16. apríl 2012 Ráðstefna 18. apríl: Háspennulínur og jarðstrengir Rafmagnsverkfræðingadeild Verkfræðingafélags Íslands stendur fyrir ráðstefnu um háspennulínur og jarðstrengi þann 18. apríl klukkan 13:00 á Grand Hótel Reykjavík, Gullteig, í samstarfi við Samorku o.fl. Dagskrá ráðstefnunnar má nálgast á vef Verkfræðingafélags Íslands.
30. mars 2012 21 af 40 efstu virkjunarkostunum í bið eða vernd Þingsályktunartillaga um rammaáætlun hefur verið lögð fram í ríkisstjórn. Skv. fréttatilkynningu hafa þær breytingar orðið frá drögum að tillögunni sem kynnt voru sl. sumar að sex virkjunarkostir til viðbótar hafa nú verið færðir úr nýtingarflokki í biðflokk – Holtavirkjun, Hvammsvirkjun, Skrokkölduvirkjun, Hágönguvirkjanir (1. og 2. áfangi) og Urriðafossvirkjun. Þessum virkjunarkostum raðaði verkefnisstjórn um gerð rammaáætlunar á bilinu 15-28 af 69 virkjunarkostum (ath. að nr. 55 og 60 eru alls 11 kostir, tvö svæði flokkuð þar saman), frá sjónarhorni nýtingar, í skýrslu sinni sem skilað var í júní sl. (sjá töflu 7.2). Alls eru því 21 af 40 efstu virkjunarkostunum, skv. endanlegri röðun verkefnisstjórnar, settir í biðflokk eða verndarflokk, skv. tillögunni. Þeir eru: Í biðflokk, af efstu 40 kostum verkefnisstjórnar: Holtavirkjun Hvammsvirkjun Austurengjar Skrokkölduvirkjun Innstidalur Trölladyngja Þverárdalur Hágönguvirkjun, 1. áfangi Hágönguvirkjun, 2. áfangi Urriðafossvirkjun Hólmsárvirkjun neðri Hagavatnsvirkjun Fljótshnjúksvirkjun Hólmsárvirkjun – án miðlunar Í verndarflokk, af efstu 40 kostum verkefnisstjórnar: Bitra Norðlingaölduveita Brennisteinsfjöll Grændalur Tungnárlón Bjallavirkjun Gjástykki
7. mars 2012 Vorfundur Jarðhitafélagsins: Ávinningur og verkefni framundan Vorfundur Jarðhitafélags Íslands verður haldinn í Arion banka þriðjudaginn 17. apríl. Þar mun Daði Már Kristófersson, dósent í auðlindahagfræði við Háskóla Íslands, fjalla um þjóðhagslegan ávinning af jarðhitanýtingu. Þá munu fulltrúar HS Orku, RARIK, Orkuveitu Reykjavíkur og Landsvirkjunar fjalla um helstu framkvæmdir á döfinni. Fundurinn hefst kl. 14:00, í húsakynnum Arion banka, Borgartúni 19. Sjá nánar á vefsíðu Jarðhitafélagsins.
20. febrúar 2012 7. kafli fráveituhandbókar kominn á vefinn Nú er aðgengilegur hér á vef Samorku 7. kafli fráveituhandbókarinnar, þar sem fjallað er um hnignun og endurnýjun fráveitukerfa. Unnið er að undirbúningi ritunar næstu kafla bókarinnar.
17. febrúar 2012 Hagkvæmnisrök styðja langa leigusamninga orkuauðlinda Sterk hagfræðileg rök hníga að löngum leigusamningum orkuauðlinda og mikilvægt er að viðurkenna að stytting leigutíma er kostnaðarsöm. Þetta er meðal þess sem fram kom í erindi Daða Más Kristóferssonar, dósents í auðlindahagfræði við Háskóla Íslands, á aðalfundi Samorku. Daði fjallaði um gjaldtöku, leigutíma og arðsemi orkunýtingar. Daði segir of stuttan leigutíma hindra arðbærar framkvæmdir auk þess sem langur leigutími vinni gegn svokölluðum leigjendavanda, þar sem skammtímahagsmunir leigutaka séu aðrir en langtímahagsmunir leigusala. Daði fjallaði um kosti og galla mismunandi aðferða við gjaldtöku en lýsti efasemdum um hvort forsendur væru fyrir sérstakri skattlagningu á nýtingu orkuauðlina, m.a. þar sem ekki væri sýnilegur umframhagnaður hjá orkufyrirtækjum. Þá gæti skattur vegna umhverfisáhrifa verið réttlætanlegur en þó ekki flatur skattur þar sem slik áhrif væru jú mjög breytileg. Daði fjallaði m.a. um lágt raforkuverð á Íslandi og sagði auðlindarentuna því í raun renna til viðskiptavina, sem á Íslandi eru í flestum tilvikum einmitt eigendur fyrirtækjanna, þ.e. almenningur. Sjá erindi Daða Más Kristóferssonar.
