Fyrir þátttakendur Hvernig fer rannsóknin fram? Skráning og upplýst samþykki Allir þátttakendur í úrtaki voru valdir út frá ökutækjaskrá og hafa fengið boð um þátttöku. Hægt er að óska eftir þátttöku með því að senda tölvupóst á hledslurannsokn@hledslurannsokn.is. Ef þú hefur fengið boð og vilt taka þátt, þá getur þú skráð þig með því að smella á takkann hér fyrir neðan. Fá búnað í hendurnar – dreifing mælibúnaðar Eftir að skráning hefur verið móttekin verður mælibúnaði komið til þátttakenda í lok október. Ef þú býrð: Á höfuðborgarsvæðinu Er hægt að nálgast mælibúnað hjá Landsvirkjun á Háaleitisbraut 68 eftir 25. október og fá um leið aðstoð við uppsetningu. Fá starfsmann rannsóknar til þess að koma honum til þín. Hægt er að mæla sér til móts við starfsmann rannsóknar með því að senda tölvupóst á hledslurannsokn@samorka.is eða í síma 768-4430. Utan höfuðborgarsvæðis Búnaði er komið til þín. Annaðhvort með pósti eða þá að starfsmaður rannsóknar kemur honum til þín. Uppsetning búnaðar í bíl Uppsetning búnaðar er yfirleitt afar einföld og tekur skamman tíma. Gott er að eiga þær pakkningar sem fylgir mælitæki fyrir síðari notkun þegar búnaði er skilað í lok rannsóknar. Til þess að setja upp mælitækið er hægt að fylgja eftirfarandi leiðbeiningum: Leiðbeiningar Ræstu bílinn. Settu mælitækið í samband í: OBD II tengi. Upplýsingar um staðsetningu þess má finna hér. Proprietary diagnostics connector tengi ef bílategundin er Tesla. Frekari leiðbeiningar má finna hér. Fyrir Nissan Leaf og Tesla: Framlengingarsnúra fylgir með mælikubbi til eigenda Nissan Leaf og Teslu. Snúran kemur á milli tækis og tengis og gerir það að verkum að tækið er ekki fyrir ökumanni. Þó er hægt að sleppa framlengingarsnúru í Nissan Leaf ef eigandi kýs og stinga tæki þá beint í OBD II tengið. Frekari leiðbeiningar er að finna hér. Appelsínugult ljós blikkar á tækinu þegar því er stungið í samband. Ljósið hættir að blikka og lýsir stöðugt þegar tækið hefur náð sambandi við bílinn. Blátt ljós ætti þá að blikka. Ljósið hættir að blikka og lýsir stöðugt þegar tæki er komið í gagnið og getur sent frá sér gögn. Það gæti tekið tíma ef það er takmarkað samband. Uppsetningu lokið. Myndband af uppsetningu frá FleetCarmaMyndband af uppsetningu fyrir TeslaMyndband af uppsetningu frá FleetCarma Myndband af uppsetningu fyrir Tesla Staðsetning OBD II tengis Upplýsingar um hvar OBD II tengið er staðsett í þínum bíl má finna hér. Yfirleitt er OBD II tengið staðsett fyrir neðan stýri og fyrir ofan bensíngjöfina. Í sumum bifreiðum er plast stykki sem hylur tengið sem auðvelt er að fjarlægja. Vandamál Ef annað eða bæði LED ljósin lýsa ekki stöðugt eftir uppsetningu, þá skal fylgja eftirfarandi skrefum: Tryggðu að kveikt sé á bílnum (vélin ræst og tilbúin til aksturs). Taktu C2 mælitæki úr sambandi. Bíddu í 10 sekúndur. Settu hann svo aftur í samband og ýttu þéttingsfast. Ef bæði LED ljósin lýsa enn ekki stöðugt. Þá skal