Vetrarfundur KÍO Vetrarfundur Kvenna í orkumálum, KÍO, verður haldinn miðvikudaginn 30. nóvember í Arionbanka, Borgartúni. Yfirskrift fundarins er Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi: Eru smávirkjanir framtíðin? Fundurinn er opinn öllum. Dagskrá Vetrarfundar: • Iða Brá Benediktsdóttir, framkvæmdastjóri fjárfestingabankasviðs ávarpar fundinn. • Auður Nanna Baldvinsdóttir, stjórnarkona KíO og sérfræðingur í viðskiptaþróun Landsvirkjunar- Litlar þúfur – Dreifð raforkuvinnsla. • Kjartan Rolf, deildarstjóri kerfisstýringar Rarik – Smávirkjanir og dreifikerfið. • Svana Huld Linnet, fyrirtækjaráðgjöf Arion banka – Fjármögnun smá- og örvirkjana. • Birkir Þór Guðmundsson, ráðgjafi hjá Orkuveri ehf, Að reisa og reka smávirkjun. • Mjöll Waldorf, stofnandi XRG Power – Möguleikinn á einkarafstöð. • Sæþór Ásgeirsson, stofnandi Icewind – Litlar vindrafstöðvar. Fljótandi veitingar og netagerð (networking) að loknum fundi. Viðburðurinn á Facebook