2. febrúar 2012 Af virkjunum og hagsmunum komandi kynslóða Morgunblaðsgrein Gústafs Adolfs Skúlasonar: Af virkjunum og hagsmunum komandi kynslóða Oft heyrum við áréttað mikilvægi þess að staðinn sé vörður um hagsmuni komandi kynslóða, ekki síst þegar færð eru rök gegn framkvæmdum við virkjun vatnsafls eða jarðhita. En hvaða hugsun er þarna að baki? Ef ég byggi hús á tiltekinni lóð, er ég þá að hafa af komandi kynslóðum tækifærið til að reisa öðru vísi hús á þeirri sömu lóð? Tæplega, enda væntanlega hægur vandi að rífa húsið og byggja nýtt. Hvað með orkuna, verð ég búinn að klára hana fyrir komandi kynslóðum ef ég reisi virkjun í dag? Augljóslega ekki, við erum að tala um sjálfbæra nýtingu endurnýjanlegra orkulinda. Komandi kynslóðir munu hins vegar njóta ávaxtanna af því ef fyrri kynslóðir hafa reist slíkar virkjanir, sem enn skapa verðmæti mörgum áratugum eftir að upphafleg fjárfesting hefur verið afskrifuð líkt og dæmin sanna. Óvirkjað vatnsafl eða jarðhiti skila á hinn bóginn engum tekjum í skilningi orkusölu. Hér er því væntanlega horft til beinna efnahagsáhrifa af sjálfum virkjanaframkvæmdunum og tengdum framkvæmdum í uppbyggingu atvinnulífs (sem skilja eftir verðmætaskapandi atvinnustarfsemi til frambúðar), eða til sjónarmiða um náttúruvernd. Öruggast að gera ekki neitt? Auðvitað eru það skiljanleg sjónarmið að við sem lifum hér í dag eigum ekki að taka ákvarðanir um röskun á tilteknum orkuríkum náttúrusvæðum og hafa þannig ákvörðunarvald af komandi kynslóðum í þeim efnum. Á meðan skila umrædd svæði hins vegar engum verðmætum í skilningi orkusölu og tengdrar atvinnustarfsemi. En hvenær má þá taka ákvarðanir um orkunýtingu? Verða ekki alltaf einhverjar komandi kynslóðir? Og hvað með aðrar framkvæmdir en orkunýtingu? Fangelsi á Hólmsheiði? Stórt og áberandi verslunarhúsnæði í fallegri hlíð eða hrauni? Þetta þykja sumum ef til vill minniháttar ákvarðanir í samanburði við nýjar virkjanir, en vitum við hvað komandi kynslóðum mun þykja um það? Ekki hef ég neitt umboð til að tjá mig í nafni komandi kynslóða. Veit ekki hvaðan ýmsir aðrir telja sig hafa slíkt umboð. Öruggast væri ef til vill að gera aldrei neitt, en þá taka komandi kynslóðir kannski ekki við sérlega spennandi búi.
22. desember 2011 Rafmagnseftirlitsgjald tvöfaldað Alþingi samþykkti á dögunum (17. desember) frumvarp iðnaðarráðherra um tvöföldun á eftirlitsgjaldi með flutningsfyrirtæki og dreifiveitum raforku. Gjaldið skilaði á liðnu ári um 50 milljónum króna en mun því á næsta ári skila um 100 milljónum. Samorka benti í umsögn sinni um frumvarpið á að allur kostnaður sem lagður er á flutning og dreifingu raforku greiðist á endanum af kaupendum orkunnar. Þá hafi dreifi- og flutningsveitur verið reknar samkvæmt ítrustu kröfum laga og reglna og vel innan settra tekjumarka. Tvöföldun á umfangi eftirlitsins yrði því að teljast nokkuð rausnarlegt og án nægjanlegs tilefnis. Þess má loks geta að auk framgreinds eftirlitsgjalds greiða raforkufyrirtækin um 180 milljónir á ári til rafmagnseftirlits Mannvirkjastofnunar, sem raunar hefur undanfarin ár einungis að hluta til verið varið til eftirlitsins en afgangurinn orðið eftir í ríkissjóði (um 70 milljónir króna).
