20. september 2023 Óskað eftir tilnefningum til Umhverfisverðlauna atvinnulífsins Samtök atvinnulífsins og aðildarfélög óska eftir tilnefningum til Umhverfisverðlauna atvinnulífsins fyrir 13. október 2023. Verðlaunin verða veitt af forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni, á Umhverfisdegi atvinnulífsins 21. nóvember í Hörpu. Nánar um forsendur dómnefndar Tekið er við tilnefningum* hér á meðfylgjandi umsóknarformi. Veitt eru tvenn verðlaun; umhverfisfyrirtæki ársins og framtak ársins. Dómnefnd velur úr tilnefningum en til að tilnefning teljist gild þurfa fyrirtæki að uppfylla sett viðmið og rökstuðningur þarf að fylgja. Tilnefna þarf fyrirtæki sérstaklega undir hverjum flokki en einnig er hægt að tilnefna fyrirtæki fyrir báða flokka. *Einungis er hægt að tilnefna skráð aðildarfyrirtæki Samtaka atvinnulífsins og aðildarfélaga til Umhverfisverðlauna atvinnulífsins. Að Umhverfisdegi atvinnulífsins standa Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og Samtök verslunar og þjónustu. Tilnefna fyrirtæki Skráning á Umhverfisdag atvinnulífsins
18. september 2023 Atmonia hlýtur Nýsköpunarverðlaun Samorku 2023 Atmonia fékk í dag Nýsköpunarverðlaun Samorku 2023. Verðlaunin voru afhent á opnum fundi sem bar yfirskriftina Hugvit / Hringrás / Árangur og fjallaði um mikilvægi orku- og veitutengdrar nýsköpunar. Finnur Beck framkvæmdastjóri Samorku, Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri KLAK – Icelandic Startups og talsmaður dómnefndar og Guðbjörg Rist framkvæmdastjóri Atmonia við afhendingu verðlaunanna í dag. Hér má sjá myndband um sigurvegara Nýsköpunarverðlaunanna 2023. Nýsköpunarfélagið Atmonia var stofnað árið 2016 af Agli Skúlasyni, Helgu Dögg Flosadóttur og Arnari Sveinbjörnssyni með það að markmiði að þróa róttæka og sjálfbæra tækni til að nýta efnahvata við rafefnafræðilega framleiðslu á ammóníaki án losunar gróðurhúsalofttegunda. Ammoníak er mikilvægt fyrir áburðarframleiðslu, en áburður tryggir matvælaöryggi um allan heim. Hins vegar er sú aðferð sem notuð er til framleiðslunnar mjög mengandi og veldur 1-2% af koltvísýringsútblæstri af mannavöldum í heiminum. Þessi nýja tækni hefur möguleika á að umbylta því. Þá er einnig hægt að nýta ammoníak sem rafeldsneyti á stærri farartæki. Tækni Atmonia er einkaleyfavarin sem ber vott um nýnæmi hennar. Við mat dómnefndar var horft til ýmissa þátta eins og nýnæmis, samsetningu teymis, verðmætis fyrir Ísland, markaðstækifæra, verðmætis m.t.t. loftslagsmála og nýtingu orku, vatns og hliðarstrauma fyrir verkefnið. Það er mat dómnefndar að verkefni Atmonia mæti mjög vel lýsingu Samorku á nýsköpunarverðlaununum og þeim þáttum sem hér voru nefndir. Dómnefndin var einróma í mati sínu og telur að framgangur verkefnisins geti haft afar jákvæð og þýðingarmikil áhrif. Má þar nefna nýtingu hreinnar innlendrar orku fyrir eldsneytis- og áburðarframleiðslu, minnkun kolefnislosunar, auknar útflutningstekjur og minni innflutning erlendra afurða. Verkefnið getur einnig nýst víða annars staðar og aukið hróður íslenskrar tækni erlendis. Það er von dómnefndar að Nýsköpunarverðlaun Samorku 2023 verði Atmonia hvatning til enn frekari sigra á spennandi vegferð fyrirtækisins. Þetta er í þriðja sinn sem Nýsköpunarverðlaun Samorku eru afhent. Fyrri handhafar eru Laki Power (2021) og Alor (2022).
