27. mars 2026 Fjárfesting í öryggi og áfallaþoli eykst verulega Fjárfesting í öryggi og áfallaþoli hefur aukist verulega meðal aðildarfélaga. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar sem Samorka lagði fyrir aðildarfyrirtæki í aðdraganda ársfundar. Um 62% segja að útgjöld til öryggismála hafi aukist á síðasta árinu og 76% segjast hafa ráðist í fjárfestingar sem höfðu það meginmarkmið að styrkja áfallaþol. Heildarfjárfesting aðildarfélaga í öryggi og áfallaþoli nemur nú 12,1 milljarði króna. Niðurstöðurnar sýna jafnframt skýrt að umræðan um öryggismál hefur skilað sér út í geirann. Allir svarendur telja þörf á frekari fjárfestingum í öryggi og viðbúnaði sem undirstrikar breiða samstöðu um mikilvægi málaflokksins. Hins vegar er niðurstaðan afdráttarlaus þegar horft er til regluverksins þar sem 82% aðildarfélaga telja núverandi löggjöf hamla fjárfestingum sem auka áfallaþol samfélagsins. Á sama tíma er myndin af rekstrarumhverfinu skýr. Þegar aðildarfélögin voru spurð hvaða atriði þau myndu helst vilja breyta í laga- eða regluverki til að bæta eða einfalda rekstur, stóð eitt atriði upp úr. Um tveir þriðju svarenda nefndu einföldun leyfisveitingaferla með einum eða öðrum hætti sem mikilvægasta skrefið til að auðvelda uppbyggingu og styrkja innviði.