hringja í síma 768-4430 eða senda tölvupóst á hledslurannsokn@samorka.is. Aðstoð við uppsetningu Þú getur óskað eftir aðstoð við uppsetningu með því að senda tölvupóst á hledslurannsokn@samorka.is eða hafa samband í síma 768-4430. Það stendur til boða fyrir þátttakendur að mæla sér til móts við starfsmenn rannsóknar og fá persónulega aðstoð. Rannsókn á hleðsluhegðun – rannsóknartímabil Rannsókn á hleðsluhegðun stendur yfir í 12 mánuði. Rannsóknartímabilið hefst um leið og mælibúnaður hefur verið uppsettur rétt í bíl þátttakenda. Yfir þetta tímabil verður mælibúnaður tengdur í OBD II tengi bílsins. Vert er að taka fram að búnaðurinn notar lítið sem ekkert rafmagn og hefur ekki áhrif á drægni bílsins. Hann slekkur á sér fljótlega eftir að slökkt er á bílnum. Vandamál Í því tilfelli að bíll verður ónothæfur, eigendaskipti eiga sér stað, tæki bilar, týnist eða er stolið skal láta aðstandendur rannsóknarinnar vita með tölvupósti á hledslurannsokn@samorka.is eða í síma 768-4430. Skil á búnaði og gjafakort Í lok rannsóknar þegar gagnasöfnun lýkur ber að skila mælibúnaði aftur til Samorku eða til aðildarfyrirtækja þess sem standa að rannsókninni. Hægt er að skila búnaði í móttöku hjá eftirfarandi starfsstöðvum sýndar hér fyrir neðan eða þá senda hann með pósti til Samorku í Borgartún 35, 105 Reykjavík. Samorka greiðir sendingarkostnaðinn. Þegar þátttakandi sendir búnaðinn til Samorku skal sjá til þess að viðtakandi (Samorka) greiðir burðargjald. Þegar mælibúnaður hefur komist til skila fá þátttakendur með einkabíl 3000 kr. gjafakort sem hægt er að nota hvar sem er. StarfsstöðvarHöfuðborgarsvæðiReykjavík Borgartún 35, 105 Reykjavík – Samorka Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík – Landsvirkjun SuðurlandHvolsvelli Dufþaksbraut 12, 860 – RARIK Höfn í Hornafirði Álaugarvegi 11, 780 – RARIK Reykjanesbæ Brekkustíg 36, 260 – HS Veitur Selfossi Austurvegi 42, 800 – RARIK Vestmannaeyjar Tangagötu 1, 900 – HS Veitur VesturlandBorgarnesi Sólbakki 1, 310 – RARIK Búðardalur Iðjubraut 2, 370 – RARIK Ólafsvík Sandholt 34, 355 – RARIK Stykkishólmur Hamraendum 2, 340 – RARIK VestfirðirHólmavík Skeiði, 510 – Orkubú Vestfjarða Ísafjörður Stakkanesi 1, 400 – Orkubú Vestfjarða Patreksfjörður Eyrargötu, 450 – Orkubú Vestfjarða NorðurlandAkureyri Rangárvöllum, 603 – Norðurorka Óseyri 9, 603 – RARIK Blönduós Ægisbraut 3, 540 – RARIK Hvammstangi Höfðabraut 29, 530 – RARIK Húsavík Sólbrekku 18, 640 – RARIK Sauðarkrókur Borgartúni 1, 550 – RARIK Siglufjörður Vesturtangi 10, 580 – RARIK AusturlandEgilsstaðir Þverklettum 2-4, 700 – RARIK Fáskrúðsfjörður Grímseyri 2-4, 750 – RARIK Kópasker Bakkagata 1, 670 – RARIK Höfn í Hornafirði Álaugarvegi 11, 780 – RARIK Neskaupsstaður Stekkjargötu 6, 740 – RARIK Seyðisfjörður Garðarsvegi 15, 710 – RARIK Vopnafjörður Búðaröxl 2, 690 – RARIK Þórshöfn Langanesvegi 13, 680 – RARIK Hafa samband Netfang hledslurannsokn@samorka.is Símanúmer 866-9749