17. febrúar 2012 Iðnaðarráðherra: Rétt að fjölga hér orkukaupendum Oddný G. Harðardóttir, starfandi iðnaðarráðherra, ávarpaði opna dagskrá aðalfundar Samorku. Í ávarpi sínu fjallaði Oddný m.a. um orkuskipti í samgöngum, mótun heildstæðrar orkustefnu og vinnu við gerð rammaáætlunar um verndun og orkunýtingu náttúrusvæða. Oddný sagði áliðnaðinn hafa myndað hér grunn að öflugu orkusamfélagi sem byggja mætti á, en sagðist telja okkur farnast best ef okkur tækist að fjölga hér orkukaupendum og ef að flóra þeirra yrði sem fjölbreyttust. Oddný G. Harðardóttir, starfandi iðnaðarráðherra, ávarpaði opna dagskrá aðalfundar Samorku. Í ávarpi sínu fjallaði Oddný m.a. um orkuskipti í samgöngum, mótun heildstæðrar orkustefnu og vinnu við gerð rammaáætlunar um verndun og orkunýtingu náttúrusvæða. Oddný sagði áliðnaðinn hafa myndað hér grunn að öflugu orkusamfélagi sem byggja mætti á, en sagðist telja okkur farnast best ef okkur tækist að fjölga hér orkukaupendum og ef að flóra þeirra yrði sem fjölbreyttust. Hún sagði stjórnvöld og Samorku eiga sameiginlega hagsmuni í þróun hvata til orkuskipta í samgöngum og í að byggja þar upp innviði. Loks þakkaði ráðherra Samorku fyrir gott samstarf á liðnum árum, fyrir hönd iðnaðarráðuneytisins, og vonaðist eftir gefandi samstarfi á komandi árum. Ávarp Oddnýjar má nálgast hér á vef iðnaðarráðuneytisins.
17. febrúar 2012 Aðalfundur Samorku: Vonbrigði með stöðu rammaáætlunar Ályktun aðalfundar Samorku, 17. febrúar 2012: Vonbrigði með stöðu rammaáætlunar Aðalfundur Samorku lýsir yfir vonbrigðum með stöðuna og ferlið við gerð þingsályktunar um vernd og orkunýtingu náttúrusvæða – rammaáætlun. Samorka gagnrýndi á sínum tíma ýmsar breytingar sem urðu á forsendum verkefnisstjórnar, þar sem fjöldi orkukosta var útilokaður frá nýtingarflokki. Samtökin fögnuðu þó faglegum niðurstöðum af áralöngu starfi verkefnisstjórnar í júní 2011. Í því faglega ferli höfðu sjónarmið um náttúruvernd mikið vægi og almenningur fékk ítrekuð tækifæri til að setja fram sjónarmið, sem í kjölfarið voru metin á faglegan hátt í vinnu verkefnisstjórnar. Var það von Samorku að þessi ágæta vinna gæti orðið grundvöllur fyrir aukinni sátt um orkunýtingu og verndun. Miklar tafir hafa nú orðið á þessu ferli, með tilheyrandi óvissu. Í drögum að tillögu til þingsályktunar sem kynnt voru í ágúst hafði verið vikið frá faglegri forgangsröðun verkefnisstjórnar og niðurstöður hennar eru nú staddar öðru sinni í ógegnsæju samningaferli á vettvangi stjórnvalda. Stærð einstakra flokka og röðun í þá er að sjálfsögðu ákvörðun Alþingis. Að mati Samorku væri hins vegar vænlegast að styðjast einfaldlega við faglega röðun verkefnisstjórnar frá því í júní 2011. Sú leið ætti að mati samtakanna að geta stuðlað að nokkuð víðtækri sátt um rammaáætlun. Fundurinn minnir jafnframt á að Íslendingar hafa nú þegar stigið mjög stór skref til verndar náttúru landsins og t.d. gengið mun lengra en hin Norðurlöndin í þeim efnum. Auðlindamálin ekki til umhverfisráðuneytis Þá ítrekar aðalfundur Samorku andstöðu samtakanna við hugmyndir um að færa auðlindarannsóknir og auðlindastýringu undir umhverfisráðuneytið. Það væri að mati Samorku óeðlileg stjórnsýsla að sama ráðuneyti gegndi lykilhlutverki varðandi rannsóknir og nýtingu annars vegar, og færi með umhverfismat og skipulagsmál hins vegar.
