Fréttabréf október 2016
Í september fór fram árlegur fundur norrænna samskiptastjóra orkufyrirtækja hér á Íslandi og stóðu Samorka og aðildarfyrirtæki að undirbúningi hans.
Að þessu sinni var rætt um áhrif Parísarsamkomulagsins á starfsemi orkufyrirtækja á Norðurlöndunum og skipst á skoðunum og hugmyndum, hlýtt var á magnaðan fyrirlestur dr. Guðna Elíssonar um loftlagsbreytingar, iðnaðarráðherra ræddi við hópinn og farið var í skoðunarferð í virkjanir.
Þrátt fyrir að margt sé ólíkt í starfsemi og umhverfi orkufyrirtækja á Norðurlöndum eru ótalmörg viðfangsefni þau sömu, svo ótvírætt gagn mátti hafa af fundinum.





