Opinn kynningarfundur um kerfisáætlun Landsnet býður á opinn kynningarfund um kerfisáætlun þriðjudaginn 29. nóvember. Fundurinn, undir yfirskriftinni Kerfisáætlun 2016-2025: Innviðirnir okkar – leiðin að rafvæddri framtíð, verður haldinn á Hilton Reykjavík Nordica kl. 9-10.30. DAGSKRÁ Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets setur fundinn Leiðin að rafvæddri framtíð Sverrir Jan Norðfjörð, framkvæmdastjóri Þróunar- og tæknisviðs Landsnets Umhverfisáhrif kerfisáætlunar Auður Magnúsdóttir, umhverfisstjórnunarfræðingur hjá VSÓ Ráðgjöf Fundarstjóri: Kristján Kristjánsson, fjölmiðlamaður Boðið verður upp á léttan morgunverð frá kl. 08.30. Skráningar er óskað á heimasíðu Landsnets.