Nýsköpunarverðlaun Samorku: Hugvit – Hringrás – Árangur Nýsköpunarverðlaun Samorku verða afhent í þriðja sinn á opnum fundi í Hörpu mánudaginn 18. september kl. 13.00 – 14.30. Öll eru velkomin í Hörpu, en fundinum verður einnig streymt hér og hefst það kl. 13. Fundurinn ber yfirskriftina Hugvit / Hringrás / Árangur og á honum verður fjallað um grósku nýsköpunar í orku- og veitugeiranum, sem er mjög mikilvæg fyrir þær umbreytingar sem eru framundan á orkukerfum heimsins. Dagskrá: Nýjar lausnir fyrir nýja tíma – Finnur Beck, framkvæmdastjóri SamorkuUmgjörð nýsköpunar og tækni í Svíþjóð – Magnus Rehn, fjárfestir, stjórnendaráðgjafi og ráðgjafi nýsköpunarfyrirtækja hjá StingFyrrum handhafar Nýsköpunarverðlauna Samorku taka stöðuna í léttu pallborði – Linda Fanney Valgeirsdóttir hjá Alor og Ósvaldur Knudsen hjá Laki PowerAfhending verðlauna: Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK – Icelandic Startups og talsmaður dómnefndar gerir grein fyrir rökstuðningi dómnefndar. Ásta Sóllilja og Finnur Beck framkvæmdastjóri Samorku afhenda verðlaunin. Fundarstjóri: Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku. Fjögur fyrirtæki eru tilnefnd til Nýsköpunarverðlauna Samorku 2023. Þau eru: ATMONIA – Atmonia þróar róttæka og sjálfbæra tækni sem nýtir efnahvata fyrir rafefnafræðilega framleiðslu á ammoníaki fyrir áburð og rafeldsneyti Þannig er ammoníakið eingöngu framleitt með andrúmslofti, vatni og rafmagni og losar framleiðslan þar með ekki gróðurhúsalofttegundir.GEROSION – Gerosion sérhæfir sig í efnistæknilausnum fyrir jarðhita-, byggingar- og orkufrekan iðnað. Til dæmis hefur Gerosion verið að þróa umhverfisvænt, sementslaust steinlím og er einnig að þróa nýjar varnarfóðringar fyrir háhita- og djúpborunarholur, sem eykur möguleikana á því að framleiða sjálfbæra orku úr jarðvarma.HÁAFELL – Hafa verið brautryðjendur í nýtingu endurnýjanlegrar orku í sjókvíaeldi. Með því að leggja rafstreng í fóðurpramma spara þau 100.000 lítra af olíu á ári, sem jafngildir notkun 100 fólksbíla. SNERPA POWER – Snerpa Power er hugbúnaðarfyrirtæki á raforkumarkaði sem sérhæfir sig í lausnum sem skapa sjálfbært samkeppnisforskot. Með þeirri snjallvæðingu sem hugbúnaður Snerpu Power býður upp á er hægt að draga úr umframafli og nýta það beint í almenn orkuskipti. Fundurinn er öllum opinn og aðgangur er ókeypis, en skráningar er óskað svo hægt sé að tryggja pláss og draga úr matarsóun. Nafn Netfang Fyrirtæki Skrá mig Δ
1. september 2023 Katrín Helga ráðin lögfræðingur Samorku Katrín Helga Hallgrímsdóttir hefur verið ráðin lögfræðingur Samorku. Katrín Helga hefur fjölbreytta reynslu á sviði lögfræði, úr atvinnulífinu og af opinberri stjórnsýslu. Frá 2000 til 2014 starfaði hún í lögmennsku, einkum á sviði fjármála- og fyrirtækjalögfræði og var meðeigandi á lögmannsstofunni BBA Legal. Frá 2013-2018 starfaði hún við kennslu á Bifröst m.a. á sviði kröfuréttar og í stjórnarháttum fyrirtækja. Katrín kemur til Samorku frá Velferðarsviði Reykjavíkurborgar, þar sem hún var starfandi framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur síðastliðin tvö ár. Samhliða föstum störfum hefur Katrín Helga setið í fjölmörgum stjórnum fyrirtækja, stofnana og félagasamtaka. Katrín hóf störf hjá Samorku í dag, 1. september.
