18. febrúar 2026 Móttaka hafin á erindum fyrir Fagþing Undirbúningur er hafinn fyrir Fagþing Samorku sem verður haldið 7. og 8. maí í Hljómahöll í Reykjanesbæ. Í ár verður megináherslan á hita-, vatns- og fráveitumál og það fjölbreytta rekstrarumhverfi sem þeim tengist, frá regluverki og rekstri til rannsókna, öryggis og þróunar. Við óskum nú eftir tillögum að erindum fyrir dagskrá þingsins og hvetjum ykkur eindregið til að senda inn hugmyndir. Hægt er að senda inn tillögu að erindi hér: Tillögur að erindum á Fagþing vatnsmiðla 2026 Þar skal koma fram:Nafn innsendandaFyrirtækiNetfang innsendandaVinnuheiti erindisStutt lýsing á innihaldi og áherslum þess Frestur til að skila inn tillögum er 28. febrúar. Við hlökkum til að fá fjölbreyttar tillögur og tryggja enn eitt metnaðarfullt og áhugavert fagþing fyrir atvinnugreinina.