Orku- og veitufyrirtæki Orku- og veitufyrirtæki í Samorku eru hátt í 50 talsins. Þau eru staðsett víðsvegar um landið og þjóna mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi. Raforka og veituþjónusta er nauðsynleg forsenda fyrir atvinnurekstri og búsetu í landinu. Starfsemin skilar háu hlutfalli af landsframleiðslu, en að auki býr hún Íslendingum mikil lífsgæði sem mörg okkar líta á sem sjálfsagðan hlut. Starfsfólk í orku- og veitufyrirtækjum á Íslandi er rúmlega 1800 talsins. Helstu einkenni starfsfólks í orkugeiranum eru meðal annars hátt menntunarstig, hátt hlutfall iðnmenntunar og hár starfsaldur. Launin eru einnig góð og helgast það ekki síst af öllu fyrrnefndu. Hlutfall kvenna í orkugeiranum er um 29% heilt yfir og eykst hægt og bítandi. Lög og reglugerðir: Fráveitur Finna má lög og reglugerðir er varða málefni fráveitna má finna á vef umhverfisráðuneytisins. Hitaveitur Hitaveitur falla undir orkulög en reglugerðir um einstakar hitaveitur má finna hér á vefsíðu Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins. Raforka Lög og reglugerðir er varða málefni raforkufyrirtækja má finna hér á vef Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins. Vatnsveitur Lög og reglugerðir varðandi starfsemi vatnsveitna má finna m.a hér: Neysluvatnsreglugerðin, á vef innanríkisráðuneytisins og á vef umhverfis- og auðlindaráðuneytisins. Lög um vatnsvernd má finna á vef umhverfisráðuneytisins.