17. febrúar 2012 Guðrún Erla og Kristján ný í stjórn Samorku Á aðalfundi Samorku voru tveir nýir fulltrúar kjörnir í stjórn samtakanna: Guðrún Erla Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Orkuveitu Húsavíkur, og Kristján Haraldsson, orkubússtjóri Orkubús Vestfjarða. Þá var Þórður Guðmundsson, forstjóri Landsnets, endurkjörinn til stjórnarsetu. Öll voru þau kjörin til tveggja ára. Guðrún Erla og Kristján taka sæti Franz Árnasonar, fyrrverandi forstjóra Norðurorku og Páls Pálssonar, veitustjóra Skagafjarðarveitna. Ágúst Torfi Hauksson, forstjóri Norðurorku, var kjörinn varamaður í stað Kristjáns Haraldssonar. Loks var Guðmundur Davíðsson, framkvæmdastjóri Hitaveitu Egilsstaða og Fella, endurkjörinn sem varamaður í stjórn. Stjórn Samorku skipa því, að loknum aðalfundi 2012: Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar Guðrún Erla Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Orkuveitu Húsavíkur Júlíus J. Jónsson, forstjóri HS Orku Kristján Haraldsson, orkubússtjóri Orkubús Vestfjarða Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri RARIK, formaður Þórður Guðmundsson, forstjóri Landsnets Varamenn: Ágúst Torfi Hauksson, forstjóri Norðurorku Dagur Jónsson, vatnsveitustjóri Vatnsveitu Hafnarfjarðar Guðmundur Davíðsson, framkvæmdastjóri Hitaveitu Egilsstaða og Fella Tryggvi Þór var kjörinn formaður til tveggja ára á aðalfundi 2011, en stjórnin skiptir að öðru leyti með sér verkum á fyrsta fundi að loknum aðalfundi 2012.
15. febrúar 2012 Aðalfundur Samorku föstudaginn 17. febrúar Aðalfundur Samorku verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík föstudaginn 17. febrúar. Venjuleg aðalfundarstörf hefjast kl. 10:30 og hafa aðalfundarfulltrúar fengið senda dagskrá og önnur gögn. 13:30 Opin dagskrá aðalfundar Samorku, Hvammi: Setning: Tryggvi Þór Haraldsson, formaður Samorku Ávarp: Oddný G. Harðardóttir, starfandi iðnaðarráðherra Erindi: Gjaldtaka, leigutími og arðsemi orkunýtingar Dr. Daði Már Kristófersson, dósent í auðlindahagfræði við Háskóla Íslands 14:45 Kaffiveitingar í fundarlok
2. febrúar 2012 Orkunýting og ferðaþjónusta Fréttablaðsgrein Gústafs Adolfs Skúlasonar: Orkunýting og ferðaþjónusta „Víða getur ferðaþjónusta og orkuvinnsla farið vel saman.“ Svo segir m.a. í umsögn Samtaka ferðaþjónustunnar um drög að þingsályktunartillögu um vernd og orkunýtingu náttúrusvæða – rammaáætlun. Samtökin leggjast hins vegar gegn orkunýtingu á tilteknum svæðum. En hver eru tengsl orkunýtingar og ferðaþjónustu? Græna orkan trekkir Fyrst ber að nefna að í tengslum við landkynningu er gjarnan leitað til íslenskra orkufyrirtækja og þau fengin til að setja þar nýtingu endurnýjanlegrar orku í forgrunn. Þá heimsækir mikill fjöldi gesta íslenskar virkjanir og upplýsingamiðstöðvar orku- og veitufyrirtækja á ári hverju, alls vel á annað hundrað þúsund. Aukinn hlutur endurnýjanlegra orkugjafa hefur enda lengi verið eitt helsta viðfangsefni opinberrar stefnumótunar víða um heim en þar er Ísland í einstakri stöðu. Erlendir gestir vilja því gjarnan kynna sér nýtingu umhverfisvænnar orku hérlendis, þ.e. vatnsafls og ekki síður jarðhita (sem færri þekkja). Þá hafa sum orku- og veitufyrirtæki lagt verulega fjármuni í gerð göngustíga, uppgræðslu og kortagerð af svæðum í nágrenni sinna virkjana, að ógleymdri aðstöðu sem beinlínis er reist til að taka á móti gestum. Loks taka þessi fyrirtæki á móti fjölda gesta í sínum höfuðstöðvum. Oft er þar ekki um að ræða ferðamenn í hefðbundnum skilningi, heldur erlenda gesti úr heimum vísinda, viðskipta og stjórnmála – „verðmæta“ ferðamenn sem hingað koma ekki síst vegna grænu orkunnar. Bláa lónið er afsprengi jarðhitavirkjunar. Lónið sækja um 400 þúsund manns á ári. Perlan er byggð á heitavatnstönkum. Um 600 þúsund manns koma í Perluna á ári hverju. Helstu leiðir ferðamanna inn á hálendi Íslands eru eftir vegum sem upphaflega tengjast framkvæmdum við virkjanir og línulagnir. Þannig mætti áfram telja. Eins og öll önnur fyrirtæki nýta loks orku- og veitufyrirtæki þjónustu flugfélaga, gistihúsa, bílaleiga, rútubíla, veitingaaðila o.s.frv., ekki síst á tímum virkjanaframkvæmda. Hagsmunir greinanna fara því vel saman.