Umhverfisdagur atvinnulífsins Umhverfisdagur atvinnulífsins verður haldinn miðvikudaginn 17. október 2018 í Hörpu Norðurljósum kl. 8.30-12. Um árlegan viðburð er að ræða en að honum standa Samtök atvinnulífsins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu. Sameiginleg dagskrá samtakanna hefst kl. 8.30 og stendur til 10. Málstofur hefjast kl. 10.30 og standa til kl. 12. Boðið verður upp á létta hádegishressingu og netagerð að lokinni dagskrá. Hægt er að skrá sig á sameiginlega hlutann eingöngu sem lýkur kl. 10. DAGSKRÁ Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA Sigsteinn Grétarsson, Arctic Green Energy Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs og um langa hríð yfirmaður hjá loftslagssamningi S.þ. Brynhildur Davíðsdóttir, prófessor í umhverfis- og auðlindafræði við HÍ UMHVERFISVERÐLAUN ATVINNULÍFSINS 2018 Ragna Sara Jónsdóttir, formaður dómnenfndar og Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands. Fundarstjóri er Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku. Málstofa um alþjóðaviðskipti og loftslagsmál kl. 10.30-12 Loftslagsvænt sérmerkt ál Guðrún Þóra Magnúsdóttir, forstöðumaður umhverfismála hjá Rio Tinto á Íslandi Árangur sjávarútvegsins í loftslagsmálum Hildur Hauksdóttir, verkefnastjóri hjá HB Grandi Loftslagsvæn sjálfbær ferðaþjónusta Nafn fyrirlesara staðfest síðar. Ábyrgar fjárfestingar Brynjólfur Stefánsson, sérfræðingur hjá Íslandssjóðum. Kolefnishlutlaus orku- og veitustarfsemi 2030 Marta Rós Karlsdóttir, forstöðumaður auðlinda, Orku náttúrunnar Málstofustjóri er Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar. Málstofa um grænar lausnir atvinnulífsins kl. 10.30-12 Framtíð sorpförgunar Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðingur og stofnandi Environice Vistvæn mannvirki Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Grænnar byggðar Kolefnisfótspor fyrirtækja Kristján Geir Gunnarsson, forstjóri Odda Er plastið á leið úr búðunum? Ingvar Freyr Ingvarsson, hagfræðingur SVÞ Endurnýjanlegt eldsneyti og sjálfbærar samgöngur Margrét Ormslev, fjármálastjóri CRI Málstofustjóri er Rakel Garðarsdóttir, stofnandi Vakandi. Allir eru velkomnir en nauðsynlegt er að skrá þátttöku á vef SA.