Jón Gunnarsson ráðinn verkefnastjóri greininga

Jón Gunnarsson hefur verið ráðinn verkefnastjóri greininga hjá Samorku, samtökum orku- og veitufyrirtækja.

Jón er með B.Sc. í rekstrarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og M.Sc. í iðnaðarverkfræði og stjórnun (Industrial Engineering and Management) frá DTU – Technical University of Denmark í Kaupmannahöfn.

Jón kemur til Samorku frá Landsvirkjun þar sem hann starfaði í innkaupum.

Jón hóf störf þann 1. september og er hann boðinn hjartanlega velkominn á skrifstofuna.