14. júlí 2023 Lokun vegna sumarleyfa Skrifstofa Samorku verður lokuð dagana 17. júlí – 7. ágúst. Hægt er að ná í starfsfólk með því að senda póst á samorka@samorka.is. Skrifstofan opnar að nýju þriðjudaginn 8. ágúst.
11. júlí 2023 Tilnefningar óskast til Nýsköpunarverðlauna Samorku 2023 Nýsköpun hefur ávallt verið stór hluti af orku- og veitugeiranum á Íslandi og hefur ný þekking og framsýni lagt grunninn að lífsgæðum í landinu og verðmætasköpun. Samorka óskar eftir tilnefningum til Nýsköpunarverðlauna Samorku, sem afhent verða á sérstökum nýsköpunarviðburði í haust og verður dagsetning kynnt innan skamms. Þetta er í þriðja sinn sem verðlaunin verða afhent. Samorka leitar að framúrskarandi nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum sem byggja á: Orku- og/eða veitutengdum tæknilausnum eða þjónustu við orku- og veitufyrirtæki Nýtingu orku, heits vatns, neysluvatns eða fráveitu og/eða annarra auðlindastrauma til nýsköpunar Dómnefnd fagfólks úr orku- og veitugeiranum mun velja úr þeim tilnefningum sem berast. Fyrirtækjum er velkomið að tilnefna sig sjálf. Óskað er eftir að greinargerð sé skilað að hámarki tvær A4 blaðsíður þar sem rökstutt er hvers vegna viðkomandi fyrirtæki er tilnefnt og hvernig það uppfyllir viðmiðin sem liggja til grundvallar. Orku- og veitufyrirtækin í landinu standa að Nýsköpunarverðlaununum og verða því ekki á meðal verðlaunahafa. Tilnefningar sendist á samorka@samorka.is fyrir 20. ágúst. Farið verður með tilnefningarnar sem trúnaðarmál. Alor hlaut Nýsköpunarverðlaun Samorku árið 2022.
15. júní 2023 Samorka leitar að metnaðarfullum og kraftmiklum lögfræðingi Samorka óskar eftir að ráða öflugan einstakling í starf lögfræðings samtakanna. Um er að ræða spennandi starf fyrir einstakling sem hefur áhuga á að leiða lögfræðitengd verkefni samtakanna á sviði orku- og veitumála, taka þátt í mótun starfsumhverfis orku- og veitugeirans, leiða mótun málefnastefnu Samorku og að eiga í miklum samskiptum við aðildarfélög, stjórnvöld og hagsmunaaðila samtakanna. Helstu verkefni: Yfirumsjón með lögfræðitengdum málefnum í starfsemi samtakanna Lögfræðileg ráðgjöf um innra starf samtakanna og eftir atvikum til aðildarfélaga Umsjón og eftirfylgni með samkeppnisréttaryfirlýsingu samtakanna Ritari stjórnar Ritun umsagna um orku- og veitutengd málefni til Alþingis og annarra stjórnsýslustofnana Ritun og umsjón með samningum samtakanna Vöktun á þróun Evrópulöggjafar um orku- og veitutengd málefni og fræðsla til aðildarfélaga Þátttaka í mótun málefnastefnu Samorku ásamt framkvæmd og eftirfylgni með henni Greinaskrif og framkoma á fundum og ráðstefnum Samstarf við hagsmunaaðila, ráðuneyti og opinberar stofnanir Umsjón með tilteknum fag- og málefnahópum sem starfa á vettvangi samtakanna Menntunar- og hæfniskröfur: Embættispróf eða grunn- og meistarapróf í lögfræði. Lögfræðileg starfsreynsla á sviði orku- og veitumála, stjórnsýsluréttar, EES réttar, samkeppnisréttar eða umhverfis- og loftslagsréttar er kostur Þekking og innsýn í lagaumhverfi og starfsemi orku- og veitugeirans er kostur Frumkvæði, sjálfstæð og öguð vinnubrögð Færni og lipurð í mannlegum samskiptum Mjög góð hæfni í textagerð og reynsla af miðlun upplýsinga Góð hæfni til að tjá sig í ræðu og riti, bæði á íslensku og ensku Umsóknarfrestur er til og með 26. júní 2023. