Metnaðarfullt fræðslustarf fyrirtækja: Lykill að framsæknu atvinnulífi
Menntamorgnar atvinnulífsins fara af stað aftur 5. janúar næstkomandi 09:00 – 10:00 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35.
Boðið verður upp á morgunkaffi. Menntamorgnar eru samstarfsverkefni SA og aðildarsamtaka.
Fundurinn ber yfirskriftina Metnaðarfullt fræðslustarf fyrirtækja – lykill að framsæknu atvinnulífi.
Dagskrá
- Skrautfjöður eða strategískt markmið? Allt um tilnefningar til menntaverðlauna atvinnulífsins – Ásdís Eir Símonardóttir mannauðsstjóri Lucinity og forseti Mannauðs, félags mannauðsfólks á Íslandi
- Menntasprotinn okkar – kærkomin viðurkenning og hvatning – Knútur Rafn Ármannsson eigandi og framkvæmdastjóri Friðheima
- Menntaverðlaunin komin í hús – við settum okkur markmið – Gunnar Egill Sigurðsson forstjóri Samkaupa
Fundarstjóri er Kristín Lúðvíksdóttir, sérfræðingur hjá SFF.
Menntamorgunninn er hugsaður sem hvatning fyrir fyrirtæki og upptaktur að Menntadegi atvinnulífsins sem fer fram 14. febrúar nk.