Umhverfisdagur atvinnulífsins 2019 Umhverfisdagur atvinnulífsins verður haldinn miðvikudaginn 9. október 2019 í Hörpu. Dagskrá hefur nú verið birt og er skráning í fullum gangi hér á vef SA. Boðið er upp á fjölbreytta og metnaðarfulla dagskrá og vissara að tryggja sér sæti sem fyrst. Um árlegan viðburð er að ræða en að honum standa Samtök atvinnulífsins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu. Dagskrá samtakanna hefst kl. 8.30 og stendur til að verða 10 þegar gert verður kaffihlé. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhendir m.a. Umhverfisverðlaun atvinnulífsins 2019, fyrirtækjum sem hafa staðið sig vel í umhverfismálum. Veitt verða tvenn verðlaun. Annars vegar verður umhverfisfyrirtæki ársins og hins vegar framtak ársins verðlaunað. Nánari upplýsingar um viðburðinn, umhverfisverðlaunin sjálf og skráning eru á heimasíðu Samtaka atvinnulífsins. DAGSKRÁ SetningHalldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Umhverfismál og auðlindanýting á NorðurslóðumHeiðar Guðjónsson, formaður Efnahagsráðs Norðurskautsins. Loftslagsbreytingar, lífríki hafsins og auðlindirHeiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Loftslagsbreytingar og fjárfestingarBrynjólfur Stefánsson, sérfræðingur hjá Íslandssjóðum. Umhverfisverðlaun atvinnulífsins 2019Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhendir verðlaunin. Kaffihlé kl. 10-10.15 DAGSKRÁ SEINNI HLUTA Samstarfsvettvangur atvinnulífs og stjórnvalda um loftslagsmál og grænar lausnirUnnur Brá Konráðsdóttir, formaður samstarfsvettvangsins. Jákvæðar fyrirmyndirOktó Einarsson, stjórnarformaður ÖlgerðarinnarGréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri KrónunnarÞorsteinn Jóhannesson, framkvæmdastjóri Farfugla Úrgangsmál, samkeppni og hringrásarhagkerfiðBryndís Skúladóttir, verkfræðingur hjá VSÓ Orkuskipti í flutninga- og hópferðabílumJón Björn Skúlason, framkvæmdastjóri Íslenskrar Nýorku. Aðlögun að loftslagsbreytingumGestur Pétursson, framkvæmdastjóri Veitna ohf. 12.00 Súpa, spjall og netagerð Fundarstjóri: Jóhanna Vigdís Arnardóttir, verkefnastjóri Samtaka iðnaðarins í menntamálum.