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni. Nánari upplýsingar um starfið veita Sigríður Svava Sandholt (sigridur@intellecta.is), Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku (finnur@samorka.is). Auglýsingin á Alfreð Auglýsingin á heimasíðu Intellecta Um Samorku: Hjá Samorku starfar metnaðarfullur og samhentur hópur starfsmanna með brennandi áhuga á orku- og veitumálum. Aðildarfélög Samorku eru um 50 orku- og veitufyrirtæki um allt land og samtökin eru aðilar að Samtökum atvinnulífsins. Stefna Samorku er að starfrækja trúverðugan, fræðandi og jákvæðan vettvang um starfsemi og hagsmuni aðildarfyrirtækja og að samtökin njóti trausts almennings og stjórnvalda sem leiði til farsællar þróunar í orku- og veitumálum á Íslandi. Samorka er samstarfsvettvangur aðildarfyrirtækja og faglegur vettvangur þeirra í félags-, kynningar- og fræðslumálum. Það eru spennandi tímar framundan í orku- og veitumálum við að tryggja áfram heilnæmt drykkjarvatn, umhverfisvænar fráveitur, heitt vatn og rafmagn fyrir heimilin, atvinnulífið og orkuskiptin.
14. júní 2023 Auglýst eftir umsóknum um styrki til fráveituframkvæmda Opnað hefur verið fyrir umsóknir sveitarfélaga um styrki til fráveituframkvæmda. Umsóknarfrestur vegna styrkjanna er til 1. september 2023. Þetta er í þriðja skipti sem fráveitustyrkir eru auglýstir til umsóknar. Skilyrði fyrir styrkveitingu er að fráveituframkvæmdin sé áfangi í heildarlausn á fráveitumálum sveitarfélags í samræmi við áætlun sem hlotið hefur samþykki umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins. Í fjárlögum vegna ársins 2023 er gert ráð fyrir að 600 m.kr. verði varið til þess að styrkja sveitarfélög vegna fráveituframkvæmda. Styrkhæfar fráveituframkvæmdir eru framkvæmdir við safnkerfi fráveitna, hreinsivirki, dælustöðvar og útrásir. Einnig framkvæmdir við hreinsun ofanvatns, svo sem til að draga úr mengun af völdum örplasts. Meðal skilyrða fyrir að fráveituframkvæmd teljist styrkhæf er að kostnaður hafi fallið til eftir 1. janúar 2020. Kostnaður við útboð, fjármagns- og lántökukostnaður og kaup á löndum og lóðum vegna framkvæmda í fráveitumálum teljast ekki styrkhæf. Sama gildir um hefðbundið viðhald og endurbætur á eldri fráveitukerfum. Þó eru endurbætur á eldri kerfum styrkhæfar ef tilgangurinn með endurbótunum er að kerfin standist gildandi kröfur laga og reglugerða. Styrkir Styrkfjárhæð nemur að jafnaði 20% af staðfestum heildarkostnaði styrkhæfrar fráveituframkvæmdar. Styrkfjárhæð skal þó aldrei verða hærri en 30% af heildarkostnaði og að jafnaði aldrei lægri en 15%. Umsóknir á eyðublaðavef Stjórnarráðsins Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á eyðublaðavef Stjórnarráðsins. Nánari upplýsingar um umsóknarferlið og skilyrði má finna á heimasíðu Stjórnarráðsins.
