Allir þurfa að velja sér söluaðila rafmagns Sala á rafmagni annars vegar og dreifing rafmagns hinsvegar er aðskilin starfsemi sem sinnt er af mismunandi fyrirtækjum og skýrt er betur neðar á síðunni. Rafmagnssala er á samkeppnismarkaði en dreifing rafmagns er í höndum sérleyfisfyrirtækja. Allir þurfa að velja sér söluaðila rafmagns og geta neytendur valið við hvaða fyrirtæki þeir skipta. Búseta skiptir ekki máli þegar kemur að vali á söluaðila rafmagns; öllum er frjálst að skipta við það fyrirtæki sem þeir kjósa. Að velja sér raforkusala er einfalt og fljótlegt. Hægt er að fara inn á heimasíður raforkusölufyrirtækis og ganga frá viðskiptasamningi. Söluaðilar rafmagns eru (í stafrófsröð): Atlantsorka Fallorka HS Orka N1 Rafmagn Orka heimilanna Orka náttúrunnar Orkubú Vestfjarða Orkusalan Straumlind Mikilvægt er að samningur við söluaðila rafmagns sé til staðar. Annars verður lokað fyrir rafmagnið því dreifiveitum er óheimilt samkvæmt lögum að dreifa rafmagni inn á heimili og fyrirtæki. Ekki er opnað fyrir rafmagnið á ný fyrr en raforkusali hefur verið valinn. Að láta opna á ný eftir lokun felur einnig í sér töluverðan kostnað fyrir neytandann. Neytendur geta ekki valið sér dreifiaðila rafmagns líkt og sölu. Dreifiveitur starfa eftir svæðum og aðeins eitt fyrirtæki sér um dreifingu rafmagnsins á hverju svæði.