23. mars 2026 Þýskaland í forystu í nýrri vindorku í Evrópu Þýskaland bar höfuð og herðar yfir önnur Evrópulönd í fyrra í uppbyggingu vindorku. Þýsk orkufyrirtæki bættu þannig við 5.7 GW af uppsettu vindorkuafli árið 2025. Lang mest af þessari aukningu, eða um 91%, var á landi. Þetta er hátt í þriðjungur af allri nýrri vindorku í álfunni í fyrra sem nam 19.1 GW. Í öðru sæti var Tyrkland þar sem 2.1 GW af uppsettu vindorkuafli bættust við en Svíþjóð var síðan í þriðja sæti með 1.8 GW. Þessi gríðarlega uppbygging í Þýskalandi er sýnileg þegar ferðast er um landið, þar eru raðir af vindmyllum meðfram hraðbrautum og víðar. Vindorkuver í löndum Evrópusambandsins framleiddu 465 terwattstundir (TWh) af rafmagni í fyrra sem er um 19% af eftirspurninni í ESB, samkvæmt samantekt Wind Europe. Samtals er uppsett afl vindorkuvera í Evrópu nú 304 GW, og þar af eru 265 GW á landi (onshore) en 39 GW á hafi úti (offshore). Þetta er í takti við uppbygginguna í fyrra því langmest af nýju vindorkuafli i álfunni, eða um 90%, er í vindorkuverum á landi, 17,2 GW. Stjórnvöld í Þýskalandi og í einstökum landshlutum hafa lagt mikla áherslu á að stytta og einfalda ferli leyfisveitinga. Það er ein skýringin á þessari miklu uppbyggingu vindorku í landinu en þetta hefur þó gengið misjafnlega eftir sambandsríkjum. Bygging meira en 2400 vindmylla var samþykkt í Þýskalandi árið 2024 með 14 GW af uppsettu afl yrðu þær allar reistar. Í sumum sambandsríkjum hefur tekið minna en eitt ár að veita leyfi fyrir nýjum vindorkuverkefnum en í öðrum hefur tekið 3-4 ár að ljúka þessu leyfisveitingaferli. Allt útlit er fyrir áframhaldandi mikla uppbyggingu vindorku í Evrópu. Í fyrra voru þannig teknar lokaákvarðanir um fjárfestingar upp á 45 milljarða evra, til að fjármagna 20.9 GW af nýju vindorkuafli, að því fram kemur í samantekt Wind Europe sem Samorka er aðili að. Hér á landi er Landsvirkjun á fullri ferð að reisa vindorkuver sem kennt er við Vaðöldu. Önnur orkufyrirtæki og aðilar eru síðan með vindorkuverkefni í undirbúningi víða um landið.