Evrópusambandið birtir aðgerðaáætlun um nýtingu jarðhita 19. maí

Evrópusambandið mun birta aðgerðaáætlun sína um nýtingu jarðhita þann 19. maí n.k. samkvæmt upplýsingum frá EGEC – evrópsku jarðhitasamtökunum sem Samorka er aðili að. Forseti framkvæmdastjórnar ESB, Ursula von der Leyen, hefur einnig staðfest að áætlunin sé væntanleg að því er Euracitiv fréttamiðillinn greinir frá.  Fulltrúi Samorku hvatti framkvæmdastjórnina til að setja fram metnaðarfulla aðgerðaætlun, í pallborði með fulltrúa ESB og fleirum á ráðstefnu hér í Brussel 25. febrúar s.l.

Samorka, HS Orka, Landsvirkjun og Veitur voru meðal þeirra sem skrifuðu undir bréf EGEC þann 11. desember s.l. til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um að stórefla nýtingu jarðhita í Evrópu með aðgerðaáætluninni  Hún er hluti af svokallaðri „Heating and Cooling Strategy“ á vegum ESB. Í bréfinu er lögð áhersla á að með skýrri stefnumótun og pólitískum skuldbindingum ráðamanna sé hægt að auka fjárfestingar, efla nýsköpun og einfalda ferli leyfisveitinga til að jarðhiti verði ein af forsendum fyrir orkuskiptum í Evrópu og orkusjálfstæði álfunnar.

Þá lýstu þingmenn á Evrópuþinginu eindregnum stuðningi við stóraukna nýtingu jarðhita í umræðum þann 16. október.  Þeir sögðu að þessi endurnýjanlega orkulind væri mjög vannýtt í álfunni en ryðja þyrfti hindrunum úr vegi til að efla vinnslu á jarðhita til húshitunar og fleiri nota. Einn þingmaður benti á Ísland sem dæmi um land þar sem hægt væri að hafa fjárhagslegan hagnað af jarðhitanýtingu. Umræðan var á vegum orkunefndar Evrópuþingsins. Tveimur dögum áður var Dan Jörgensen orkumálastjóri ESB meðal frummælenda á ráðstefnu um nýtingu jarðhita „Our Climate Future“ hér í Brussel. Samorka tók þátt í að skipuleggja ráðstefnuna sem var fjölsótt. Þar talaði einnig Jóhann Páll Jóhannsson ráðherra umhverfis, orku og loftslags en Stefán Haukur Jóhannesson sendiherra í Brussel opnaði ráðstefnuna.

Samorka og nokkur aðildarfyrirtæki ásamt íslenskum stjórnvöldum sendu einnig umsagnir um aðgerðaáætlunina inn í samráðsgátt ESB snemma í október. Í sinni umsögn lagði Samorka m.a. áherslu á leiðtogahlutverk Íslands – hvernig íslensk orkufyrirtæki hafi margt fram að færa til að efla nýtingu jarðhita í Evrópu. Þessi orka úr iðrum jarðar geti verið í lykilhlutverki í orkuskiptum og til að ná loftslagsmarkmiðum. Það sé einnig mikilvægt að hverskyns löggjöf frá ESB á þessu sviði taki mið af sjálfbærnimarkmiðum og eðli jarðhitanýtingar til orkuframleiðslu. Nýjar reglur megi ekki standa í vegi fyrir eða grafa undan nýtingu þessarar sjálfbæru orkulindar. Það verður athyglisvert að sjá hvort aðgerðaáætlunin stendur undir þeim vonum sem við hana eru bundnar og Samorka mun fylgjast grannt með málinu.