Landgræðsluhópur ON græðir sárin

Landgræðsluhópur Orku náttúrunnar hófst í dag handa við að lagfæra skemmdir vegna krots mosa í Litlu Svínahlíð í Grafningi. Þar hafði verið skrifað í mosaþembuna með því að rífa upp mosa.

,,Við ætlum að freista þess að lagfæra skemmdirnar og byrjuðum björgunarverkefnið í dag. Litlar mosaþúfur voru teknar umhverfis stafina, sem höfðu verið krotaðir í mosann, og þær notaðar til að fylla í þá og þannig lokuðum við sárinu. Ég hef verið að prófa mig áfram með aðferðir við að laga svona mosakrot og mér sýnist að þessi aðferð virki vel. Það tekur samt mosaþembuna nokkur ár að jafna sig alveg. Við leggjum okkur fram við að miðla þekkingu okkar í þessum málum og ætlum að útbúa stutt kynningarmyndband sem sýnir að hver sem er getur tekið sig til og lagfært mosakrot,“ segir Magnea Magnúsdóttir, umhverfis- og landgræðslustjóri Orku náttúrunnar. Magnea er þekkt meðal landgræðslufólks fyrir aðferðir sem hún hefur þróað til að endurheimta mosabreiður og fékk hún m.a. Umhverfisverðlaun Ölfuss fyrr á árinu fyrir slíkt verkefni.

Magnea segir mosaþemburnar á Íslandi einstakar á heimsvísu og hluti af sérkennum íslensks landslags. En mosakrot hefur aukist, sem eru mikil lýti og það getur tekið mosann mörg ár eða áratugi að gróa saman sé ekkert að gert. Magnea segir mikilvægt að að lagfæra skemmdir sem fyrst svo að fólki detti síður í hug að herma eftir. Mosaþembur eru einnig mjög viðkvæmar og skemmdir á þeim, eins og mosakrot, geta valdið frekara rofi á mosanum og þannig stækka sárin t.d. við að yfirborðsvatn rennur eftir þeim.

Aðgerðirnar í Litlu Svínahlíð voru teknar upp á myndband og því verður dreift sem kennslumyndbandi. Þannig ættu sem flestir að geta nýtt sér aðferðirnar til að lagfæra sambærilegar skemmdir annars staðar á landinu.

Jóna Soffía Baldursdóttir til Landsvirkjunar

Jóna Soffía Baldursdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður upplýsingatæknisviðs hjá Landsvirkjun. 
Upplýsingatækni leikur stórt hlutverk í rekstri Landsvirkjunar. Nýr forstöðumaður heyrir undir skrifstofu forstjóra og mun í samvinnu við stjórnendur taka þátt í að móta framsæknar upplýsingatæknilausnir fyrir fjölbreytta starfsemi innan Landsvirkjunar.
Jóna Soffía hefur verið forstöðumaður vefþróunar hjá Símanum frá árinu 2013. Hún hefur starfað hjá Símanum frá árinu 2006, fyrst við verkefnastjórnun og síðar sem deildarstjóri stjórnstöðvar og stjórnkerfa áður en hún tók við sem forstöðumaður vefþróunar. Áður en Jóna Soffía fór til Símans starfaði hún m.a. við verkefnastjórnun og hugbúnaðarráðgjöf hjá Högum hf. og Hug hf. og við flutningastýringu hjá Samskipum.

Jákvæðar horfur hjá OR

Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody‘s hefur breytt horfum í mati sínu á lánshæfi Orkuveitu Reykjavíkur í jákvæðar úr stöðugum. Einkunnin er áfram Ba2.

Í fréttatilkynningu frá Moody‘s segir að ástæða betri horfa sé batnandi rekstrarafkoma, lækkandi skuldir og að sterkari lausafjárstaða síðustu ár. Þá séu nú vaxandi líkur á að OR standist kröfur um hærri lánhæfiseinkunn í náinni framtíð.

