Umhverfis- og öryggismál á ársfundi Norðurorku Á Arnarnesi er eitt gjöfulasta vinnslusvæði hitaveitu Norðurorku. Ljósmynd: Auðunn Níelsson Ársfundur Norðurorku verður haldinn í menningarhúsinu Hofi á Akureyri föstudaginn 31. mars kl. 15. Fundurinn er öllum opinn en skráningar er óskað á netfangið no@no.is. Dagskrá: 15:00 Ársfundur settur Geir Kristinn Aðalsteinsson formaður stjórnar Norðurorku hf. 15:10 Loftslagsmálin og staða Íslands Helga Barðadóttir frá Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, skrifstofu hafs, vatns og loftslags 15:40 Umhverfisstefna Norðurorku hf. Guðmundur H. Sigurðarson frá Vistorku ehf. dótturfélagi Norðurorku hf. 16:00 KAFFIHLÉ 16:15 Öryggisstefna Norðurorku – áskoranir og tækifæri Gunnur Ýr Stefánsdóttir frá Norðurorku hf. 16:40 Reglulegar öryggisúttektir á framkvæmdasvæðum Þorgeir Valsson frá Ístaki hf. 17:00 Umræður og fyrirspurnir