Stjórn Samorku kynnti sér áfallaþol innviða, NATO og Evrópuþingið í heimsókn til Brussel 

Áfallaþol orku- og veituinnviða og orkuöryggi voru í brennidepli þegar stjórn Samorku heimsótti höfuðstöðvar Atlantshafsbandalagsins í ferð til Brussel 4.-5. febrúar s.l. Stjórnin fór einnig í Evrópuþingið til að kynna sér gangverk Evrópusambandsins, með sérstakri áherslu á orku- og veitumál. Hún ræddi sömuleiðis helstu áherslur í hagsmunagæslu íslenskra stjórnvalda gagnvart ESB við embættismenn í sendiráði Íslands í Brussel. 

„Þessi ferð til Brussel var lærdómsrík og dýrmætt að hitta sérfræðinga hjá Atlantshafsbandalaginu til að fræðast um stefnu og aðgerðir bandalagsins í að efla áfallaþol og orkuöryggi. Samorka leggur  þunga áherslu á vernd ómissandi innviða sem félagsmenn okkar eru ábyrgir fyrir, bæði í orku- og veitugeiranum, enda varðar það þjóðaröryggi,“ sagði Sólrún Kristjánsdóttir, formaður stjórnar Samorku.  Fastanefnd Íslands hjá Atlantshafsbandalaginu tók vel á móti stjórninni sem átti m.a. gagnlegan fund með Jörundi Valtýssyni sendiherra og fastafulltrúa Íslands hjá NATO og fleirum úr fastanefndinni. 

„Samstarf við evrópsk nágrannaríki okkar og hagsmunagæsla gagnvart íslenskum hagsmunum í Brussel er mikilvægt fyrir Samorku. Heimsóknin til Brussel er liður í þeirri vegferð,“ sagði Finnur Beck framkvæmdastjóri Samorku sem einnig var með í ferðinni ásamt Katrínu Helgu Hallgrímsdóttur lögfræðingi samtakanna. „Lög og reglur Evrópusambandsins sem innleiddar eru í íslenska löggjöf í gegnum EES-samninginn hafa mikil áhrif á starfsumhverfi orku- og veitufyrirtækja hér á landi. Því var það rökrétt skref að kynna sér starfsemi Evrópuþingsins sem setur einmitt þá löggjöf ásamt ráðherraráði ESB,“ bætti Finnur við en Samorkuhópurinn átti fund með Barry Andrews Evrópuþingmanni frá Írlandi sem setið hefur í orkunefnd þingsins. 

Samorka steig það skref 1. apríl s.l. að ráða til starfa Svein Helgason sem verkefnisstjóra alþjóðlegs samstarfs með aðsetur á Norrænu orkuskrifstofunni í Brussel. Sveinn hefur það verkefni að efla enn frekar hagsmunagæslu Samorku í Evrópumálum og miðla upplýsingum heim til Íslands. Hann á m.a. í góðu samstarfi við sendiráð Íslands þar sem Samorkuhópurinn fór yfir nokkur af brýnustu hagsmunamálunum á þessu sviði með sérfræðingum og embættismönnum íslenskra stjórnvalda. Þar má nefna tilskipanir ESB um orku og fráveitumál, væntanlega aðgerðaáætlun um eflingu jarðhita og stefnu um viðnámsþrótt vatns. Stefán Haukur Jóhannesson sendiherra Íslands í Brussel hitti svo hópinn síðdegis undir lok viðburðaríkrar dagskrár sem er gott veganesti fyrir ársfund Samorku 17. mars og aðalfund 25. mars. Stjórnin hélt einmitt sinn reglulega fund þann 4. febrúar í Brussel, til að undirbúa starfið fram undan og ræða önnur mál. 

Í stjórn Samorku sitja Sólrún Kristjánsdóttir formaður og framkvæmdastýra Veitna, Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar, Aðalsteinn Þórhallsson framkvæmdastjóri HEF, Guðlaug Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjármála og árangurs hjá Landsneti, Magnús Kristjánsson framkvæmdastjóri Orkusölunnar, Páll Erland framkvæmdastjóri HS-veitna og Ríkarður Ríkarðsson framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og nýsköpunar hjá Landsvirkjun. 

Hér má lesa um mikilvægi áfallaþols fyrir Atlantshafsbandalagið og aðildarríki þess.

https://www.nato.int/en/what-we-do/deterrence-and-defence/resilience-civil-preparedness-and-article-3: Stjórn Samorku kynnti sér áfallaþol innviða, NATO og Evrópuþingið í heimsókn til Brussel 

Hér má lesa um mikilvægi orkuöryggis fyrir Atlantshafsbandalagið og aðildarríki þess.

https://www.nato.int/en/what-we-do/wider-activities/energy-security: Stjórn Samorku kynnti sér áfallaþol innviða, NATO og Evrópuþingið í heimsókn til Brussel