Jarðhiti er stöðugur orkugjafi segir orkumálastjóri ESB

Jarðhiti er stöðugur orkugjafi og aukin nýting hans til húshitunar og annarra nota er mikilvæg til að efla hreina orkugjafa innan Evrópusambandsins. Þetta voru megin skilaboð Dan Jørgensen, orkumálastjóra ESB, á árlegum fundi Euroheat and Power í Brussel, 3. nóvember s.l.

Orkumálastjórinn nefndi í ræðu sinni helstu áskoranir ESB í orkumálum sem eru að hans mati að lækka orkuverð, minnka losun gróðurhúsalofttegunda og efla orkuöryggi. Meiri nýting jarðhita er augljóslega mikilvæg á öllum þessum sviðum. Tveir þriðju af þeirri orku sem notuð er innan ESB til hitunar og kælingar er úr jarðefnaeldsneyti sem kaupa þarf dýrum dómum á alþjóðlegum orkumörkuðum. Dan Jørgensen sagði að ESB væri að undirbúa stefnumótun um hitun og kælingu „Heating and Cooling Strategy.“  „Við ætlun að stækka hratt hlut endurnýjanlegra orkugjafa,“ sagði orkumálastjórinn ennfremur.

Framkvæmdastjórn ESB hyggst einnig setja upp samstarfsvettvang um nýtingu jarðhita „Geothermal Stakeholders Partnership“ snemma á næsta ári. Samorka fylgist grannt með framvindu þess máls og leggur áherslu á að sjónarmið og reynsla íslenskra jarðhitafyrirtækja verði tekin með í reikninginn. Samorka er einnig meðlimur í EGEC, evrópsku jarðhitasamtökunum sem eru í stöðugum samskiptum við framkvæmdastjórnina um þennan samstarfsvettvang og fleira.