Námskeið: Samkeppnisréttur Samorka heldur námskeið um samkeppnisrétt fyrir þátttakendur í hópum og ráðum samtakanna fimmtudaginn 26. nóvember kl. 9.00–10.30. Á námskeiðinu verður farið yfir leikreglur samstarfsins, hvaða upplýsingum má deila og hvernig bregðast skuli við ef umræður fara út fyrir leyfileg mörk. Í hópum og ráðum Samorku hittast fulltrúar fyrirtækja sem sum hver keppa sín á milli. Samstarfið er dýrmætt fyrir greinina en því fylgir ábyrgð. Markmið námskeiðsins er að efla þekkingu þátttakenda á samkeppnisreglum og stuðla að öruggu og árangursríku samstarfi. Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku, opnar námskeiðið. Katrín Helga Hallgrímsdóttir, lögfræðingur Samorku, fer síðan yfir grunnreglur samkeppnisréttar og þýðingu þeirra fyrir starf samtakanna. Meðal umfjöllunarefna verða upplýsingaskipti, fundahald, samspil samkeppnisréttar og REMIT og mögulegar afleiðingar brota. Dagskrá 9.00 -OpnunFinnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku. 9.10 -Samkeppnisréttur í starfi SamorkuKatrín Helga Hallgrímsdóttir, lögfræðingur Samorku. Grunnreglur samkeppnislaga og EES-samningsins, og hvers vegna þær ná til samtaka fyrirtækja Upplýsingaskipti: hvaða upplýsingum má deila og hverjum ekki? Á fundum: dagskrá, fundargerðir og hvað gera skal ef umræðan fer út fyrir mörkin Samspil samkeppnisréttar og REMIT Afleiðingar brota: rannsóknir, sektir og ábyrgð fyrirtækja og einstaklinga 10.15 -Umræður og spurningar. 10.30 -Lok. Námskeiðið er ætlað starfsfólki aðildarfélaga sem tekur þátt í starfi hópa og ráða Samorku. Við hvetjum alla sem þar sitja til að mæta. Góð þekking á leikreglunum verndar bæði þátttakendur og fyrirtækin sem þeir starfa fyrir og gerir samstarfið markvissara. Nauðsynlegt er að skrá sig til að geta tekið þátt í námskeiðinu. Nafn Netfang Fyrirtæki Skrá mig Δ