16. febrúar 2026 Nýjar ógnir kalla á nýja hugsun og aðgerðir segir Eurelectric í skýrslu um áfallaþol raforkuinnviða Eurelectric, Evrópusamtök rafiðnaðarins, hvetja fyrirtæki innan sinna vébanda til að efla stöðuvitund um aðsteðjandi ógnir og bæta viðbúnað til að geta brugðist hratt við hættuástandi. Þetta megi t.d. gera með nánara samstarfi við stjórnvöld og reglulegum æfingum. Þá sé mikilvægt að vernda lykil mannvirki og búnað enn betur m.a. með því styrkja þessa ómissandi innviði, eiga nægar birgðir af varahlutum, efla viðgerðagetu og hafa ávallt í huga áfallaþol gegn netógnum. Þessi tilmæli koma fram í nýrri skýrslu „Battle-tested power systems“ sem Eurelectric kynnti þann 13. febrúar s.s. á öryggisráðstefnunni í München í Þýskalandi. Samorka er aðili að samtökunum sem hafa lagt ríka áherslu á að efla þurfi áfallaþol raforkugeirans í Evrópu í ljósi áskorana í hinu alþjóðlega öryggisumhverfi, ekki síst vegna allsherjar árásarstríðs Rússlands á hendur Úkraínu sem nú hefur staðið í nær fjögur ár. Orku- og veituinnviðir í Úkraínu hafa í ríkum mæli verið skotmark rússneska hersins sem reynir með því að lama samfélag og efnahagslíf Úkraínu og minnka baráttuþrek landsmanna. Skýrslan leggur áherslu á að önnur Evrópulönd geti dregið margvíslegan lærdóm af viðbrögðum stjórnvalda og orkufyrirtækja í Úkraínu við þessum árásum. „Skýrslan gerir okkur í raforkugeiranum kleift að nýta okkur þennan lærdóm frá Ukraínu með því að grípa til aðgerða annars staðar í Evrópu,“ segir Kristian Ruby, framkvæmdastjóri Eurelectric, í tilkynningu. „Nýr veruleiki blasir við okkur með vaxandi ógnum sem krefst þess að við hugsum hlutina upp á nýtt,“ segir Markus Rauramo, forseti Eurelectric. „Fyrirbyggjandi aðgerðir, viðbrögð og uppbygging í kjölfar árása, þarf að vera kjarninn í framtíðar stefnu orkufyrirtækja.“ Stjórnendur raforkufyrirtækja í Evrópu gera sér grein fyrir þeim margvíslegu ógnum sem geirinn stendur frammi fyrir en fyrirtækin virðast þó misvel í stakk búin til að takast á við þær áskoranir. Þetta kom fram í viðtölum sem höfundar skýrslunnar áttu við hóp stjórnenda í geiranum og svörum þeirra við ítarlegum spurningalista. Þegar þeir voru beðnir að meta viðbúnaðarstig síns fyrirtækis á skalanum frá 1 til 10 var meðaleinkunnin 6.7. Fullt hús þýðir þá að fyrirtækið sé tilbúið að takast á við allt sem að kjafti kemur en einkunn upp á einn að það hafi ekkert velt fyrir sér viðbúnaði af þessu tagi. Margir svarendur lögðu áherslu á að áfallaþol eigi ekki að einskorðast við ákveðnar deildir innan fyrirtækjanna. Stjórnendur þeirra verði að hafa forystu um að áfallaþol sé samofið allri starfsemi fyrirtækisins, en sú oft ekki raunin þegar til kastanna kemur. Þetta eigi einkum við um innkaup og birgðakeðjur þar sem stjórnendur bentu sérstaklega á búnað eins og spenna og sérhæfða viðgerðagetu – nokkuð sem verður að vera til staðar en getur verið erfitt að kaupa eða tryggja með hraði þegar áföllin dynja yfir. Fyrirtækin voru öll í löndum Evrópusambandsins og könnunin náði því t.d. ekki til Noregs eða Íslands. Skýrsla Eurelectric fjallar einnig um stefnumótun og tilskipanir Evrópusambandsins um áfallaþol, samstarf ESB og Atlantshafsbandalagsins og margt fleira. Hún er mikilvægt innlegg í umræðu um áfallaþol orku- og veituinnviða sem Samorka hefur mjög látið sig varða, m.a. með nýlegri heimsókn stjórnar og starfsmanna í höfuðstöðvar NATO í Brussel. Með því að ýta á hlekkinn hér að neðan er hægt að hlaða niður og lesa skýrsluna í heild sinni og sömuleiðis lesa fréttatilkynningu Eurelectric. https://www.eurelectric.org/news/battle-tested-electricity-system/: Nýjar ógnir kalla á nýja hugsun og aðgerðir segir Eurelectric í skýrslu um áfallaþol raforkuinnviða