Aðal- og ársfundur 2018 Aðal- og ársfundur Samorku var haldinn á Hilton Reykjavík Nordica þann 6. mars 2018. Á aðalfundi kl. 13 var kjörið í stjórn samtakanna. Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri, var kjörin fulltrúi Landsvirkjunar og þá voru einnig endurkjörin í stjórn þau Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets, og Jóhanna B. Hansen, bæjarverkfræðingur Mosfellsbæjar. Í stjórn sitja jafnframt áfram þau Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku og Guðrún Erla Jónsdóttir, stefnustjóri Orkuveitu Reykjavíkur og Helgi Jóhannesson, forstjóri Norðurorku og formaður stjórnar. Þá verður Inga Dóra Hrólfsdóttir, framkvæmdastjóri Veitna, áfram fulltrui fyrirtækisins í stjórn Samorku. Hörður Arnarson, forstjóri, tekur sæti varafulltrúa Landsvirkjunar í stjórn Samorku. Ásdís Kristinsdóttir, forstöðumaður, verður áfram varafulltrúi Veitna og þá sitja áfram þau Guðbjörg Marteinsdóttir, RARIK, Jón Tryggvi Guðmundsson, Selfossveitum og Elías Jónatansson, Orkubúi Vestfjarða, sem varamenn í stjórn Samorku. Konur skipa nú í fyrsta sinn meirihluta aðalmanna stjórnar Samorku. Að varamönnum meðtöldum er jafnt hlutfall kynja. Stjórn Samorku, að loknum aðalfundi 2018, skipa: Aðalmenn: Ásgeir Margeirsson, HS Orku Guðmundur Ingi Ásmundsson, Landsneti Guðrún Erla Jónsdóttir, Orkuveitu Reykjavíkur Helgi Jóhannesson, Norðurorku, formaður stjórnar Inga Dóra Hrólfsdóttir, Veitum Jóhanna B. Hansen, Mosfellsbæ Ragna Árnadóttir, Landsvirkjun Varamenn: Ásdís Kristinsdóttir, Veitum Elías Jónatansson, Orkubúi Vestfjarða Guðbjörg Marteinsdóttir, RARIK Hörður Arnarson, Landsvirkjun, Jón Tryggvi Guðmundsson, Selfossveitum Ályktun aðalfundar Samorku 2018 Ársskýrsla 2017 Samkeppnisréttaryfirlýsing Samorku. Yfirskrift opins ársfundar Samorku, sem hófst kl. 15, var: Framlag orku- og veitufyrirtækja til loftslagsmála. Dagskrá fundarins: Ávarp – Helgi Jóhannesson, formaður stjórnar Samorku Ávarp – Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar Framlag orku- og veitustarfsemi til loftslagsmála í fortíð, nútíð og framtíð – Inga Dóra Hrólfsdóttir, framkvæmdastjóri Veitna og Kristín Vala Matthíasdóttir, framkvæmdastjóri auðlinda HS Orku Sameiginleg yfirlýsing orku- og veitutækja um kolefnishlutleysi árið 2040 Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, veita yfirlýsingunni viðtöku Stóra verkefnið – Sigurður Ingi Friðleifsson, framkvæmdastjóri Orkuseturs State of Green: Nation Branding and Storytelling – Finn Mortensen, framkvæmdastjóri Fundarstjóri: Páll Erland, framkvæmdastjóri Samorku Upptökur af fundinum: Myndband í upphafi fundarins: Framlag orku- og veitufyrirtækja til loftslagsmála from Samorka on Vimeo. Ávarp – Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir from Samorka on Vimeo. Framlag orku- og veitufyrirtækja til loftslagsmála – Inga Dóra Hrólfsdóttir og Kristín Vala Matthíasdóttir from Samorka on Vimeo. Ávarp – Guðmundur Ingi Guðbrandsson from Samorka on Vimeo. Stóra verkefnið – Sigurður Ingi Friðleifsson from Samorka on Vimeo. State of Green: Nation Branding and Storytelling – Finn Mortensen from Samorka on Vimeo. Fundurinn í heild sinni: Ársfundur Samorku 2018: Framlag orku- og veitufyrirtækja til loftslagsmála from Samorka on Vimeo.