ESB vill styrkja hreinan iðnað og tækni með nýrri löggjöf

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins kynnti í gær, 4. mars, löggjafartilögu sem ber heitið  „Industrial Accelator Act.“ IAA er ætlað að auka eftirspurn eftir „hreinni“ (low-carbon) tækni og vörum framleiddum í Evrópu. ESB segir að þessar aðgerðir eigi að efla framleiðslu, ýta undir vöxt í atvinnulífinu, skapa störf í Evrópusambandinu og styðja um leið við að fyrirtæki tileinki sér hreinni tækni til framtíðar.

Í IAA-löggjafartillögunni er lögð áhersla á „Union origin“ (sem margir kalla „Made in Europe“) viðmið í innkaupum og opinberri aðstoð í ákveðnum atvinnugreinum – m.a. bílaframleiðslu og áli en þessi viðmið geti einnig náð til fleiri atvinnugreina .Miðað við mat Eurelectric og fleiri á „Industrial Accelator Act“ má ætla að Ísland falli undir „Made in Europe“ í krafti EES-samningsins. Textinn í tilkynningu ESB um þetta efni er eftirfarandi og er sérstaklega vakin athygli á feitletraða textanum.

 „The proposal encourages greater reciprocity in public procurement, by providing equal treatment to countries that offer EU companies access to their markets, in line with the Draghi report. Content from partners with which the Union has concluded an agreement establishing a free trade area or a customs union, or that are parties to the Agreement on Government Procurement, and where relevant obligations of the Union exist under that agreement, shall be deemed to be of Union origin. For other public interventions, notably public schemes and auctions, partners can be covered within the IAA scope if they have a free trade agreement or customs union with the EU.“

Þessi hluti löggjafartillögunnar hefur verið umdeildur og orðið til þess að því hefur hvað eftir annað verið frestað að leggja IAA fram. Þessi framlagning á löggjafartillögu framkvæmdastjórnarinnar er fyrsta skrefið í löngu ferli þar sem aðrar stofnanir ESB koma líka að borðinu. Samorka mun áfram fylgjast með málinu enda skiptir það máli fyrir íslenska hagsmuni.

Meira um „Industrial Accelator Act“ hér:

https://ec.europa.eu/commission/presscorner/detail/en/ip_26_515: ESB vill styrkja hreinan iðnað og tækni með nýrri löggjöf