Fagfundur veitna 2015 Samanlagt tóku um 180 manns þátt í vel heppnuðum Fagfundi veitusviðs Samorku sem haldinn var á Hótel Borgarnesi dagana 28.-29. maí 2015. Flutt voru rúmlega 40 erindi um málefni hita-, vatns- og fráveitna, auk þess sem fjallað var um öryggismál, umhverfismál, jarðhita, laga- og regluumhverfi veitufyrirtækja og fleira. Farið var í vettvangs- og vísindaferð þar sem m.a. var skoðuð lífræn hreinsistöð á Hvanneyri og Deildartunguhver, þar sem Orkuveita Reykjavíkur bauð upp á hressingu. Hátíðarkvöldverður var haldinn í Hjálmakletti, þar sem Gísli Einarsson, sjónvarpsmaður með meiru, var veislustjóri og tónlistarfólk af svæðinu gladdi veislugesti. Síðari ráðstefnudaginn var boðið upp á sérstaka makadagskrá þar sem var heimsótt Landnámssetrið í Borgarnesi og Landbúnaðarsafnið á Hvanneyri. Myndir frá fundinum Fimmtudagur 28. maí Veiturnar og samfélagið, ávarp formanns Samorku – Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur Vatnsauðlindin, nýting og umgengni – Guðni A. Jóhannesson, orkumálastjóri Eykur notkun hitaveituvatns líkur á krabbameinum? – Ólafur G. Flóvenz, forstjóri ÍSOR Kynning á þáttunum Orka landsins Hitaveitur: Rekstur hitaveitugeyma – Geir Þórólfsson, HS Orku Ákvarðanataka fyrir sjálfbæra nýtingu lághitajarðvarmakerfa – Silja Rán Sigurðardóttir, doktorsritgerð Háskólanum í Reykjavík Borholu upptektir á lághitasvæðum – Páll Baldvin Sveinsson, Veitum Gátlisti um staðfestingu á gjaldskrám hitaveitna – Hreinn Hrafnkelsson, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu Sjóðandi lághitakerfi finnst við Möðruvelli í Kjós – Þórólfur H. Hafstað, ÍSOR Fráveitur: Sýnatökur, rennslismælingar og leikaleit & Nýr kafli í fráveituhandbók Samorku – Birgir Tómas Arnar og Anton Örn Ingvason, Verkís Staða og uppbygging fráveitu í Akureyrarbæ – Haraldur Jósefsson, Norðurorku Endurvinnsla á seyru með kölkun – Börkur Brynjarsson, Tæknisviði uppsveita Ný dælustöð á Seltjarnarnesi – Gísli Hermannsson, Veitustofnun Seltjarnarness Ástandsskýrsla OECD 2014 og fráveitur – Tryggvi Þórðarson, Umhverfisstofnun Vatnsveitur: Líkanreikningur til mats á áhrifum aukinnar vatnsvinnslu í Vatnsendakrika – Sveinn Óli Pálmarsson, Vatnaskilum Bestu aðferðir til lekaleitar – Gunnar Johnsen, Veitum Grunnvatn, not og álagsþættir – Tinna Þórarinsdóttir og Davíð Egilsson, Veðurstofu Íslands Vatnsvernd Norðurorku og nýtt samstarfsverkefni Samorku og Neyðarlínunnar – Gunnur Ýr Stefánsdóttir, Norðurorku Áhættumat við borun á nýjum holum á vatnsverndarsvæðum – Hlín Benediktsdóttir, Veitum Föstudagur 29. maí Hitaveitur: Vinnslueftirlit hitaveitna – Guðni Axelsson, ÍSOR Frágangur á búnaði í skápum hjá Norðurorku – Arnaldur B. Magnússon Uppbygging á hitaveitum Skagafjarðarveitna – Indriði Þ. Einarsson, Skagafjarðarveitum Holusjármælingar á Íslandi – Sigurveig Árnadóttir, ÍSOR Langþráð endurnýjun á holutopp – Guðmundur Óli Gunnarsson, Veitum Varmadælur til nýtingar varma úr úr sjó inn á hitaveitur – Ragnar Ásmundsson, Varmalausnum og Sigurður Ingi Friðleifsson, Orkusetri Fráveitur: Ný reglugerð um fráveitur og skólp – Sigurjón Kjærnested, Samorku Skólphreinsistöðvar sem gátt fyrir öragnir í umhverfið – Dr. Hrönn Jörundsdóttir, Matís Fíkniefni og lyf í frárennslivatni – Arndís Sue Ching Löve, Háskóla Íslands Vatnsveitur: Samantekt á gæðum neysluvatns á Íslandi – Sigrún Ólafsdóttir, Matvælastofnun og María J. Gunnarsdóttir, Vatnaverkfræðistofu HÍ Stjórnsýsla til að tryggja gæði drykkjarvatns – María J. Gunnarsdóttir, Vatnaverkfræðistofu HÍ Vatnsveitur og neysluvatn í Eyjafirði – Bjarni Gautason, ÍSOR Vatns- og fráveitur: Samanburður á hönnun vatns- og fráveitu í Noregi og á Íslandi – Reynir Sævarsson, EFLU Breytingar á lagaumhverfi vatns- og fráveitna – Elín Smáradóttir, OR Vaktkerfi og viðskiptagreind í veitum – Jón Jónsson, Mannviti Öryggismál og veitur: Hvers vegna öryggismál? – Reynir Guðjónsson, OR Hvað kosta vinnuslys? – Kristján Kristinsson, Landsvirkjun Rafmagn er dauðans alvara! – Lúðvík B. Ögmundsson, Landsneti Lokuð rými – Þorgrímur St. Árnason, HS Orku Upplýsingar um vinnuslys/rafmagnsslys, skráning þeirra og miðlun – Ásgeir Þ. Ólafsson, RARIK Heildstæð vöktunaráætlun fyrir vatnasvæðið Ísland – Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar Orka kvenna er ein af auðlindunum! – Birna Bragadóttir, OR Áætluð samlegð ljósleiðaravæðingar á landsvísu og rafveituframkvæmda RARIK – Ottó V. Winther, innanríkisráðuneytinu Kemur jarðvarminn Íslandi á EM í knattspyrnu 2016? – Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku