Endurnýjanleg orka lykill að samkeppnishæfri Evrópu

Samorka á ráðstefnu ESB í Brussel um orkumál

Dan Jørgensen, orkumálastjóri Evrópusambandsins flytur opnunarræðu sína á European Sustainable Energy Week.

„Við þurfum að hverfa frá því að vera háð jarðefnaeldsneyti og framleiða okkar eigin endurnýjanlega orku.“ Þetta var megin boðskapur Dan Jørgensen, orkumálastjóra framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, við upphaf ráðstefnu ESB um endurnýjanlega orku „European Sustainable Energy Week“ sem fram fór í Brussel 10.-12. júní. Öryggi, loftslagsbreytingar og samkeppnishæfni eru þrjár helstu áskoranirnar sem Evrópusambandið stendur frammi fyrir og græn orkuskipti eru svarið við þeim að mati Jørgensen. „Loftslagsbreytingar eru nú þegar staðreynd og það er siðferðileg skylda okkar að spyrna þar við fótum,“ sagði hann einnig í opnunarræðu sinni á ráðstefnunni sem fulltrúi Samorku sat.

Wopke Hoekstra loftslagsmálastjóri Evrópusambandsins í ræðustóli á ráðstefnunni.

Loftslagsmálastjóri Evrópusambandsins Wopke Hoekstra talaði á svipuðum nótum þegar hann ávarpaði ráðstefnuna á öðrum degi hennar. Þörf væri á sérstakri „Marshall-áætlun“ í orkumálum enda gríðarlegar fjárfestingar nauðsynlegar í þeim geira. Þar nefndi Hoekstra t.d. uppbyggingu flutnings- og dreifikerfa raforku, tengingar yfir landamæri og meiri getu til að geyma orku. ESB þyrfti að leggja enn frekari áherslu á endurnýjanlega orkugjafa til að berjast gegn loftslagsvánni og öfgar í veðurfari væru nú þegar að valda gríðarlegu tjóni.

Orkuskiptin og áfallaþol mikilvægra innviða í ljósi nýrra ógna var viðfangsefni málstofu á ráðstefnunni þar sem þátt tóku fulltrúar Atlantshafsbandalagsins, Evrópusambandsins og orkufyrirtækja í Evrópu. Þátttakendur sögðu að öryggi og getan til að bregðast skjótt við aðsteðjandi hættum eigi að vera órjúfanlegur hluti af allri áætlanagerð í orkugeiranum. Fjárfesting í öryggi skili sér líka margfalt til baka. Þá sé mikilvægt að halda fleiri æfingar og auka þjálfun á þessu sviði. Umræðan í málstofunni var að mörgu leyti af svipuðum toga og í lokamálstofu Samorkuþings þar sem fjallað var öryggismál og vernd orku- og veituinnviða í ljósi þróunar alþjóðamála, einkum í Evrópu.

Fulltrúar Atlantshafsbandalagsins, ESB og orkufyrirtækja í málstofu um öryggi, áfallaþol innviða og nýjar ógnir.

Þessi ráðstefna á vegum framkvæmdastjórnar ESB var mjög fjölbreytt og á henni var ekki síst litið til framtíðar, fjallað um tækninýjungar og loftslagsmálin voru einnig í brennidepli. Meðal ræðumanna var Selwin Hart sem stýrir loftslagsaðgerðateymi aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. Hann kallaði líka eftir hraðari orkuskiptum og skýrri framtíðarsýn á krossgötum í loftslagsmálum. Hagsmunamál orkugeirans voru að sjálfsögðu ofarlega á baugi á ráðstefnunni, þar á meðal að einfalda og hraða leyfisveitingaferli vegna framkvæmda svo ekki þurfi að bíða árum saman eftir niðurstöðu.