Uppselt á vöru- og þjónustusýningu fagþings Samorku

Fagþing hita-, vatns- og fráveitna 2026 verður haldið í Hljómahöll í Reykjanesbæ dagana 7. – 8. maí. Öflug vöru- og þjónustusýning er fastur liður á fagþinginu og var eftirspurnin eftir básum mikil um leið og þeir fóru í sölu. Allir básar seldust upp samdægurs og ljóst að alls verða 12 fyrirtæki sem kynna vörur sínar og þjónustu til gesta þingsins og komust færri að en vildu.

Gestir fagþingsins eru starfsfólk frá aðildarfyrirtækjum Samorku í hita-, vatns- og fráveitustarfsemi, ráðgjöf og fleira. Aðsókn á þing hjá Samorku hafa farið vaxandi ár frá ári enda hafa þau fest sig í sessi sem hápunktur fræðslu- og þekkingarmiðlunar fyrir aðildarfyrirtæki Samorku. 

Næsta fagþing Samorku verður fagþing rafmagns í maí 2027. Þar verður einnig vöru- og þjónustusýning. Þeir sem hafa áhuga á að vera með bás þar, geta haft samband við hafdis(hja)samorka.is og komist á póstlista þegar sala bása hefst.