27. nóvember 2007 Ásgeir Sæmundsson stöðvarstjóri Ásgeir Sæmundsson fyrverandi stöðvarstjóri í Andakílsárvirkjun er látinn. Hann var fæddur 1923 og lést á Landsspítala Íslands mánudaginn 26. nóvember. Ásgeir var rafvélavirkji og rafmagnstæknifræðingur. Hann lærði iðn sína hjá Bræðrunum Ormsson og tæknifræði í Tekniske Institute í Stokkhólmi. Hann vann að rafveitumálum og rafvæðingu landsins um langt skeið og var m.a. stöðvarstjóri Andakílsárvirkjunar. Samorka minnist áhugasams og tillögugóðs félaga um leið og hún vottar aðstendendum fyllstu samúðar.