Aðalfundur Samorku 2021 26. aðalfundur Samorku verður haldinn í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, í Hyl (fundarsal á fyrstu hæð) og í fjarfundi miðvikudaginn 10. mars 2021. Fundurinn hefst kl. 11:00, en skráning hefst kl. 10:30. Hægt verður að vera þátttakandi í aðalfundinum með því að mæta á staðinn eða með því að mæta í fjarfundi (sjá leiðbeiningar í tölvupósti). Sé þátttaka í fjarfundi vinsamlega sendið umboð í PDF á netfangið baldur@samorka.is fyrir fundinn. Ef tengill hefur ekki borist í tölvupósti má óska eftir honum hjá Lovísu Árnadóttur, lovisa@samorka.is. Mæting á staðinn og þá eftir atvikum fjöldi þeirra sem getur mætt, ræðst af þeim reglum sem þá munu gilda um samkomutakmarkanir. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku á aðalfundinum með því að skrá ykkur hér fyrir neðan eigi síðar en þriðjudaginn 9. mars og hakið í ef þið hyggist vera í fjarfundi. 10:30 Skráning 11:00 Aðalfundarstörf Setning: Helgi Jóhannesson, formaður Samorku Dagskrá aðalfundar skv. lögum Samorku : Kjör fundarstjóra og fundarritara Skýrsla stjórnar Ársreikningur ásamt skýrslu endurskoðanda Fjárhagsáætlun Tillögur um lagabreytingar(sjá meðfylgjandi) Tillögur kjörnefndar Kjör stjórnar, stjórnarformanns og endurskoðanda Kjör í kjörnefnd Önnur mál Nafn Netfang Fyrirtæki Ég vil vera á fjarfundi Skrá mig Δ