Matarkista Íslands í sókn

Tækifæri til matvælaframleiðslu allt árið um kring á Suðurlandi eru fjölmörg. Til staðar er græn orka, gott ræktarland og staðgóð þekking í þágu nýsköpunar á þessu sviði. Til þess að virkja þessi tækifæri þarf bara að kveikja hugmyndirnar! Og það er einmitt aðalhlutverk Sveins Aðalsteinssonar, framkvæmdastjóra Orkídeu, sem er samstarfsverkefni um nýsköpun á Suðurlandi á vegum Landsvirkjunar, Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, Landbúnaðarháskóla Íslands og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Sveinn Aðalsteinsson er viðmælandi þáttarins.

Faghópur Samorku til Brussel

Faghópur Samorku um samskiptamál fór nýverið til Brussel þar sem þátttakendur kynntu sér þróun evrópsks regluverks, alþjóðlega umræðu um orku- og veitumál og hlutverk samskipta og hagsmunagæslu í ört breytilegu starfsumhverfi.

Í ferðinni heimsótti hópurinn meðal annars ýmis evrópsk hagsmunasamtök á sviði orku- og veitustarfsemi, auk EFTA, þar sem farið var yfir þróun löggjafar og regluverks sem hefur áhrif á íslensk orku- og veitufyrirtæki.

Þá heimsótti hópurinn einnig skrifstofu Samorku í Brussel þar sem rætt var um aukið vægi alþjóðasamstarfs og hvernig Samorka getur stutt betur við aðildarfyrirtæki sín gagnvart evrópskum stofnunum og samstarfsaðilum.

Ferðin þótti afar gagnleg og gaf mikilvæga innsýn í þá þróun sem nú á sér stað í Evrópu á sviði orku-, umhverfis- og veitustarfsemi og hvernig samskipti, upplýsingamiðlun og hagsmunagæsla skipta þar sífellt meira máli.