6. mars 2026 Samstarfsáætlanir ESB um samkeppnishæfni, nýsköpun, vísindi, áfallaþol og innviði Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur birt tillögur að nýjum samstarfsáætlunum fyrir tímabilið 2028-2034. Umfangsmiklar breytingar eru boðaðar á skipulagi og framkvæmd áætlana sem Ísland á aðild að á grundvelli EES-samningsins. Almennt er aukin áhersla lögð á samkeppnishæfni, efnahagslegt sjálfræði á mikilvægum sviðum, viðnámsþol og öryggis – og varnarmál. Máilð er komið í samráðsgátt íslenskra stjórnvalda og geta haghafar skilað inn umsögnum til 12. mars n.k. Orku- og veitufyrirtæki hafa sótt í ýmsa sjóði sem tengjast þessu samstarfi og nýir möguleikar eru ávallt að opnast. Stærsta breytingin frá núverandi fyrirkomulagi felst í stofnun nýs Samkeppnishæfnissjóðs (e. European Competitiveness Fund, ECF). Sjóðnum er ætlað að stórefla fjárfestingar og stuðning við nýsköpun og tækniþróun. Heildarfjárhagsrammi sjóðsins er áætlaður 234,3 milljarðar evra og skiptist í fjóra svokallaða „stefnuglugga.“ Sá langsærsti snýst um viðnámsþol, öryggi, varnariðnað og geiminn (space) eða rúmir 125 milljarðar evra. Í þessum glugga er borgaralegt öryggi, t.d. lykilinnviðir og einnig tækni með tvíþætt notagildi (dual use). Annar stefnugluggi upp á rúma 26 milljarða evra snýst um svokallaða hreina umbreytingu, ss. að draga úr losun frá iðnaði, betri nýtingu orku, fjölbreyttari orkugjafa og mögulega samfjármögnun með „Innovation Fund“ sem er fjármagnaður í gegnum losunarheimildir (ETS) Stefnugluggi sem nær yfir stafræna forystu upp á rúma 51.5 milljarða evra er einnig áhugaverður fyrir orku- og veitufyrirtæki enda lýtur hann m.a. að stafrænum tengingum og innviðum auk netöryggis. Í þessu samhengi má einnig nefna til sögunnar Almannavarnaáætlun ESB (UCPM) sem hefur þann tvíþætta tilgang að samhæfa viðbrögð við neyðarástandi í Evrópu og sömuleiðis að efla áfallaþol og fyrirbyggjandi aðgerðir aðildarríkjanna. Fram kom á kynningarfundi um þessar samstarfsáætlanir sem Samorka fylgdist með að sjóður sem tengist almannavarnaáæltuninni hafi reynst íslenskum stjórnvöldum þar sé hægt að sækja um styrki. Horizon Europe, 10. rammaáætlun ESB um rannsóknir og nýsköpun er svo með heildarfjárhagsramma upp á 175 milljarða evra samkvæmt þeim tillögum sem hafa verið lagðar fram. Markmið áætlunarinnar er að styrkja vísinda -,tækni – og nýsköpunargrunn Evrópu og auka samkeppnishæfni með stuðningi við nýsköpun og grunnrannsóknir. Horizon Europe verður áfram sjálfstæð áætlun, en þó með verulegri samþættingu við nýja Samkeppnishæfnisjóðinn. Samorka tók einnig þátt í opnum fundi í Brussel 25 febrúar s.l. um mikilvægi alþjóðlegrar samvinnu til að styrkja samkeppnishæfni, m.a. með rannsóknum og eflingu hreinna orkugjafa. Sveinn Helgason, verkefnisstjóri erlend samstarfs var þar í pallborði, með fulltrúa norskra stjórnvalda, Rolls Royce og framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Sendiráð Íslands í Brussel var meðal skipuleggjanda og fulltúar RANNÍS, Hafrannsóknastofnunar og nokkurra ráðuneyta voru meðal ráðstefnugesta og þátttakenda. Hér er hlekkur á samráðsgátt íslenskra stjórnvalda vegna þátttöku Íslands í samstarfsáætlunum ESB 2028-2034. Hún er opin til 12. mars n.k. og þar er einnig að finna ýmis fylgiskjöl og frekari upplýsingar. Samráðsgátt | Mál: S-38/2026: Samstarfsáætlanir ESB um samkeppnishæfni, nýsköpun, vísindi, áfallaþol og innviði Hér er svo að finna upptöku á kynningarfund íslenskra stjórnvalda um þessar samstarfsáætlanir sem er liður í opnu samráði þeirra við hagsmunaaðila, þar á meðal Samorku og aðildarfyrirtæki. Kynningarfundi um opið samráð um þátttöku Íslands í samstarfsáætlunum ESB 2028 – 2034.: Samstarfsáætlanir ESB um samkeppnishæfni, nýsköpun, vísindi, áfallaþol og innviði