ESB opnar samráðsgátt um framtíðarstefnu í loftslagsmálum

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur opnað samráðsgátt fyrir nýjan stefnuramma um loftslagsmál eftir 2030 „EU‘s post-2030 climate policy framework.“ Framkvæmdastjórnin hvetur alla haghafa til að koma að sínum sjónarmiðum en gáttin er opin til 4. maí n.k.

Evrópusambandið hefur sett fram það markmið að minnka losun gróðurhúsalofttegunda um 90% árið 2040, miðað við stöðuna árið 1990. Samráðið framundan snýst einnig um loftslagsmarkmið í einstökum aðildarríkjum sem renna út árið 2030 samkvæmt tilkynningu ESB. Markmiðið er að viðhalda sterkum hvötum  til að minnka losun í samræmi við 2040-markmið ESB.

Framkvæmdastjórn ESB hvetur þá sem senda inn umsagnir að þeir leggi sitt af mörkum til að tryggja að framtíðarreglur ESB um loftslagsmál verði sanngjarnar, hagkvæmar og lagaðar að mismunandi aðstæðum í einstökum löndum.  Lög og reglur ESB um loftslagsmál hafa áhrif hér á landi i gegnum innleiðingu þeirra á grundvelli EES-samningsins.

Árangur í loftslagsmálum er samtvinnaður uppbyggingu endurnýjanlegra orkugjafa þar sem íslenski orkugeirinn stendur framarlega.

Hlekkur á tilkynningu framkvæmdastjórnar ESB og samráðsgáttina er hér:

Have your say on the EU’s post-2030 climate policy framework – Climate Action