitastigulsmælingum og jarðfræðilegri túlkun til staðsetningar vinnsluholu, nú skilað öflugri jarðhitaauðlind sem getur stutt við áframhaldandi uppbyggingu á svæðinu.

Fréttatilkynning ÍSOR: Öflug ný jarðhitahola í landi Kílhrauns í Áshildarmýri á Skeiðum – ISOR.IS
: Öflug heitavatnshola í Áshildarmýri á Skeiðum Frétt RUV: Heilmikið af heitu vatni fannst í Áshildarmýri í Skeiða- og Gnúpverjahreppi – RÚV.is: Öflug heitavatnshola í Áshildarmýri á Skeiðum