Nýsköpunarverðlaun Samorku 2026 Nýsköpunarverðlaun Samorku verða afhent í sjötta sinn kl. 15 fimmtudaginn 19. nóvember í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur. Nýsköpun hefur alltaf verið samofin starfsemi orku- og veitugeirans og líkt og áður kallar geirinn á skapandi lausnir til að svara áskorunum nútímans. Loftslagsbreytingar, orkuskipti og aukið álag á innviði kalla á nýjar lausnir og nýja hugsun. Nýsköpun gerir okkur kleift að nýta auðlindir betur, auka skilvirkni og sjálfvirkni og byggja upp þau traustu og sjálfbæru orku- og veitukerfi sem samfélagið þarf til framtíðar. Með Nýsköpunarverðlaunum Samorku viljum við vekja athygli á því öfluga nýsköpunarstarfi sem unnið er í geiranum og heiðra þá sem skara fram úr. Dagskrá Ávarp: Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku Fulltrúi dómnefndar tekur til máls Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, afhendir Nýsköpunarverðlaun Samorku 2026 Myndband um starfsemi verðlaunahafans Boðið verður upp á léttar veitingar í lok viðburðar Skráning fer fram hér fyrir neðan. Við hvetjum gesti til að skrá sig til að tryggja sér sæti og hjálpa okkur að draga úr matarsóun. Nafn Netfang Fyrirtæki Skrá mig Δ