27. febrúar 2020 Orkuskipti: Hvað þarf til? Hvað þarf til þess að skipta út jarðefnaeldsneyti á Íslandi í græna orku, bæði til að standast alþjóðlegar skuldbindingar í loftslagsmálum og fyrir fullt og allt? Opinn ársfundur Samorku mun taka á þessum spurningum og svara þeim. Vefútsending/Norðurljósum, Hörpu 8. september 2020 Fundurinn verður í beinni útsendingu á netinu en ef aðstæður leyfa verður einnig hægt að mæta á staðinn. Í Hörpu er vel gætt að fjarlægðartakmörkunum, auðvelt er að skipta í hólf og sprittstandar aðgengilegir alls staðar. Dagskrá: Fyrstu og önnur orkuskiptin – Helgi Jóhannesson, formaður stjórnar Samorku Ávarp ráðherra – Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra Þriðju orkuskiptin: Innviðir og orkuþörf – Auður Nanna Baldvinsdóttir og Sigurjón Kjærnested, orkuskiptahóp Samorku Framtíðarþróun samgangna – Colin McKerracher, Bloomberg New Energy Finance Orkuskiptin eru hagkvæm – Ingvar Freyr Ingvarsson, Samorku Svona hleður landinn: Niðurstaða hleðslurannsóknar Samorku – Scott Lepold, GEOTAB og Kjartan Rolf Árnason, orkuskiptahóp Samorku Framtíð orkuskipta á hafi: Electric Port Study – Caroline Kamerbeek, DNV-GL Framtíð orkuskipta í flugi – Olav Mosvold Larsen, Avinor Græn orka verður grænt eldsneyti – Morten Stryg, Dansk Energi Vefútsending er opinn öllum og verður á heimasíðu Samorku, Facebooksíðu Samorku og á völdum fréttamiðlum. Ef aðstæður leyfa geta gestir mætt á staðinn. Við biðjum gesti um að skrá sig á fundinn með því að fylla inn formið fyrir neðan. Þannig verður hægt að mæta fjöldatakmörkunum í Hörpu ef aðstæður leyfa fundargesti, en einnig hægt að koma upplýsingum um fundinn/útsendinguna til gesta. Nafn Netfang Fyrirtæki Skrá mig Δ