NORDIWA 2019 í Helsinki Mynd: Eetu Ahanen / Helsinki Marketing Allas sjóböðin Norræna fráveituráðstefnan, NORDIWA, verður haldin í Helsinki í Finnlandi dagana 23. – 25. september 2019. Þar koma saman helstu sérfræðingar Norðurlandanna í fráveitumálum; framkvæmdastjórar, framkvæmdaaðilar, skipulagssérfræðingar, rannsakandur, verkfræðingar, ráðgjafar og fleiri sem áhuga og þekkingu hafa á málaflokknum og loftslagsmálum á Norðurlöndum. Uppfært 20.08.2019: Hátt í 400 manns hafa þegar skráð sig á ráðstefnuna og þar af þó nokkur fjöldi frá íslenskum veitufyrirtækjum. Dagskrá og frekari upplýsingar má finna á heimasíðu ráðstefnunnar. Eetu Ahanen / Helsinki Marketing