Desemberfundur Samorku 2016 Að venju verður desemberfundur Samorku haldinn fyrsta fimmtudag í desember, sem að þessu sinni kemur upp á fullveldisdaginn. Fundurinn er ætlaður aðildarfélögum Samorku. Nánari upplýsingar og skráning hefur þegar verið send á aðildarfélaga. Dagskrá desemberfundar 1. desember: Formaður Samorku opnar fundinn: Helgi Jóhannesson, forstjóri Norðurorku Beyond budgeting – ný nálgun við gerð fjárhagsáætlana: Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri fjármála, Orkuveitu Reykjavíkur Stækkun Búrfellsvirkjunar: Gunnar Guðni Tómasson, framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs Landsvirkjunar Markaðssetning, ferðamenn og orka: Guðrún Birna Jörgensen, verkefnisstjóri, Íslandsstofu Fundarstjóri: Lovísa Árnadóttir, Samorku