2. desember 2011 Erindi af veitustjórafundi Fjölsóttur veitustjórafundur var haldinn fimmtudaginn 1. desember. Tryggvi Þór Haraldsson formaður opnaði fundinn og forstjóri Neytendastofu afhenti forstjóra Norðurorku vottun fyrir sölumæla. Þá voru flutt þrjú erindi, sem nálgast má hér að neðan. Virkjunarframkvæmdir á Norðausturlandi Pálmar Óli Magnússon, framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs Landsvirkjunar Jarðskjálftavirkni við niðurdælingu jarðhitavökva Ólafur G. Flóvenz, forstjóri ÍSOR Ný sveitarstjórnarlög og veitufyrirtækin Guðjón Bragason, sviðsstjóri lögfræði- og velferðarsviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga
2. desember 2011 Norðurorka færi heimild til reksturs á innra eftirlitskerfi fyrir sölumæla Á fjölsóttum veitustjórafundi Samorku fékk Norðurorka afhenta heimild Neytendastofu til reksturs á innra eftirlitskerfi fyrir sölumæla raforku og vatns (heitt og kalt). Áður hafa Orkubú Vestfjarða og RARIK fengið heimild sem snýr að raforkumælum. Sjá nánar á vef Norðurorku.
29. nóvember 2011 Haustfundur Jarðhitafélagsins 6. desember – Sérstaða jarðhitanýtingar á Íslandi Jarðhitafélag Íslands heldur haustfund sinn þriðjudaginn 6. desember, í Orkugarði að Grensásvegi, og hefst fundurinn kl. 13:00. Yfirskrift fundarins að þessu sinni er Sérstaða jarðhitanýtingar á Íslandi, og verður m.a. fjallað um stofnkostnað jarðvarmavirkjana, boranir, rannsóknir, klasasamstarf og aðkomu Íslendinga að jarðhitaverkefnum erlendis. Sjá dagskrá fundarins á vef Jarðhitafélagsins.
25. nóvember 2011 Flutningslínur í jörð – hærri raforkukostnaður Fréttablaðsgrein Gústafs Adolfs Skúlasonar: Flutningslínur í jörð – hærri raforkukostnaður Nokkur umræða hefur verið um það undanfarið að leggja beri flutningslínur raforku í jörð. Mikil þróun hefur orðið í þeim efnum undanfarna áratugi hvað dreifikerfið varðar og nú er svo komið að við sjáum hvergi loftlínur til dreifingar á raforku í þéttbýli. Öll slík dreifikerfi hafa verið grafin í jörðu, hérlendis. Þá hafa loftlínur víðast hvar vikið fyrir jarðstrengjum í dreifikerfum á landsbyggðinni. Fyrir flutningsminni mannvirki er kostnaður strengja oftast nær sambærilegur við loftlínur, sé horft til síðustu tveggja áratuga eða svo. Orkufyrirtækin hafa nýtt sér þetta við uppbyggingu og endurnýjun kerfanna og valið jarðstrengi í stað loftlína. Þessi þróun mun halda áfram og hlutfall strengja enn vaxa í framtíðinni. Aukin umhverfisáhrif Hins vegar er kostnaður við flutningsmeiri jarðstrengi ennþá mikill. Á hærri flutningsspennum (220 kV) er kostnaður við jarðstrengi 5-7 faldur kostnaður við sambærilega loftlínu. Meginskýringin felst í tæknilegum mun á jarðstrengjum og loftlínum, mun sem vex með aukinni flutningsþörf og hærri spennu. Umhverfisáhrif jarðstrengja á lægri spennustigum eru til þess að gera lítil en aukast með hækkandi spennustigi. Sjónræn áhrif loftlína eru almennt meiri en mun auðveldara er að skila landi í sambærilegu ástandi eftir notkun þeirra en jarðstrengja. Sem dæmi má nefna hrauni þakin svæði, þar sem margra metra breiðir skurðir eru augljóslega meira og varanlegra inngrip í náttúruna en möstrin. Hvergi í heiminum hefur enda verið farið út á þá braut að leggja flutningskerfi raforku alfarið í jörð. Víða um land er hins vegar þörf á eflingu flutningskerfisins og ljóst að efling kerfisins hlýtur að vera forgangsatriði, umfram margfalt dýrari framkvæmdir við færslu á loftlínum í jörð. Hærri raforkukostnaður Almennt myndar flutningur raforku (sem Landsnet annast fyrir allt landið) nú rúm 10% af endanlegum raforkukostnaði neytenda. Dreifing myndar tæp 45%, en hvoru tveggja telst til sérleyfisstarfsemi sem lítur ströngum reglum og eftirliti Orkustofnunar varðandi tekjumörk, gjaldskrár og arðsemi (framleiðsla og sala á raforku eru hins vegar samkeppnissvið og mynda hvor um sig rúm 40% og tæp 5% af endanlegum raforkukostnaði). Ljóst er, að ef tekin yrði um það pólitísk ákvörðun að hefjast handa við að færa flutningslínur Landsnets í jörðu myndi það valda gríðarlegum kostnaðarauka fyrir fyrirtækið. Ef allt flutningskerfið yrði endurbyggt með jarðstrengjum yrði umframkostnaðurinn á bilinu 400-500 milljarðar króna. Afleiðingarnar af því yrðu augljóslega veruleg hækkun raforkukostnaðar um land allt og væntanlega miklar seinkanir á eflingu flutningskerfisins þar sem þess er helst þörf.
