Raforkumarkaður á tímamótum Opinn fundur Landsvirkjunar þriðjudaginn 7. mars, kl. 8.30-10.00 á Hilton Reykjavík Nordica, morgunkaffi í boði frá kl. 8.00. Allir velkomnir, þátttaka ókeypis, en skráningar er óskað. Ný greining óháðra danskra sérfræðinga beinir sjónum að tækifærum til þróunar á íslenska raforkumarkaðnum. Er orkuöryggi á Íslandi tryggt? Er verðmætasköpun nægileg? Á þessum morgunverðarfundi verður leitast við að skýra fyrirkomulag raforkumála hér, benda á mögulegar takmarkanir og reifa hugsanlegar leiðir til úrbóta. Framsögumenn eru: Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar Helge Sigurd Næss-Schmidt, eigandi Copenhagen Economics Martin Bo Westh Hansen, yfirhagfræðingur Copenhagen Economics Fundarstjóri er Stella Marta Jónsdóttir, forstöðumaður verkefnastofu Landsvirkjunar. Nánari upplýsingar og skráning á fundinn er á heimasíðu Landsvirkjunar.