13. febrúar 2026 Samorka heimsótti nærri 100 ára franska vatnsaflsvirkjun í Rín á Eurelectric-fundi Fulltrúi Samorku sótti fund í vinnuhópi Eurelectric um nýtingu vatnsafls til orkuframleiðslu, sem fram fór í Frakklandi 11.-12. febrúar. Fundargestir fóru m.a. í heimsókn í Kembs-virkjunina í Rín sem franski orkurisinn EDF rekur. Hún er nærri því 100 ára gömul en í fullum rekstri og er jafnframt stjórnstöð fyrir fleiri virkjanir á vegum EDF í ánni. Samorka leggur áherslu á öflugt alþjóðlegt samstarf, aðildarfyrirtækjum til hagsbóta. Liður í því er að efla enn frekar tengsl við fyrirtæki í Evrópu sem nýta vatnsafl til orkuframleiðslu og sömuleiðis hagsunasamtök á þessu sviði. Samorka tekur nú þegar virkan þátt í starfi Eurelectric, m.a. í vinnuhópum á vegum samtakanna. Óli Grétar Blöndal Sveinsson, forstöðumaður í þróun vatnsafls hjá Landsvirkjun, er fastur fulltrúi í vatnsaflshópi Eurelectric en Sveinn Helgason, verkefnisstjóri erlends samstarfs, hljóp í skarðið fyrir Óla á þessum fundi í Frakklandi. Uppsett afl í Kembs-virkjuninni, nálægt frönsku borginni Mulhouse og skammt fyrir sunnan Basel í Sviss, er um 160 MW en virkjunin var tekin í notkun árið 1932. Alls rekur EDF 10 vatnsaflsvirkjanir í Rín, þessu 1230 km langa stórfljóti. sem rennur i gegnum sex lönd, Sviss, Liechtenstein, Austurríki, Frakkland, Þýskaland og Holland. Rín er í senn orkuuppspretta og samgönguæð og því afar mikilvæg fyrir efnahags- og atvinnulíf í nálægum löndum. EDF sér líka um rekstur skipastiga nálægt virkjunum sínum í ánni og liðkar einnig fyrir fiskigengd með nauðsynlegum mannvirkjum, s.s. fiskistigum. Vatnsafl er framarlega í flokki þeirra endurnýjanlegu orkugjafa sem knýja áfram orkuskipti, hér á landi og á alþjóðavísu. Það er líka mikilvægt fyrir stöðugt framboð á raforku, orkuöryggi og sveigjanleika. Fyrirtæki innan vébanda Samorku hafa áratuga reynslu af því að virkja íslensk vatnsföll og eru stöðugt að sækja fram í orkuöflun og nýsköpun. Vatnsafl er burðarstoð í íslensku orkukerfi og þannig er um 70% rafmagns hér á landi framleitt í vatnsaflsvirkjunum.