Þétt alþjóðlegt tengslanet margborgar sig

Öflugur hópur frá Íslandi, fulltrúar orkufyrirtækja, háskóla, verkfræðistofa og fleiri, sóttu Evrópsku jarðhitaráðstefnuna í Zurich frá 6. til 9. október sem EGEC – European Geothermal Energy Council skipulagði. Þessi góða þátttaka er til marks um forystuhlutverk Íslands í nýtingu jarðhita og margvíslega alþjóðlega samvinnu um rannsóknir, nýjungar og annað sem eflir þessa grænu orkulind.

Sveinn Helgason sat ráðstefnuna fyrir hönd Samorku og talaði við nokkra úr íslenska hópnum fyrir Lífæðar landsins.

Viðmælendur Sveins lögðu áherslu á gagnsemi þess að sækja alþjóðlega ráðstefnu af þessu tagi, til að kynna hvað þau og þeirra fyrirtæki og stofnanir eru að gera. Þau undirstrikuðu líka mikilvægi þess að byggja upp sterkt tengslanet þvert á landmæri sem skilar sér margfalt til baka.