20. október 2026 ESB vill fjárfesta í endurnýjanlegri orku á Norðurslóðum Evrópusambandið hyggst auka fjárfestingar á Norðurslóðum til að efla endurnýjanlega orkugjafa í heimshlutanum samkvæmt nýrri Norðurslóðastefnu Framkvæmdastjórnar og utanríkisstjóra ESB sem birt var í dag, 20. október. „Með þessari nýju stefnu ESB erum við að fjárfesta í meira öryggi, áfallaþolnum innviðum og tækifærum í efnahagslífinu,“ er haft eftir Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnarinnar í tilkynningu en hún heimsótti Grænland snemma í september á þessu ári. ESB minnir á að á Norðurslóðum séu endurnýjanlegir orkugjafar nýttir með kröftugum hætti og verulegir vaxtarmöguleikar fyrir hendi í vatnsafli, jarðhita og vindorku auk þess að framleiða endurnýjanlegt vetni. Rifjað er upp að ESB sé þegar einn af helstu bakhjörlum orkuskipta í heimshlutanum. Nýja Norðurslóðastefnan snertir á fjölmörgum þáttum á sviði orkumála. ESB beinir eðlilega mest sjónum að aðildarríkjum sínum á Norðurslóðum – Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku og bendir m.a. á verkefni í endurnýjanlegri orku á Grænlandi. Ísland er líka nefnt til sögunnar á þónokkrum stöðum í stefnunni enda samstarfsríki sem ESB hafi náin tengsl við. Sjá nánar fréttatilkynningu framkvæmdastjórnar ESB um nýju Norðurslóðastefnuna: https://international-partnerships.ec.europa.eu/policies/eus-arctic-strategy_en: ESB vill fjárfesta í endurnýjanlegri orku á Norðurslóðum