25. mars 2026 ESB leiðtogar leggja áherslu á orkuskipti sem lausn til framtíðar Leiðtogafundur Evrópusambandsins í Brussel 19.-20. mars lagði áherslu á að orkuskipti væru lykillinn að sjálfræði Evrópu (strategic autonomy), auknu áfallaþoli, lægra orkuverði og meira framboði á hreinni, nægri orku úr heimahögum. Hún sé drifkrafturinn í að knýja áfram efnahagslíf framtíðarinnar. Leiðtogar aðildarríkja ESB telja mikilvægt að hraða enn frekari nýtingu og útbreiðslu endurnýjanlegra orkugjafa og grípa til fleiri aðgerða til að Evrópa sé síður háð óstöðugum mörkuðum með jarðefnaeldsneyti. Með þessu móti verði orkuframboð líka öruggara. Þetta eru góðar fréttir fyrir íslenska orku- og veitugeirann og í samræmi við þau megin skilaboð sem Samorka og aðildarfyrirtækin halda á lofti í Brussel og víðar erlendis. Orkusjálfstæði Íslands stendur styrkari fótum en ella vegna þess að við búum að hreinum og áreiðanlegum orkugjöfum sem árið 2024 mættu 83.6% af orkuþörf íslensks samfélags samkvæmt tölum Eurostat. Ísland er langefst Evrópulanda í þessu efni. Afgangurinn, eða rúmlega 16% af framboði orku hér á landi, er því innflutt, s.s. olía fyrir samgöngur, skip og flugvélar. Í þeim ólgusjó sem nú geisar í alþjóðamálum, ekki síst á orkumörkuðum heimsins, er þetta þjóðaröryggismál. Hætt er við að öldurnar muni ekki lægja í bráð og það er enn frekari hvatning til að ljúka orkuskiptum og efla samkeppnishæfni Íslands með innlendri grænni orku á hagstæðu verði. Leiðtogar ESB hvöttu einnig framkvæmdastjórn sambandsins til að leggja tafarlaust fram „verkfærakassa“ með markvissum og tímabundnum aðgerðum til að takast á við nýlegar verðhækkanir á innfluttu jarðefnaeldsneyti. Þeir kölluðu líka eftir brýnum, markvissum aðgerðum til að lækka raforkuverð og minnka óhóflegar skammtímasveiflur, m.a. fyrir orkufrekan iðnað og hafa þá í huga ólíkar aðstæður aðildarríkjanna. Framkvæmdastjórn ESB var einnig hvött til að vinna náið með aðildarríkjum að tímabundnum og markvissum aðgerðum í ríkjunum til að milda áhrif eldsneytis- og annars kostnaðar á raforkuframleiðslu, án þess að grafa undan hvötum til langtímafjárfestinga eða samkeppnisjöfnuði á innri markaði. Leiðtogarnir boðuðu endurskoðun viðskiptakerfis ESB með losunarheimildir (ETS) eigi síðar en í júlí 2026 til að draga úr sveiflum kolefnisverðs og milda áhrif þess á raforkuverð og tengdan aðfangakeðjukostnað. Þeir lögðu hins vegar líka áherslu á að ETS-kerfið verði áfram í lykilhlutverki í orkuskiptum og loftslagsmálum sem hvati til fjárfestinga og nýsköpunar. Nokkur aðildarríki innan ESB, t.d. Ítala, hafa gagnrýnt ETS-kerfið harðlega og stjórnvöld í Róm m.a. lagt fram tillögur um ríkisstyrki til orkuvera sem brenna gasi. Norræn aðildarríki ESB hafa hinsvegar verið í fararbroddi þeirra sem vilja standa vörð um kerfið ásamt fleiri ríkjum, þ.á.m. Spáni og Portúgal. Niðurstaðan var þessi endurskoðun en ljóst er að ETS-málið er ekki útrætt innan ESB. Leiðtogarnir hvöttu vatt til að hinn metnaðarfulli „EU Grids Package“ um flutnings- og dreifkerfi orku innan ESB, verði samþykktur. Hraða þurfi uppbyggingu raforkuinnviða, verja þá og auka viðnámsþrótt þeirra. Þá þurfi að styrkja samtengingar, m.a. með einföldun og hraðari leyfisveitingum, en einnig með sveigjanlegri nálgun á svokallaðar innlendar flöskuhálstekjur sem taki mið af aðstæðum í einstökum löndum. Aðildarríki ESB og framkvæmdastjórnin í Brussel voru sömuleiðis hvött til að flýta innleiðingu markmiða sem sett hafa verið með Orkusambandi ESB 2030 (Energy Union 2030) svo stuðla megi að aukinni og hagkvæmri rafvæðingu í Evrópu. Sjá nánar um leiðtogafund ESB 19- 20. mars og helstu niðurstöður hans: https://www.consilium.europa.eu/en/meetings/european-council/2026/03/19-20/: ESB leiðtogar leggja áherslu á orkuskipti sem lausn til framtíðar