15. nóvember 2011 Hitaveitur spöruðu landsmönnum 2.420 milljarða – Óhagkvæmt að setja upp rennslismæla fyrir kalt vatn Ef jarðvarma til húshitunar á Íslandi nyti ekki við er líklegt að olía væri nýtt í staðinn. Að mati Orkustofnunar nemur uppsafnaður sparnaður Íslendinga af því að nota jarðvarma í stað olíu á árunum 1970-2010 um 2.420 milljörðum kr. á verðlagi í júní 2010 og er þá miðað við 5% raunvexti. Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um nýtingu vatns á Íslandi. Í skýrslunni er fjallað um vatnsveitur, hitaveitur, raforkuframleiðslu, fráveitur o.fl. Kostnaður allt að 2,5 milljarðar við að setja upp rennslismæla fyrir kalt vatn Fram kemur að Íslendingar nýta um tvöfalt meira af ferskvatni en flestar nágrannaþjóðir okkar, eða um 269 rúmmetra hver á ári á tímabilinu 2005-2007. Samkvæmt vatnatilskipun ESB ber aðildarríkjum að stefna að því að verðlagning vatns hvetji notendur til að nýta auðlindina á hagkvæman hátt, en greiðsla fyrir nýtingu í samræmi við magn skapar slíkan hvata. Hagfræðistofnun bendir á að þar sem kalt vatn er almennt ekki selt um rennslismæla til heimila hérlendis – heldur er gjaldtakan víðast hvar áætluð út frá fasteignamati – þá uppfyllum við ekki þessi ákvæði tilskipunarinnar. Stofnunin bendir hins vegar á að það mundi skv. lauslegu mati kosta allt að 2,5 milljarða króna að setja upp rennslismæla í öll íbúðarhús. „Vegna þess hve Ísland er auðugt af vatni er óvíst hvort ávinningur af skilvirkari nýtingu vatns sé kostnaðarins virði og hvort hagkvæmara sé fyrir Ísland að halda í núverandi fyrirkomulag þótt það samræmist ekki vatnatilskipuninni,“ segir í skýrslu Hagfræðistofnunar. Skýrslu Hagfræðistofnunar má nálgast hér á vef Umhverfisstofnunar.
14. nóvember 2011 Öflug nýsköpun í íslenskum orkuiðnaði Ásgeir Margeirsson, stjórnarformaður HS Orku, segir umtalsverða nýsköpun eiga sér stað í orkuiðnaði og á Íslandi sé mikil þörf fyrir vel menntaða sérfræðinga af ýmsu tagi. „Sem dæmi vil ég nefna að í orkuverum HS Orku í Svartsengi og á Reykjanesi hafa verið framkvæmd fjölmörg flókin verk og tæknimál leyst, á máta sem aldrei hefur verið gert áður, hvergi í veröldinni." Þetta kom m.a. fram á opnum fundi Samtaka atvinnulífsins (SA) um atvinnu- og efnahagsmál, þar sem kynnt var ný skýrsla SA, Rjúfum kyrrstöðuna. Leiðir til betri lífskjara. Sjá nánar á vef SA
14. nóvember 2011 Námskeið fyrir hita-og vatnsveitur Hér má skoða dagskrá námskeiðsins og fyrirlestraglærur: Dagskrá, Dælur; Viðhaldskerfi; Málmsuða; Bilanaleit; Viðhald; Vatnsborðsmælingar; Djúpvatnsdælur; Lagnaskipulag. Meðal gagna sem lögð voru frami á námskeiðinu má nefna heftið "Smíðamálmar" eftir Pétur Sigurðsson, sem hélt erindið um málmsuðu. Bókin er til sölu hjá höfundi og er hægt að panta hana með því að senda tölvupóst á : petur@vps.is Eftirfarandi veitur og fyrirtæki lögðu til sérfræðinga til flutnings á erindum á námskeiðinu og kann Samorka þeim miklar þakkir: Sjá einnig myndir frá námskeiðinu, neðar á síðu.
10. nóvember 2011 Haustfundur Landsvirkjunar 15. nóvember Landsvirkjun heldur haustfund sinn í Hörpu þriðjudaginn 15. nóvember, þar sem leitast verður við að draga fram áhrif nýrrar stefnu á rekstur fyrirtækisins. Fundurinn er opinn en skráningu og nánari upplýsingar er að finna hér á vef Landsvirkjunar.