Fjárhagur OR hefur styrkst, segir ennfremur í tilkynningunni. Það rakið til festu við framvindu Plansins, sem hleypt var af stokkunum árið 2011. Mikil staðfesta stjórnenda við að fylgja því eftir leiddi til þess að markmiðum þess var náð talsvert áður en því lauk, í árslok 2016. Matsfyrirtækið á von á því að OR sýni áfram skynsemi í fjár- og áhættustýringu sem gefi fyrirtækinu gleggri sýn á fjármálin og geti gert OR kleift að draga úr áhættu vegna þróunar vaxta, gengis og álverðs.

Auðlindagarður HS Orku fær alþjóðleg verðlaun

HS Orka hlaut í gær á Alþjóðlega umhverfisdeginum, umhverfisverðlaun Energy Globe Award sem veitt eru þeim fyrirtækjum og einstaklingum sem hafa skarað fram úr í umhverfismálum. Í ár voru valin 178 verkefni víðsvegar að úr heiminum og var Auðlindagarðurinn valinn besta íslenska verkefnið.

„Við erum hrærð yfir þessum verðlaunum og þeirri viðurkenningu sem Auðlindagarðinn er að fá á alþjóðavísu. Hugmyndafræðin að baki Auðlindagarðinum er einföld, það er að segja að það er ekkert sem heitir sóun. Allir straumar sem falla til við orkuvinnslu hjá okkur eru nýttir af fyrirtækjum í Auðlindagarðinum, sem eru sjö í dag og fer fjölgandi,” segir Ásgeir Margeirsson forstjóri HS Orku.

Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku

„Albert Albertsson er hugmyndasmiðurinn að baki Auðlindagarðinum og okkar lærifaðir. Albert hefur alltaf bent okkur á að fjölþætt nýting auðlinda sé einfaldlega heilbrigð skynsemi.”

HS Orka er þriðja stærsta orkufyrirtæki landsins sem framleiðir og selur rafmagn um allt land. Fullnýting og umhyggja fyrir umhverfinu hefur ætíð verið rauði þráðurinn í starfseminni og hefur meðal annars leitt af sér stofnun Auðlindagarðs á Reykjanesi, þar sem fyrirtæki hafa sprottið upp og nýtt hina ýmsu auðlindastrauma sem verða til við framleiðslu á rafmagni og heitu vatni. Fyrirtækin innan Auðlindagarðsins eru Bláa Lónið, Haustak, Háteigur, ORF Líftækni, Carbon Recycling International, Northern Light Inn hótel og Stolt Sea Farm.

Í haust kemur svo í ljós hvaða fyrirtæki hlýtur Energy Globe verðlaunin á heimsvísu.

Umhverfisverðlaun atvinnulífsins 2017: Tilnefningar óskast

Umhverfisverðlaun atvinnulífsins verða afhent fimmtudaginn 12. október fyrirtækjum sem staðið hafa sig vel í umhverfismálum. Athöfnin fer fram á Hilton Reykjavík Nordica á Umhverfisdegi atvinnulífsins, sem að þessu sinni er helgaður loftslagsmálum.

Óskað er eftir tilnefningum fyrir 12. september nk. með tölvupósti á sa@sa.is merktum: „Tilnefning til umhverfisverðlauna atvinnulífsins“.

Veitt verða tvenn verðlaun. Annars vegar verður umhverfisfyrirtæki ársins og hins vegar framtak ársins verðlaunað. Dómnefnd velur úr tilnefningum og mun meðal annars skoða eftirfarandi þætti:

Umhverfisfyrirtæki ársins

  • Hefur innleitt umhverfisstjórnunarkerfi
  • Hefur aflað viðurkenninga fyrir starfsemina/afurðirnar
  • Hefur sjálfbæra nýtingu í stefnu sinni
  • Hefur dregið úr úrgangi og nýtir aðföng vel
  • Innra umhverfi er öruggt
  • Áhættumat hefur verið gert fyrir starfsemina
  • Gengur lengra en lög og reglur segja til um til að draga úr neikvæðum áhrifum starfseminnar á umhverfi

Framtak ársins

  • Hefur komið fram með nýjung – nýja vöru, þjónustu eða aðferð – sem hefur jákvæð umhverfisáhrif
  • Hefur efnt til athyglisverðs átaks til að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum af starfsemi sinni
  • Gagnast í baráttu við loftslagsbreytingar

Að Umhverfisdegi atvinnulífsins standa Samtök atvinnulífsins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu.