9. júní 2023 Loftslagsvegvísir orku og veitna Orku- og veitugeirinn hefur sett fram metnaðarfullar aðgerðir sem styðja við markmið stjórnvalda í umhverfis- og loftslagsmálum. Aðgerðirnar eru meðal þeirra 332 sem afhentar voru Guðlaugi Þór Þórðarsyni, umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra á Grænþingi í Hörpu í gær. Orku- og veitugeirinn gegnir lykilhlutverki þegar kemur að umhverfis- og loftslagsmarkmiðum Íslands. Áframhaldandi aðgengi heimila og atvinnulífs að endurnýjanlegri orku og traustum innviðum er forsenda þriðju orkuskiptanna. Í Loftslagsvegvísi orku og veitna eru lagðar fram fimm úrbótatillögur: Laga- og regluverk þarf að styðja við orkuskiptin Auka þarf samráð í málefnum tengdum geiranum Tryggja þarf fyrirsjáanleika í rekstrarumhverfi orku- og veitugeirans Hvata þarf fyrir almenning til að auka orkunýtni Auka þarf aðgengi að gögnum hjá opinberum stofnunum Hægt er að lesa nánar um úrbótatillögur og aðgerðir sem stuðla að samdrætti í losun GHL í ítarefni á heimasíðu Loftslagsvegvísa atvinnulífsins.
8. júní 2023 332 tillögur um samdrátt í losun atvinnugreina Ellefu atvinnugreinar hafa nú afhent Guðlaugi Þór Þórðarsyni, umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra 332 tillögur að aðgerðum sem stuðla eiga að auknum samdrætti í losun atvinnugreina. Afhendingin fór fram á Grænþingi í Hörpu í gær, í tengslum við útgáfu Loftslagsvegvísa atvinnulífsins (LVA). LVA er samstarfsverkefni atvinnulífs og stjórnvalda og var vinnan unnin á forsendum fyrirtækja í íslensku atvinnulífi með stuðningi frá vinnuteymi umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins. Guðlaugur Þór Þórðarsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Til að metnaðarfull markmið stjórnvalda í loftslagsmálum náist þurfa allir að leggjast á eitt — stjórnvöld, atvinnulíf, sveitarfélög og almenningur í landinu. Það er ánægjulegt að sjá að atvinnulífið hefur stigið þetta skref til þátttöku í baráttunni gegn loftslagsbreytingum og upplifa þann metnað og áhuga sem þessar 11 atvinnugreinar sýna með vegvísum sínum. Vegvísarnir verða innlegg í uppfærða aðgerðaáætlun í loftslagsmálum sem stjórnvöld ætla að kynna fyrir lok árs og hlakka ég til að halda verkefninu áfram.” Ísland hefur sett sér metnaðarfull markmið um 55% samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda fyrir 2030 og hefur lögfest markmið um kolefnishlutleysi eigi síðar en 2040. Aðkoma íslensks atvinnulífs skiptir sköpum í þeim umskiptum sem nauðsynleg eru til að sett markmið náist. Ennfremur er aðkoma stjórnvalda nauðsynleg á þessari vegferð hvað varðar regluverk, innviði, hvata til grænna fjárfestinga og stuðning við nýsköpun, tækniþróun og orkuskipti. Í því skyni var ákveðið að koma Loftslagsvegvísum atvinnulífsins á legg, en markmið verkefnisins er að auka samstarf og samtal á milli atvinnulífs og stjórnvalda um tækifæri til samdráttar í losun í þeim tilgangi að hraða aðgerðum í þágu loftslagsmarkmiða Íslands og auka samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs. Ein af grunnforsendum skilvirkrar vinnu að loftslagsmarkmiðum er að orkuspá og opinber gögn endurspegli þá áskorun sem staðið er frammi fyrir. Á Grænþingi í Hröpu í gær kynntu fulltrúar atvinnugreinanna vegvísa sína, þar sem rauði þráðurinn var: Uppbygging orkuinnviða og aðgangur að hreinni orku Skilvirkt regluverk og skýr markmið stjórnvalda Fjárfesting í nýjum búnaði og tækni Hvatar vegna loftslagstengdra fjárfestinga og framleiðslu Nýsköpun og rannsóknir Bætt hringrás Loftslagsvegvísar atvinnulífsins innihalda atvinnugreinaskipta vegvísa, sem hafa margir hverjir mælanleg markmið . Þeir geyma einnig sértækar aðgerðir og úrbótatillögur sem snúa bæði að atvinnulífinu og stjórnvöldum um umbætur í loftslagsmálum. Vegvísarnir eru lifandi skjöl sem verða uppfærð reglulega og mun þeim fjölga með uppfærslu aðgerða og fjölgun atvinnugreina. Hægt er að nálgast vegvísana inn á www.loftslagsvegvisar.is.