25. júní 2026 Endurnýjun vatnsinnviða í Evrópu brýn og kostnaðarsöm samkvæmt nýrri skýrslu EurEau Endurnýjun og uppbygging innviða er brýnasta viðfangsefni vatnsgeirans í Evrópu samkvæmt könnun EurEau, samtaka vatnsveitna og fráveitna í 33 Evrópulöndum. Samorka er meðal aðildarfélaga EurEau sem hefur nú sent frá sér „Europe‘s Water in Figures.“ Það er árleg skýrsla með myndrænu talnaefni sem bregður ljósi á þennan mikilvæga geira í álfunni og dregur fram stöðuna í hverju landi í samanburði við önnur. Um 97% af íbúum Evrópu fá drykkjarvatn sitt frá vatnsveitu og um 90% þeirra njóta ávinnings af starfsemi fráveitna. Heimili í Evrópu eyða þó einungis um 1% af sínum tekjum í útgjöld vegna þessarar þjónustu. Vatnsgeirinn þarf síðan stöðugt að mæta nýjum kröfum, innviðir eru víða að eldast og stjórnendur vatns- og fráveitna hafa líka alltaf metnað til að gera betur. Það er því mikil þörf fyrir fjárfestingar og í raun má ætla að árlega vanti þar upp á um 23 milljarða Evra. Gnægð af hreinu og góðu vatni er ein helsta auðlind Íslands. Aðildarfyrirtæki Samorku eru stolt af því að veita þessa grunnþjónustu þannig að við fáum alltaf gæða drykkjarvatn úr krananum og atvinnulífið geti treyst á nægt vatn til sinna þarfa. Veitufyrirtæki gera sér lika grein fyrir mikilvægi þess að vernda þessa auðlind og styrkja t.d. áfallaþol. Þá hefur Evrópusambandið hefur sett fram stefnu um viðnámsþrótt í vatnsgeiranum „Water Resilence Strategy.“ Það eru einnig miklar áskoranir og tugmilljarða fjárfestingar framundan í fráveitumálum hér á landi, bæði til að fara að núgildandi reglum og til að mæta kröfum nýrrar fráveitutilskipunar Evrópusambandsins. Lokamálstofa Samorku á fagþingi samtakanna í maí var t.d. helguð þessu viðfangsefni. Í skýrslu EurEau, „Europe‘s Water in Figures,“ má glögglega sjá að Ísland þarf að gera betur í fráveitumálum þegar staðan hér er borin saman við önnur Evrópulönd og að því er unnið í samráði við stjórnvöld. Sjá hlekkinn hér að neðan til að fræðast meira um skýrslu EurEau og lesa hana. https://eureau.org/news/europes-water-in-figures/: Endurnýjun vatnsinnviða í Evrópu brýn og kostnaðarsöm samkvæmt nýrri skýrslu EurEau