Aðal- og ársfundur 2019 Aðal- og ársfundur Samorku var haldinn á Grand hótel þann 6. mars 2019. Á aðalfundi kl. 13 var kjörið í stjórn samtakanna. Helgi Jóhannesson, forstjóri Norðurorku, var endurkjörinn formaður Samorku og Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku, var einnig endurkjörinn í stjórn samtakanna til tveggja ára. Berglind Rán Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar, var kosin í stjórn Samorku í fyrsta sinn. Berglind var kjörin til tveggja ára. Í stjórn sitja jafnframt áfram þau Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets, Inga Dóra Hrólfsdóttir, framkvæmdastjóri Veitna, Jóhanna B. Hansen, bæjarverkfræðingur Mosfellsbæjar og Ragna Árnadóttir aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar. Harpa Þuríður Böðvarsdóttir, Veitum og Indriði Þór Einarsson, Skagafjarðarveitum eru nýir varamenn í stjórn Samorku. Áfram sitja sem varamenn þau Elías Jónatansson, Orkubúi Vestfjarða, Guðbjörg Marteinsdóttir, RARIK og Hörður Arnarson, Landsvirkjun. Konur skipa áfram meirihluta aðalmanna stjórnar Samorku. Að varamönnum meðtöldum er jafnt hlutfall kynja. Stjórn Samorku, að loknum aðalfundi 2019, skipa: Aðalmenn: Ásgeir Margeirsson, HS Orku Berglind Rán Ólafsdóttir, Orku náttúrunnar Guðmundur Ingi Ásmundsson, Landsneti Helgi Jóhannesson, Norðurorku, formaður stjórnar Inga Dóra Hrólfsdóttir, Veitum Jóhanna B. Hansen, Mosfellsbæ Ragna Árnadóttir, Landsvirkjun Varamenn: Elías Jónatansson, Orkubúi Vestfjarða Guðbjörg Marteinsdóttir, RARIK Harpa Þuríður Böðvarsdóttir, Veitum Hörður Arnarson, Landsvirkjun, Indriði Þór Einarsson, Skagafjarðarveitum Ársskýrslu Samorku fyrir árið 2018 var dreift á fundinum, en einnig má nálgast hana á pdf hér. Samorka-Arsskyrsla-V10Download Ályktun aðalfundar Samorku fjallaði um orkustefnu, þriðja orkupakkann og fráveitumál. Hér má nálgast ályktunina á pdf formi: Ályktun aðalfundar 2019Download Kl. 15 hófst opinn ársfundur í Háteig á Grand hótel. Yfirskrift hans var Orkustefna í mótun: Hverjar verða áherslur Íslands til framtíðar. Dagskrá fundarins (glærur fáanlegar með því að smella á erindin): Ávarp – Helgi Jóhannesson, formaður SamorkuÁvarp – Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherraMótun orkustefnu Íslands – Guðrún Sævarsdóttir, formaður starfshóps stjórnvalda um gerð orkustefnuMikilvægi orkustefnu – Páll Erland, framkvæmdastjóri SamorkuCreating Energy Policy: Experience from Norway – Toril Johanne Svaan, deildarstjóri í orkumálaráðuneyti Noregs Fundarstjóri var Guðrún Erla Jónsdóttir, stefnustjóri Orkuveitu Reykjavíkur Hægt er að sjá ljósmyndir og upptökur af fundinum hér.