Blöndustöð skarar fram úr í sjálfbærni

Starfsfólk Landsvirkjunar með Blue Planet verðlaunin

Blöndustöð Landsvirkjunar hefur hlotið Blue Planet verðlaunin, sem Alþjóða vatnsaflssamtökin (International Hydropower Association, IHA) veita verkefnum sem skara framúr í sjálfbærri nýtingu vatnsafls í heiminum. Verðlaunin voru veitt á þingi samtakanna, sem haldið var í Addis Ababa í Eþíópíu og eru mikill heiður fyrir Landsvirkjun.

Verðlaunin eru veitt á grundvelli hins alþjóðlega matslykils um sjálfbæra nýtingu vatnsafls (e. Hydropower Sustainability Assessment Protocol, HSAP), en úttekt á grundvelli hans var gerð á Blöndustöð árið 2013. Úttektin leiddi í ljós að rekstur Blöndustöðvar er framúrskarandi hvað varðar sjálfbæra nýtingu vatnsafls og að á mörgum sviðum þykja starfsvenjur í Blöndustöð þær bestu sem fyrirfinnast.

Í úttektinni voru 17 flokkar teknir til nákvæmrar skoðunar og varða rekstur Blöndustöðvar, til dæmis samskipti og samráð, stjórnun á umhverfislegum og samfélagslegum þáttum, vatnsauðlindina, vinnuafl og vinnuaðstöðu, líffræðilegan fjölbreytileika og framandi tegundir ásamt rofi og setmyndun.

Niðurstöður úttektarinnar voru á þá leið að Blöndustöð uppfyllti kröfur um bestu mögulegu starfsvenjur (5 í einkunn af 5 mögulegum) í 14 flokkum af þeim 17 sem teknir voru til skoðunar. Í þremur flokkum uppfyllir Blöndustöð kröfur um góðar starfsvenjur (4 í einkunn af 5 mögulegum) og í hverjum þeirra er aðeins eitt frávik frá bestu mögulegum starfsvenjum.

Samorka og KíO undirrita samstarfssamning

Lovísa Árnadóttir upplýsingafulltrúi Samorku, Páll Erland framkvæmdastjóri Samorku, Harpa Pétursdóttir formaður KíO, Auður Nanna Baldvinsdóttir gjaldkeri KíO skrifa undir samstarfssamninginn í Hofi

Samorka og Konur í orkumálum ætla í sameiningu að bæta hlutfall kvenna í orku- og veitugeiranum. Samstarfssamningur um þetta var undirritaður á Samorkuþingi, sem haldið var í Hofi á Akureyri dagana 4. – 5. maí.

Páll Erland og Harpa Pétursdóttir að lokinni undirskrift

Samstarfið getur birst á margan hátt samkvæmt samningnum, eins og til dæmis í samnýtingu gagna, upplýsingagjöf á milli aðila, sameiginlega viðburði eða sameiginlega útgáfu á efni sem varpar ljósi á stöðu kvenna innan geirans.

Samorka er einnig einn af styrktaraðilum nýrrar úttektar KíO og fyrirtækisins Ernst&Young um stöðu kvenna í íslenska orkugeiranum sem kom út á dögunum.

 

Samið um lagningu jarðstrengs

Í dag var skrifað undir samning við Steypustöð Skagafjarðar um lagningu jarðstrengs á milli Grundarfjarðar og Ólafsvíkur með viðeigandi greftri, slóðagerð og frágangsvinnu, Grundarfjarðarlínu 2.

Guðmundur Ingi Ásmundsson forstjóri Landsnet segir að með lagningu Grundarfjarðarlínu 2, 66 kV jarðstrengs milli Ólafsvíkur og Grundarfjarðar og byggingu nýrra tengivirkja aukist afhendingaröryggi raforku á svæðinu til muna.

Vinna við undirbúning, hönnun, útboð og jarðvinnuframkvæmdir vegna byggingar tengivirkis í Grundarfirði hófst árið 2015. Framkvæmdir við Grundarfjarðartengivirki hófust árið 2016, einnig vinna við hönnun nýs tengivirkis í Ólafsvík og gengið var frá innkaupum á jarðstreng. Vinna við strenginn hefst á næstu vikum og er stefnt að því að framkvæmdum verið að fullu lokið, með yfirborðsfrágangi sumarið 2018.

Skipað í stjórn Landsvirkjunar á aðalfundi

Á aðalfundi Landsvirkjunar, sem haldinn var miðvikudaginn 26. apríl 2017, skipaði fjármála- og efnahagsráðherra aðalmenn og varamenn í stjórn Landsvirkjunar samkvæmt lögum um fyrirtækið.

Aðalmenn í stjórn Landsvirkjunar eru:
• Jónas Þór Guðmundsson
• Ragnheiður Elín Árnadóttir
• Haraldur Flosi Tryggvason
• Álfheiður Ingadóttir
• Kristín Vala Ragnarsdóttir

Þetta er í fyrsta sinn í sögu Landsvirkjunar sem konur eru í meirihluta stjórnar.

Úr stjórn fóru Jón Björn Hákonarson, Helgi Jóhannesson og Þórunn Sveinbjarnardóttir en þau hafa setið í stjórn fyrirtækisins frá árinu 2014 og var þeim þakkað fyrir vel unnin störf.

Varamenn í stjórn Landsvirkjunar eru: Ásta Björg Pálmadóttir, Páley Borgþórsdóttir, Lárus Elíasson, Ragnar Óskarsson og Albert Svan Sigurðsson.

Aðalfundurinn staðfesti skýrslu fráfarandi stjórnar og samstæðureikning fyrir liðið reikningsár, sem má finna í rafrænni ársskýrslu á landsvirkjun.is. Jafnframt var Deloitte ehf. kosið endurskoðunarfyrirtæki Landsvirkjunar að fenginni tillögu Ríkisendurskoðunar.

Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar eftir aðalfund var Jónas Þór Guðmundsson endurkjörinn formaður stjórnar og Haraldur Flosi Tryggvason var kjörinn varaformaður.

Á aðalfundinum var jafnframt samþykkt tillaga stjórnar um arðgreiðslu til eigenda að fjárhæð 1,5 milljarðar króna fyrir árið 2016.

Sólarlampaverkefnið formlega sett í gang

Samstarfsverkefni Samorku og Givewatts í tilefni af degi rafmagnsins í janúar 2017 hefur nú formlega verið hleypt af stokkunum í Mwanza í Tansaníu.

Samorka fjármagnaði gerð 160 sólarorkulampa sem koma í stað steinolíulampa við dagleg störf hjá fjölskyldum í Mwanza. Þannig verður heilsuspillandi orkugjafa skipt út fyrir hreinan, endurnýjanlegan og ódýran orkugjafa, líkt og við búum við hér á Íslandi.

Hægt er að sjá allar nánari upplýsingar um verkefnið á sérstakri síðu þess hjá Givewatts og fylgjast með framvindu þess næstu tvö árin. Upphaflega áttu lamparnir að fara á annað svæði, en eftir nánari skoðun kom í ljós að þörfin var meiri á öðrum stað einmitt nú.

Með ódýrari og heilnæmari birtugjafa verður meðal annars hægt að gefa börnum betra tækifæri til þess að stunda nám heima við eftir að skóla lýkur á daginn, sem leiðir til hærra menntunarstigs. Sólarorkulampinn getur einnig hlaðið farsíma.

Að meðaltali nýta fimm manneskjur hvern lampa á hverju heimili. Þannig breytist líf 800 manns til hins betra með þessu verkefni.